Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 2
2 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
Útvarpsráð greiddi í gær atkvæði um umsækjendur
um fréttastjórastarf Ríkissjónvarpsins. Sigríður Árna-
dóttir fékk fleiri atkvæði en Elín Hirst og Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri hugsar nú sinn gang.
Mörður Árnason situr í útvarpsráði.
„Ég myndi ráða Sigríði en ég
er ekki Markús Örn.“
SPURNING DAGSINS
Verður Sigríður ráðin?
RÍKISÚTVARPIÐ Ef farið verður að
vilja meirihluta útvarpsráðs verð-
ur Sigríður Árnadóttir, fréttamað-
ur og aðstoðarfréttastjóri á frétta-
stofu Ríkisútvarpsins, næsti
fréttastjóri Sjónvarps. Sigríður
hlaut fjögur atkvæði af sjö í út-
varpsráði og var studd af tveimur
fulltrúum Samfylkingarinnar, svo
og fulltrúum vinstri grænna og
Framsóknarflokksins. Þrír full-
trúar sjálfstæðismanna greiddu
Elínu Hirst atkvæði sín en Elín
var einnig studd af Boga Ágústs-
syni, nýjum yfirmanni fréttasviðs
Ríkisútvarpsins.
„Þarna eru á ferð hæfir um-
sækjendur, vinir og samstarfs-
menn til margra ára. Nú er úr
vöndu að ráða fyrir mig og ég
verð að hugsa minn gang,“ sagði
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri þegar niðurstaða úr at-
kvæðagreiðslu útvarpsráðs lá fyr-
ir. Sagðist útvarpsstjóri ætla að
sofa á þessu í nótt. Markús Örn
ræður fréttastjórann upp á eigið
eindæmi og er í engu bundinn af
atkvæðagreiðslu útvarpsráðs-
manna þegar hann tekur ákvörð-
un sína.
„Ég vonast til að fá starfið.
Þess vegna sótti ég um,“ sagði
Sigríður Árnadóttir þegar hún
fékk fréttirnar af útvarpsráð-
fundinum. „Ég vissi ekkert hvern-
ig þetta færi en neita því ekki að
ég er dálítið hissa,“ sagði hún um
meirihlutastuðninginn sem hún
hlaut.
Elín Hirst vildi sem minnst tjá
sig um niðurstöðuna. Sagðist bíða
eftir ákvörðun útvarpsstjóra: „Ég
bjóst reyndar við að fá meira fylgi
í útvarpsráði en við skulum sjá
hvernig fer. Ég lifi þetta af á
hvorn veginn sem fer,“ sagði Elín
Hirst. ■
ALÞINGI Þingmönnum var heitt í
hamsi þegar þeir tókust á um yf-
irlýsingar Jóhannesar Geirs Sig-
urgeirssonar, stjórnarformanns
Landsvirkjunar, um að ákveðnir
vísindamenn væru reiðubúnir að
fórna starfsheiðrinum til að
koma í veg fyrir að Kárahnjúka-
virkjun yrði að veruleika.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður vinstri grænna, hóf um-
ræðuna og gagnrýndi Jóhannes
harkalega fyrir ummæli sín.
Steingrími þótti of langt gengið
og krafði Valgerði Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
svara um hvort hún hefði hug-
leitt að víkja stjórnarformannin-
um frá störfum. Valgerður svar-
aði því til að ekkert hefði breyst
síðan hún hefði skipað Jóhannes,
hann nyti stuðnings síns.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði að sér þættu af-
skipti alþjóðasamtaka eins og
World Wildlife Fund alvarlegust.
„Ég sé ekki betur en þessi sam-
tök hafi beitt sér gegn málinu
mjög hatrammlega í samvinnu
við aðila á Íslandi með röngum
upplýsingum.“ Halldór minnti á
að virkjanaleyfi hefði verið veitt
og tími væri kominn að „minni-
hlutinn sætti sig við það að vera
minnihluti.“
Mjög heitt var orðið í kolun-
um undir lok umræðunnar eins
og sást best þegar iðnaðarráð-
herra stóð forviða frammi fyrir
háværum þingmönnum sem
gjömmuðu fram í og spurði:
„Hvaða ósköp? Er ekki allt í lagi
segi ég?“ ■
Reykjanesbraut:
Breikka eftir
áramót
FRAMKVÆMDIR Undirritaður hefur
verið samningur um breikkun
Reykjanesbrautar frá Hvassa-
hrauni að Strandarheiði. Heildar-
fjárhæð samningsins er 616 millj-
ónir króna en heildarkostnaður við
framkvæmdina er áætlaður 850
milljónir.
Vegamálastjóri undirritaði
samninginn í gær. Verktakafyrir-
tækin Háfell ehf., Jarðvélar ehf. og
Eykt ehf. sjá um verkið.
Sá áfangi sem samningurinn
nær til nær frá Hvassahrauni um
Afstapahraun og Kúagerði, um 1,5
km vestur fyrir Vatnsleysustrand-
arveg, og er um 8,1 km að lengd.
Gerð verða tvenn mislæg gatnamót
á þessum kafla, annars vegar í
Hvassahrauni og hins vegar við
Vatnsleysustrandarveg. Áætlað er
að hefja framkvæmdir í byrjun
næsta árs og ljúka þeim eigi síðar
en 1. nóvember árið 2004. ■
Garðyrkjuskólinn:
Skólastjórinn
rótgróinn
SKÓLAHALD „Fyrrum skólastjóri
Garðyrkjuskólans hefur komið
þeirri ósk á framfæri við okkur að
hann fái að búa í skólastjórabú-
staðnum fram á mitt næsta sumar.
Við vonumst til að lenda málinu í
góðri sátt á næstu vikum,“ segir
Guðmundur B. Helgason, ráðuneyt-
isstjóri í landbúnaðarráðuneytinu,
um málefni fyrrum skólastjóra
Garðyrkjuskólans í Hveragerði.
Hann býr enn í skólastjórabústaðn-
um þó hann hafi átt að rýma hann
fyrir hálfu ári í samræmi við
starfslokasamning. Fyrir bragðið
þarf núverandi skólastjóri að búa í
Reykjavík og aka til og frá vinnu.
Fyrrum skólastjóri, Grétar Unn-
steinsson, er borinn og barnfæddur
á staðnum og var skólastjóri Garð-
yrkjuskólans um áratuga skeið. ■
BRUSSEL, NIKOSÍA, AP Á morgun
hefst í Kaupmannahöfn tveggja
daga leiðtogafundur Evrópusam-
bandsins, þar sem ætlunin er að
bjóða tíu ríkjum aðild. Enn er þó
mikil óvissa um hvort af því verð-
ur.
Undanfarna daga hafa fulltrú-
ar Evrópusambandsins átt í hörð-
um deilum um nánari tilhögun að-
ildarsamninganna við ríkin sem
vonast til þess að fá aðild. Deilt er
um þau kjör sem bjóða á nýju að-
ildarríkjunum. Þau hafa mörg
hver hótað því að hætta við aðild
ef þau fá ekki ríflega aðstoð frá
Evrópusambandinu fyrst í stað.
Einnig er enn mikil óvissa um
það hvort Kýpur fær formlegt boð
um aðild að þessu sinni. Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, afhenti Grikkjum og
Tyrkjum á Kýpur friðartillögur í
síðasta mánuði. Hann gaf þeim
frest til 11. desember til þess að
ákveða hvort þeir vilji sættast á
þær hugmyndir.
Annan leggur til að Grikkir og
Tyrkir myndi sambandsríki á eyj-
unni að svissneskri fyrirmynd,
þar sem báðir hlutar eyjunnar
nytu verulegs sjálfstæðis. Fulltrú-
ar beggja sögðust afar ósáttir við
ýmislegt í þessum tillögum. Báðir
gera tilkall til yfirráða yfir allri
eyjunni. Annan kom svo með
nokkrar breytingar á friðartillög-
um sínum í gær og sagði að
Kýpurbúar mættu ekki missa af
þessu tækifæri.
Alls óvíst er hvort Evrópusam-
bandið býður Kýpur aðild á fund-
inum í Kaupmannahöfn nema
Grikkir og Tyrkir á eyjunni hafi
fyrst samið um frið sín á milli.
Þá hefur einnig verið óljóst
fram á síðustu daga hvort Tyrk-
land fái frá Evrópusambandinu
gefna upp ákveðna dagsetningu
fyrir upphaf aðildarviðræðna.
Tyrkir hafa lagt mikla áherslu á
að viðræðurnar hefjist sem fyrst,
helst ekki síðar en árið 2004.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagði hins vegar
í gær að flest aðildarríki Evrópu-
sambandsins væru samþykk því
að gefa Tyrklandi vilyrði um að að-
ildarviðræður hefjist í júlí árið
2005, að því tilskyldu að Tyrkland
uppfylli þá skilyrði fyrir aðild. ■
Stjórnarformaður Eiða:
Sakaður
um siðleysi
SVEITARSTJÓRNIR Meirihluti bæjar-
ráðs og bæjarstjórn Austur-Hér-
aðs hafa samþykkt uppbygging-
aráætlun eigenda Eiða, Sigur-
jóns Sighvatssonar og Sigurðar
Gísla Pálmasonar.
Fulltrúi minnihlutans í bæjar-
ráði, Eyþór Elíasson, segir að-
komu Árna Páls Árnasonar, lög-
manns og stjórnarformanns
Eiða ehf., að málinu óviðunandi
fyrir sveitarfélagið og stangast
á við siðareglur Lögmannafélags
Íslands.
Árni hafi sem ráðgjafi Aust-
ur-Héraðs að mestu samið kaup-
samninginn þegar sveitarfélagið
seldi Eiða. Nú sé hann farinn að
vinna sem gagnaðili sveitarfé-
lagsins. Þetta þurfi að kanna,
sem og hvort sveitarfélagið eigi
endurkröfu á hendur Árna
vegna kostnaðar við að fá annan
lögfræðing að málinu.
Meirihlutinn segir skoðun
innan sveitarfélagsins ekkert
athugavert hafa leitt í ljós.
Bæjarstjórn hefur samþykkt
þessa ályktun.
Þá segir Eyþór að kostnaðar-
áætlun vegna stofnkostnaðar sé
ónákvæm og lítið sundurliðuð,
ekkert standi um aðstöðu fyrir
Óperustúdíó Austurlands og
ekkert um sviðslistahús. Að auki
sé ekki gert ráð fyrir fastri
starfsemi á Eiðum og að fram-
kvæmdastjóri verði í Reykjavík.
Meirihlutinn segir áformin
metnaðarfull og framsýn og ekki
fjárhagslega íþyngjandi fyrir
Austur-Hérað. ■
Ummæli stjórnarformanns valda deilum:
Þingmenn tókust hart
á um Landsvirkjun
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Mikil háreysti var í þingsal undir seinni
ræðu iðnaðarráðherra, sem sá sig tilknú-
inn að sussa á þingmenn.
Óvissa um stækkun
Evrópusambandins
Þótt leiðtogafundurinn í Kaupmannahöfn hefjist á morgun ríkir
enn mikil óvissa um fjölgun aðildarríkja Evrópusambandins.
ANDERS FOGH RASMUSSEN Í GRIKKLANDI
Danmörk fer til áramóta með forsæti í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hitinn og
þunginn af skipulagningu stækkunar sambandsins hefur því hvílt á forsætisráðherra Dan-
merkur, Anders Fogh Rasmussen. Í gær ræddi hann þau mál í Grikklandi.
AP
/A
R
IS
M
ES
SI
N
IS
ÞÓRBERGSSETUR Á HALA Bæjar-
ráð Hafnar í Hornafirði segist
ánægt með frumkvæði áhuga-
hóps um Þórbergssetur á Hala í
Suðursveit. Ekki sé svigrúm til
beinna fjárframlaga en vilji sé
fyrir óbeinu framlagi. Menning-
armiðstöð á að skoða hvort
rammi stofnunarinnar leyfi
framlög.
Atkvæðagreiðsla í útvarpsráði um nýjan fréttastjóra:
Sigríður lagði Elínu
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
Flest atkvæði í útvarpsráði en útvarpsstjóri þarf að hugsa málið og svaf á því í nótt.
INNLENT