Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 4
4 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Borðar þú rjúpur um jólin?
Spurning dagsins í dag:
Hvort kanntu betur við hvít eða rauð
jól?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
78,2%Nei
21,8%
FIMMTUNGUR
Í RJÚPUM
Meirihluti borðar
ekki rjúpur um
jólin.
Já
KYNFERÐISBROT Dæmdur barnaníð-
ingur sem átti að hefja fimm og
hálfs árs afplánun í júlí en hvarf
úr landi gaf sig fram við fangels-
isyfirvöld á sunnudag, tæpum
fimm mánuðum eftir að hann átti
að mæta í fangelsi, og óskaði eftir
því að hefja þegar afplánun. Hann
er nú bak við lás og slá og getur
vænst þess að losna úr fangelsi í
ágúst 2006.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kom maðurinn til Íslands
í nóvember en hefur síðan farið
huldu höfði. Lögreglan hafði
grunsemdir um að hann héldi sig
hjá marokkóskri fyrrverandi
sambýliskonu. Konan var yfir-
heyrð í þrígang og hún leyfði leit
á heimilinu en maðurinn reyndist
ekki staddur þar.
Konan bjó með manninum frá ár-
inu 1999 en þau eiga saman
tveggja ára dóttur. Hún sagði í
samtali við Fréttablaðið í gær að
þau hefðu skilið vegna álagsins
sem fylgdi málaferlunum. Hún
segist ekkert hafa heyrt af honum
um nokkurra mánaða skeið þar til
hann hringdi á sunnudag frá Litla-
Hrauni. „Lögreglan heldur því
fram að ég hafi hjálpað honum að
leynast en það er rangt. En ég trúi
á sakleysi hans,“ segir sambýlis-
konan fyrrverandi.
Maðurinn gaf sig fram daginn
eftir að ítarlegt viðtal birtist við
fósturdóttur hans í Fréttablaðinu.
Þar lýsti fórnarlambið misnotkun
sem hófst þegar hún var níu ára
að aldri. Maðurinn misnotaði
hana um fimm ára skeið. Mis-
notkunin hófst þegar móðir
stúlkunnar var á fæðingardeild
og samkvæmt frásögn stúlkunnar
notaði maðurinn hana eins og eig-
inkonu.
Misnotkuninni lauk þegar
stúlkan var 14 ára að aldri en 12
ár liðu til viðbótar þar til hún
kærði glæpinn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Stígamótum er al-
gengt að fólk sem misnotað er
sem börn tali ekki um þá atburði
fyrr en það er komið á fullorðins-
ár. Því veldur óttinn við gerand-
ann og skömmin þar sem fórnar-
lömbunum er talin trú um að þau
eigi sína sök á því að þessir at-
burðir áttu sér stað.
Hæstiréttur dæmdi manninn í
vor til lengstu fangelsisvistar sem
barnaníðingur hefur fengið fram
að þessu. Þá var hann dæmdur til
að greiða þolandanum eina millj-
ón króna í miskabætur. Hann hef-
ur ekki staðið við þær greiðslur
enn sem komið er. Fórnarlambið,
sem í dag er 29 ára, leitaði til
dómsmálaráðuneytisins um að fá
skaðabæturnar greiddar á grund-
velli laga sem gera ríkinu að
greiða þolendum ofbeldis út bæt-
ur, en því var hafnað þar sem of
langt var um liðið frá því brotin
áttu sér stað.
„Ég er mjög ánægð með að
yfirvöld hafi náð honum. Réttlæt-
inu verður fyrst fullnægt þegar
hann hefur setið inni fyrir illvirki
sín,“ sagði konan í samtali við
Fréttablaðið.
rt@frettabladid.is
Í fangelsi eftir
umfjöllunina
Fósturfaðir sem misnotaði stúlkubarn gaf sig fram og óskaði eftir því að
vera lokaður inni. Fyrrverandi sambýliskona yfirheyrð þrisvar.
FANGAKLEFI
Dæmdur barnaníðingur bankaði og bað um að vera lokaður inni.
SUMARLOKUN AUÐVELDAR
ALLT STARF
Félag leikskóla fagnar sumarlokun leikskól-
anna. Þannig sé málum háttað hjá stór-
þjóðum og þyki sjálfsagt mál.
Leikskólakennarar:
Hlynntir
sumarlokun
LEIKSKÓLAR Stjórn Félags leik-
skólakennara hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem félagið
fagnar þeirri stefnubreytingu
hjá Reykjavíkurborg að ætla að
loka leikskólum borgarinnar í
sumarleyfum. Félag leikskóla-
kennara hefur lengi haft á
stefnuskrá sinni að svo beri að
gera og hvatt öll sveitarfélög til
að gera slíkt.
Í yfirlýsingunni segir að félag
leikskólakennara gangi fyrst og
fremst út frá þörfum barnsins í
skólastefnu sinni og hafi að leið-
arljósi það sem leikskólakennar-
ar telji að sé börnum fyrir bestu.
Reglufesta og stöðugleiki í leik-
skólastarfinu skipti miklu máli
fyrir öryggi barnsins og vellíð-
an. Þar fyrir utan auðveldi sum-
arlokun starfsmannahald og
skipulag skólastarfsins.
Félagið telur mikilvægt að
leikskólaárið hafi upphaf og endi
þannig að öll börnin og starfs-
fólkið fari á sama tíma í sumar-
frí. Þetta kalli á að foreldrum sé
gert kleift að fara í sumarfrí á
sama tíma og skólar barna
þeirra loka. ■
BAGDAD, AP Íraksstjórn segir
Bandaríkin hafa beitt „for-
dæmalausri valdníðslu“ með því
að taka til sín „eina eintakið“ af
vopnaskýrslunni, sem Írakar af-
hentu Sameinuðu þjóðunum á
laugardaginn. Með því að sjá
einir um ljósritun skýrslunnar
hafi Bandaríkjamenn haft tæki-
færi til að breyta henni og fjar-
lægja úr henni viðkvæmar upp-
lýsingar.
Þrjú önnur eintök eru til af
skýrslunni. Vopnaeftilitsnefnd
Sameinuðu þjóðanna í New York
fékk eitt eintak, Alþjóðakjarn-
orkustofnunin í Vínarborg annað
og sjálfir halda Írakar einu ein-
taki.
Fastafulltrúar Breta, Frakka,
Kínverja og Rússa í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna samþykktu
að Bandaríkin tækju að sér að
ljósrita skýrsluna handa þeim,
vegna þess að Kólombía, sem nú
fer með forsæti í Öryggisráðinu,
hafi ekki aðstæður til þess að
ljósrita hana nógu fljótt á örugg-
um stað.
Bretar, Frakkar, Rússar og
Kínverjar fengu eintak af
skýrslunni á mánudagskvöld,
nærri sólarhring eftir að Banda-
ríkin fengu skýrsluna í sínar
hendur.
Óljóst er hvort hin tíu ríkin,
sem fulltrúa eiga í Öryggisráð-
inu, fá óritskoðað eintak af
skýrslunni sínar hendur. ■
Bandaríkin tóku vopnaskýrslu Íraka til ljósritunar:
Írakar saka Banda-
ríkin um valdníðslu
ÍRASKUR JARÐVEGUR
EFNAGREINDUR Í AUSTURRÍKI
Þessi vísindamaður sat á einni af tilrauna-
stofum Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar í
Vínarborg. Þar verða efnagreind sýni úr
lofti, vatni, jarðvegi og ryki sem vopnaeftir-
litsmenn Sameinuðu þjóðanna tóku í Írak.
AP
/R
U
D
I B
LA
H
A
SJÁVARÚTVEGUR Grandi borgaði 20%
hærra verð fyrir 24% hlut sinn í
Þorbirni-Fiskanesi en síðasta verð
á markaði. Sérfræðingar á fjár-
málamarkaði segja að í því ljósi
megi gera ráð fyrir að Grandi sjái
hagræðingarmöguleika með
tengslum fyrirtækjanna. Stjórn-
endur Granda hafa margoft lýst
áhuga sínum á sameiningu við út-
gerðarfyrirtæki í nágrenni
Reykjavíkur. Lengi vel horfði fyr-
irtækið til Haraldar Böðvarssonar
á Akranesi. Sem kunnugt er hafði
Eimskipafélagið betur í kapp-
hlaupi um Harald Böðvarsson.
Árni Vilhjálmsson, stjórnarfor-
maður Granda og sitjandi for-
stjóri, sagði lítið um kaup fyrir-
tækisins að segja annað en það að
menn hlytu að sjá einhverja hag-
ræðingarmöguleika með svona
fjárfestingu. Hann útilokar ekki
frekari skref í átt að samruna
fyrirtækjanna en vildi ekkert tjá
sig um slíkt.
Samanlagður kvóti fyrirtækj-
anna er 42 þúsund þorskígildis-
tonn, sem er næstmesti kvóti sjáv-
arútvegsfyrirtækja. Lögð saman
eru fyrirtækin í fjórða sæti yfir
veltumestu sjávarútvegsfyrirtæki
landsins. ■
Grandi og Þorbjörn-Fiskanes:
Frekari sameining ekki útilokuð
STÓR SAMAN
Fyrirtækin Grandi og Þorbjörn-FIskanes yrðu sameinuð með næstmestu veiðiheimildir sjáv-
arútvegsfyrirtækja. Samanlögð velta tryggði þeim fjórða sætið meðal sjávarútvegsfyrirtækja.
PÁLL PÉTURSSON
„Við eigum ekki að þola að samborgarar
okkar líði skort,“ sagði ráðherra en stjórn-
arandstæðingum þótti lítið gert til að
koma í veg fyrir skortinn.
Þingmenn:
Deila um
fátækt
ALÞINGI „Stéttaskipting er orðin
staðreynd í íslensku samfélagi,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir, Sam-
fylkingu, í utandagskrárumræðu
um stöðu lágtekjuhópa. „Verulegar
brotalamir hafa komið fram á vel-
ferðarkerfinu;“ sagði Jóhanna og
kenndi aðgerðum stjórnvalda um.
Persónuafsláttur hefði verið fryst-
ur og barnabætur skertar. Kostn-
aðinn bæru hinir efnaminni sem
þyrftu aðstoð góðgerðarsamtaka
eins og biðraðir hjá mæðrastyrks-
nefnd sýndu ljóslega.
Jóhanna lýsti eftir stuðningi
Páls Péturssonar félagsmálaráð-
herra við þingsályktunartillögu
sína um að fram fari könnun á um-
fangi fátæktar. Páll kvaðst ekki
styðja þá tillögu en vinna að mál-
um eftir því sem ástæða væri til.
Sitthvað hefði verið gert, nú síðast
með samkomulagi við aldraða.
„Þær staðreyndir sem fyrir liggja
benda ekki til þess að ástandið sé
verra en nokkru sinni áður,“ sagði
Páll eftir að hafa hlustað á miklar
skammir stjórnarandstæðinga.
Ástandið hefði versnað á síðustu
árum en hámark vandans hefði
verið árið 1995.
Margir þingmenn tóku þátt í
umræðunni sem Ögmundur Jónas-
son, vinstri grænum, sagði árviss-
an viðburð sem alltaf kæmi mönn-
um jafn mikið á óvart. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T