Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 7
7MIÐVIKUDAGUR 11. desember 2002
BORGIN Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi F-listans, vill að
Reykjavíkurborg taki ekki þátt í
undirritun samninga milli Lands-
virkjunar og Alcoa í lok vikunnar.
Þetta kom fram í bókun borgar-
fulltrúans, sem þeir Árni Þór Sig-
urðsson og Stefán Jón Hafstein,
borgarfulltrúar R-listans, lýstu
sig efnislega sammála.
„Reykjavíkurborg, sem 45%
eignaraðili að Landsvirkjun, ger-
ir kröfu um að fyrir liggi arðsem-
ismat vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar áður en borgin geti samþykkt
að taka þátt í framkvæmdum,“
segir í bókun Ólafs F, sem lögð
var fram í borgarráði í gær. „Þar
sem slíkt mat liggur ekki fyrir
geri ég þá kröfu til borgarstjóra
að hún lýsi því yfir opinberlega
að skilyrði Reykjavíkurborgar
vegna þátttöku í Kárahnjúka-
virkjun hafi ekki verið uppfyllt.
Því sé borgin ekki aðili að þessari
undirritun og telji hana með öllu
ótímabæra.“
Ólafur F. telur að nýjar skuld-
bindingar Landsvirkjunar sem
nemi meira en 5% af eigin fé séu
háðar leyfi eigenda.
„Ég tel því að Landsvirkjun
geti ekki skrifað undir samninga
sem kunna að leiða til óaftur-
kræfra skuldbindinga og bóta-
skyldu án samþykkis Reykjavík-
urborgar. Engin fjárhagsleg rök
hafa komið fram sem geta rétt-
lætt þátttöku Reykjavíkurborgar
í Kárahnjúkavirkjun.“ ■
Skjólstæðingar
Félagsþjónustunnar:
Fá 16 þús-
und í jóla-
uppbót
FÉLAGSMÁL Skjólstæðingar Félags-
þjónustunnar, sem þegið hafa fjár-
hagsaðstoð í sex mánuði eða lengur,
fá tæpar 16 þúsund krónur í jóla-
uppbót.
Borgarráð samþykkti þetta í
gær, en einungis er um að ræða þá
notendur sem hafa fjárhagsstuðn-
ing Félagsþjónustunnar að lifi-
brauði. Um er að ræða 350 einstak-
linga. Áætlaður kostnaður borgar-
innar vegna jólauppbótarinnar eru
tæpar 5,5 milljónir króna. ■
Veitingahús um
hátíðarnar:
Opið
fram eftir
VEITINGAHÚS Veitingahúsum í
Reykjavík verður heimilt að hafa
opið fram eftir aðfaranætur 27.
desember og 2. janúar.
Borgarráð samþykkti í gær að
þeim veitingahúsum, þar sem al-
mennt er heimilt að veita áfengi
til klukkan 3 eða lengur aðfara-
nætur laugardaga, sunnudaga og
annarra almennra frídaga, verði
heimilt að veita áfengi til klukkan
3 umræddar nætur.
Um önnur veitingahús gildir að
þeim er heimilt að veita áfengi
jafn lengi umræddar nætur eins
og um aðfaranætur laugardaga,
sunnudaga eða almennra frídaga
sé að ræða. ■
Siglufjörður:
Báti komið
til bjargar
BJÖRGUN Björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, Sig-
urvin frá Siglufirði, kom ellefu
tonna trébáti til aðstoðar um eitt-
leytið í gærdag. Leki kom að bátn-
um um sjö mílur frá Siglufirði eft-
ir að sjólögn í lest gaf sig. Einn
maður var um borð og brást hann
hárrétt við með því að kalla eftir
aðstoð. Björgunarskipið fór á
vettvang með sjódælur og gátu
þær haldið bátnum á floti meðan
siglt var með hann til hafnar á
Siglufirði. Þar var báturinn þurr-
lensaður og komið í veg fyrir lek-
ann. ■
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, telur að nýjar skuldbindingar Landsvirkjunar
sem nemi meira en 5% af eigin fé séu háðar leyfi eigenda. Þeir Árni Þór Sigurðsson og Stef-
án Jón Hafstein, borgarfulltrúar R-listans, lýstu sig efnislega sammála bókun Ólafs F. í gær.
Tveir borgarfulltrúar R-listans sammála Ólafi F.:
Vill að borgin hunsi
samninga við Alcoa
Skerjafjarðarslysið:
Rannsókn
kærð
LÖGREGLA Rannsókn lögreglunnar
vegna Skerjafjarðarslyssins hef-
ur verið kærð til ríkissaksóknara.
Hluti rannsóknar lögreglunnar
beindist að því hvort þrjár flug-
vélar Leiguflugs Ísleifs Ottesens
hafi fengið lofthæfisskírteini frá
Flugmálastjórn án þess að vera
lofthæfar.
Í Fréttablaðinu í gær var mis-
sagt að kærendur telji annan
hreyfil vélar sem fórst hafa verið
kominn fram yfir leyfilegan gang-
tíma. Þetta átti við aðra af vélun-
um þremur. Kæran vegna slysa-
vélarinnar laut að því að hún væri
ekki lofthæf vegna skorts á við-
haldi og skoðunum. ■
TÖLVU STOLIÐ ÚR BÍL Starfsmað-
ur verslunarinnar BT á Akureyri
varð fyrir því óláni að tapa tölvu.
Hafði hann borið tölvuna út í bíl
og farið síðan til baka til að
sækja fleiri vörur. Þegar hann
kom út á ný var tölvan horfin.
Verðmæti tölvunnar er um
100.000 krónur. Lögreglan á
Akureyri kannar nú málið.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T