Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 8
8 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er bæði pen-
inga- og tímaeyðsla og í raun sorg-
legt að sjá hvernig fólk getur orðið
þrælar lyfjafyrirtækja,“ segir
Guðmundur Karl Snæbjörnsson,
heilsugæslulæknir í
Hlíðahverfinu, um
níkótíntyggjó, plás-
tra og nefúða sem
r e y k i n g a m e n n
kaupa í stórum stíl
til að hætta að reyk-
ja. „Það er viljinn
sem skiptir öllu og
skilar árangri,“ seg-
ir læknirinn og leggur áherslu á að
samkvæmt niðurstöðum allra
rannsókna sem hann hafi séð þá sé
árangur af notkun níkótíntyggjós,
plástra og nefúða hverfandi lítill
og réttlæti ekki á nokkurn hátt þá
miklu notkun sem sannanlega sé á
þessum efnum.
Guðmundur Karl hefur í starfi
sínu á heilsugæslustöðinni í Hlíð-
unum orðið áberandi var við þær
aukaverkanir sem fylgja níkó-
tíntyggjói. Til hans streyma sjúk-
lingar með alls kyns vanlíðan sem
Guðmundur Karl getur oftar en
ekki rakið beint til níkótín-
tyggjósins:
„Hingað kemur fólk með önd-
unarherping og ákafan hjartslátt
og það er oft fyrir hreina tilviljun
að við getum rakið það til níkótín-
tyggjós eða nefúða. Þegar fólk fer
að finna fyrir aukaslögum í hjart-
slætti þá verður það eðlilega
hrætt. Þetta getur auðveldlega
gerst þegar fólk fer að tyggja ník-
ótínið of hratt í einhverjum
hugaræsingi. Menn verða að gæta
sín og lesa leiðbeiningarnar sem
fylgja pökkunum,“ segir Guð-
mundur Karl, sem sjálfur reykir
en er alltaf að hætta: „Maður verð-
ur að þekkja syndirnar til að geta
átt við þær,“ segir hann.
Níkótíntyggjó, plástrar og
nefúði með níkótíni eru seld í lyfja-
verslunum án lyfseðils og kostar
neytendur álíka mikið og að reyk-
ja: „Þegar árangurinn af þessu öllu
er skoðaður, aukaverkanir og
kostnaður, þá er það spurning
hvort þetta sé ekki bara verra en
að reykja. En auðvitað er öllum
fyrir bestu að reykja alls ekki en
þar er það viljinn og ásetningur
hvers og eins sem gildir. Tyggjóið
er tóm vitleysa,“ segir Guðmundur
Karl, heilsugæslulæknir í Hlíða-
hverfinu.
eir@frettabladid.is
Níkótíntyggjó
tóm vitleysa
Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir efast um gildi níkóntíntyggjós.
Segir fólk þræla lyfjafyrirtækja. Rannsóknir sýni lítinn sem engan
árangur. Fólk streymir á heilsugæslustöðvar með öndunarherping og
hjartsláttartruflanir.
GUÐMUNDUR KARL SNÆBJÖRNSSON
Allar rannsóknir sýna að árangur af notkun níkótíntyggjós, plástra og nefúða í baráttunni
gegn tóbaksfíkninni réttlætir ekki á nokkurn hátt þá miklu notkun sem er á efnunum.
„Þegar fólk
fer að finna
fyrir aukaslög-
um í hjart-
slætti þá verð-
ur það eðli-
lega hrætt.“
SKATTAR Stjórnmálafélög sitja ekki
við sama borð og stjórnmálaflokk-
ar þegar kemur að skattalegri
meðferð styrkja og gjafa sem þau
fá vegna starfsemi sinnar.
Lögum samkvæmt eru gjafir
og styrkir fyrirtækja til stjórn-
málaflokka frádráttarbær frá
skatti. Frjálshyggjufélagið óskaði
skýringar ríkisskattstjóra á því
hvort sama ætti við um styrki sem
félagið kann að fá frá fyrirtækj-
um. Í svari ríkisskattstjóra segir
að svo sé ekki. Reglugerð sem
heimili slíkan frádrátt taki aðeins
til stjórnmálaflokka, ekki félaga.
Flokka beri að skilgreina sem
samtök sem hyggist bjóða fram
við næstu kosningar til Alþingis.
Haukur Örn Birgisson, for-
maður Frjálshyggjufélagsins,
furðar sig á því að gert sé upp á
milli stjórnmálaflokka og félaga
með þessum hætti. „Það er skrýt-
ið að flokkar geti fengið undan-
þágu frá þessu til að boða sína
hugmyndafræði en félög ekki.“
Honum þykir vafasöm túlkun að
miða við að félög verði að bjóða
fram í næstu þingkosningum svo
framlög til þeirra séu frádráttar-
bær frá sköttum. Slíkt gefi nýjum
félögum lítinn tíma til að skipu-
leggja sig fjárhagslega. ■
Frádráttur vegna fjárframlaga:
Ekki sama
flokkur og félag
ALÞINGI
Framlög til stjórnmálaflokka sem stefna á þingframboð eru frádráttarbær frá skatti.
Frádrátturinn fellur niður ætli stjórnmálafélag sér að berjast fyrir markmiðum sínum
utan þings.
STUNGU LÖGGUNA AF Ökumaður
sinnti ekki stöðvunarmerkjum
lögreglu á Akureyri um helgina
þar sem hann ók suður Drottn-
ingarbraut. Ók hann á mikilli
ferð út brautina og áfram suður
Eyjafjarðarbraut vestri á allt að
145 kílómetra hraða. Misstu lög-
reglumennirnir sjónar á bílnum.
Ökumaður og farþegi fundust
síðan nokkru síðar í annarri bif-
reið. Bíllinn sem þeir höfðu ekið
fannst síðan á túni niðri við
Eyjafjarðará ógangfær og núm-
eralaus. Grunur leikur á að
Bakkus hafi verið með í för.
Ólæti í Reykjavík:
Skemmdar-
verk skiptu
tugum
LÖGREGLUMÁL 23 skemmdarverk
voru tilkynnt til lögreglunnar í
Reykjavík um helgina. Í einu til-
fella hafði tveimur mönnum verið
vísað út af veitingastað í miðborg-
inni. Dyravörður sá sig knúinn til
að fylgjast með för þeirra. Sá
hann hvar þeir rifu þurrkublöð af
bílum, spörkuðu í rúður og veltu
um sorptunnum. Tilkynnti hann
athæfið til lögreglu, sem handtók
mennina.
Á sama tíma veitti lögregla á
eftirlitsferð athygli þremur
mönnum sem brutu rúðu í verslun
í miðborginni. Lögreglan náði ein-
um þeirra og var hann vistaður í
fangageymslu. ■
STUTT
HEILBRIGÐISMÁL Magnús Péturs-
son, forstjóri Landspítala, segir
það alfarið í höndum heilbrigðis-
ráðuneytisins að ákveða hvort
möguleiki væri að eiga samstarf
við einhvern annan en Íslenska
erfðagreiningu um miðlægan
gagnagrunn. „Ég vísa hugleiðing-
um um slíkt til ráðuneytisins en
það er annað mál með sam-
starfsaðila um að koma á fót
nýrri sjúkraskrá. Það kostar
mikla fjármuni að tölvuvæða all-
ar upplýsingar þannig að að-
gengilegar verði. Að þeirri vinnu
gætu komið bæði erlendir og inn-
lendir aðilar.“
Magnús segir að það kosti
mikla fjármuni en það fari allt
eftir því hvað menn vilji fá fyrir
peningana. „Það er almennt talið
viðamikið og flókið verk. Íslensk
fyrirtæki í upplýsingaiðnaði
gætu komið að því,“ segir Magn-
ús Pétursson. ■
Tölvuvædd sjúkraskrá:
Flókið og viðamikið verk
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Ákvörðun um miðlægan gagnagrunn er í höndum heilbrigðisráðuneytisins.
ORÐRÉTT
MIKIL ER TRÚ ÞÍN VILLI
Ég hef ekki trú á því að flokkur-
inn láti yfir sig ganga að reglur
séu brotnar með þeim hætti sem
gerðist.
Vilhjálmur Egilsson trúir að miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins breyti niðurstöðu
prófkjörs í Norðvesturkjördæmi. DV, 10.
desember.
VERÖLD SEM VAR
Með þessu nýja merki er síðasta
íslenska sérviskan horfin úr
heiminum inn í víddina þar sem
sjónvarpslausir fimmtudagar
búa...
Guðmundur Andri Thorsson um nýtt merki
Eimskipafélagsins. DV, 10. desember.
BJARTSÝNIN BORGAR SIG
Maður þarf oft að vaða í hlutina
eins og pönkarinn sem grípur gít-
arinn og byrjar bara að spila.
Andri Snær Magnason bjartsýnisverð-
launahafi. Morgunblaðið, 10. desember.
REYKJAVÍK
Mörg skemmdarverk unnin
í borginni um helgina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is