Fréttablaðið - 11.12.2002, Síða 12
11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNVÖLD Eftirlitsstofnun
EFTA er enn að fara yfir
hugmyndir íslenskra stjórn-
valda um veitingu ábyrgðar
til handa Decode vegna upp-
byggingar lyfjafyrirtækis
hér á landi. Stofnuninni ber
að ákveða hvort ábyrgðin
samræmist ákvæðum EES-
samningsins um ríkisaðstoð.
Að sögn Baldurs Guð-
laugssonar, ráðuneytisstjóra
í fjármálaráðuneytinu, er
óljóst hvenær athugun eftir-
litsstofnunarinnar lýkur.
Stofnunin hefur tvo mánuði
til að ljúka rannsókn sinni
eftir að hún telur sig hafa
fengið fullnægjandi upplýs-
ingar. Starfsmenn stofnun-
arinnar fara nú yfir gögn
sem snúa að þessu og hafa
ekki tilkynnt hvort þörf sé á
frekari upplýsingum eða
hvort líða fari að lokum út-
tektarinnar. ■
MENNTAMÁL „Við erum með þrjár
milljónir króna í vanskilum. Skól-
inn hefur ekki fengið framlög til
rekstrar frá því 10. september.
Þetta er óþolandi ástand,“ segir
Eyjólfur Guð-
mundsson, skóla-
meistari Fram-
haldsskólans í
Austur-Skaftafells-
sýslu, um bága
fjárhagsstöðu skól-
ans, sem líkt og
aðrir framhalds-
skólar er í
fjársvelti.
Á dögunum
m ó t m æ l t u
skólameistarar framhaldsskól-
anna í landinu því fjársvelti
sem skólarnir eru í sem hefur
leitt til þess að vanskil hlaðast
upp. Eyjólfur skólameistari
segir að fjármálaráðuneytið
hafi svipt skólann rekstrarfé
vegna þess að launaliðurinn hafi
hækkað meira en gert var ráð fyr-
ir. Hann segir að vanáætlað sé á
fjárlögum til reksturs skólans.
Árið 2000 hafi verið gert ráð fyrir
63 nemendum við skólann sem hafi
verið raunin. Árin 2001, 2002 og
2003 sé gert ráð fyrir sama nem-
endafjölda þrátt fyrir að þeir hafi í
raun verið 85 árið 2001 og 90 í ár.
Þarna sé í raun um talnaleik
stjórnvalda að ræða.
„Samningur okkar við ráðu-
neytið kveður á um að
við megum hafa 60 til
90 nemendur. Vandinn
liggur í því að það hef-
ur dregist fram á haustmánuði
árið eftir að leiðrétta framlag
vegna nemenda. Það þarf að áætla
nemendatölu eins og hún verður
en ekki að vera með einhverja tölu
sem hentar fjárlagagerðinni,“ seg-
ir Eyjólfur.
Hann segir að þess sé krafist af
skólunum að þeir nái fram árang-
ursstjórnun en á sama tíma sé fjár-
málaráðuneytið síður en svo að
sýna gott fordæmi. Eyjólfur segir
að samkvæmt reiknilíkani ráðu-
neytisins vanti 370 milljónir króna
til framhaldsskólanna á yfirstand-
andi ári. Samkvæmt sömu útreikn-
ingum vanti 600 til 700 milljónir
krónur á næsta ári til að skólarnir
standi undir rekstri.
„Samskiptin við ráðuneytið eru
að þessu leyti út í hött. Þar haga
stjórnendur sér ekki í samræmi
við þessar leikreglur. Menn eru að
vonast eftir einhverjum lagfær-
ingum við fjárlagagerðina en það
er nokkuð pottþétt að það næst
ekki. Ég er þessa dagana að fá alls
konar lita rukkunarseðla sem ekki
er hægt að greiða,“ segir hann.
rt@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Guðmundur Örn
Jónsson, verkfræðingur og
áhugamaður um nýliðun í sjávar-
útvegi, segir Guðbrand Sigurðs-
son, forstjóra Brimis, ekki hafa
bent á nein dæmi um nýliðun í
sjávarútvegi. „Hlutafélagavæð-
ing bæjarútgerða og fjölskyldu-
fyrirtækja er ekki nýliðun heldur
aðgerð til að auka verðmætasköp-
un viðkomandi fyrirtækja.“
Hann segir það aftur á móti rétt
hjá Guðbrandi að nýliðun hafi átt
sér stað í smábátaútgerð, enda sé
hún ekki í kvótakerfinu. „Það út-
gerðarform er nú orðið eitt það
hagkvæmasta á Íslandi samkvæmt
Hagstofu Íslands, þrátt fyrir að
bátarnir megi aðeins veiða 26 daga
af 365 á ári. Líklegt má telja að
þeir nýliðar væru þeir langhag-
kvæmustu í útgerð í dag ef þeir
sætu við sama borð og kvótaþegar.
Félagar Guðbrands í LÍÚ hafa
þrátt fyrir þessa hagkvæmni ný-
liðanna harðlega gagnrýnt þessa
auknu markaðshlutdeild þeirra og
viljað að ríkisvaldið hindraði hana.
Eftir stendur að í kerfi gjafakvót-
ans hefur ekki átt sér stað nýliðun
að neinu marki.“ ■
Decode-ábyrgðin:
Enn í athugun
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Eftirlitsstofnun EFTA þarf að meta hvort hugsanleg
ríkisábyrgð samræmist reglum sem gilda um ríkis-
stuðning á evrópska efnahagssvæðinu.
Vanskil hellast
yfir skólameistara
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu glímir við rekstrarvanda
vegna þess að ríkið leggur ekki til rekstrarfé. Eyjólfur Guðmundsson
skólameistari segir ástandið vera óþolandi. Milli 600 og 700 milljónir
króna vantar á næsta ári vegna talnaleiks.
EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON
Skólinn í vanskilum vegna þess að fjármálaráðuneyti
leggur ekki til rekstrarfé.
„Það þarf að
áætla nem-
endatölu eins
og hún verður
en ekki að
vera með ein-
hverja tölu
sem hentar
fjárlagagerð-
inni.“
Umræðan um kvótakerfið:
Hagræðing en
ekki nýliðun
HAGRÆÐING OG NÝLIÐUN
Guðmundur Örn Jónsson telur ekki hafa
komið fram rök sem hreki fullyrðingar sín-
ar um að kvótakerfið hindri nýliðun í
greininni.
H a u k u r G u l l s m i ð u r
S m á r a l i n d
Íslensk-ítölsk skartgripahönnun og smíði
Í 100 ár hefur FESTINA haft að kjörorði gæði fyrir gott verð.
Stál m/ vikud.
og mánaðard.
með stálfesti
kr. 19.400,-
með ól
kr. 14.500,-
Stál herraúr
100 m vatnsvarið
og öryggislás
Jólatilboð
Verð aðeins
kr. 9.900,-
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
1902 – 2002
Náttfatnaður
í miklu úrvali
Flónelsnáttföt
Bómullarnáttföt
Satínnáttföt fyrir
alla fjölskylduna
Náttkjólar, undir-
kjólar, sloppar
Mjög gott verð,
opið alla daga 11-19
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi, S. 554 4290