Fréttablaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. desember 2002
VSK-afsláttur næstu 6 daga!
B æ j a r l i n d 1 - 3 K ó p a v o g i S í m i 5 5 5 6 6 8 8
24,5%
Jólafötin komin
Ný sending
UPPLÝSINGATÆKNI Íslensk fyrirtæki
hafa tekið upplýsingatækni í
sína þjónustu í talsverðum mæli
samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar sem Hagstofa Íslands
stóð fyrir. Nærri
helmingur allra
fyrirtækja sem
eru með tíu eða
fleiri starfsmenn
hefur pantað vöru
eða þjónustu í
gegnum pöntunar-
form á Netinu og
tæplega fjórðung-
ur selt vöru eða
þjónustu með
sama hætti.
Í könnuninni kemur fram að
tölvur eru notaðar í 98% fyrir-
tækja með tíu starfsmenn eða
fleiri, Netið í 92% fyrirtækja og
nærri tvö af hverjum þremur
fyrirtækjum hafa komið sér upp
heimasíðu.
Stefán Hrafn Hagalín, ráð-
gjafi hjá Skýrr, segir tvennt eft-
irtektarverðast í niðurstöðum
rannsóknarinnar. Annars vegar
þá staðreynd að Íslendingar séu
klárlega að festa sig hægt og
bítandi í sessi sem forystuþjóð
þegar kemur að útbreiddri og
almennri hagnýtingu upplýs-
ingatækninnar. „Hins vegar
kemur það þægilega á óvart
hversu viðskipti fyrirtækja á
Netinu eru orðin umfangsmikil
hér á landi. Netviðskipti fyrir-
tækja í millum eru á heimsvísu
um það bil tífalt meiri heldur en
smásöluviðskipti við neytendur.
Aftur á móti hafa Íslendingar
verið dálítið seinir í gang með
að nýta Netið í þessu skyni. Mér
sýnist ýmis teikn á lofti um að
við ætlum að ryðjast hratt og ör-
ugglega í fremstu röð á þessu
sviði eins og öðrum í upplýs-
ingatækninni.“
Þegar litið er til þess með
hvaða hætti fyrirtæki hafa nýtt
sér upplýsingatæknina kemur í
ljós að það eru helst fyrirtæki
sem bjóða upp á sérhæfða þjón-
ustu sem panta sér vöru eða
þjónustu í gegnum Netið, en
fjögur af hverjum fimm höfðu
gert það um síðustu áramót.
Mest er um að fyrirtæki í sam-
göngum og flutningum selji í
gegnum vefinn. Eftir því sem
fyrirtæki verða stærri verður
jafnframt algengara að fyrir-
tæki hafi pantað eða selt í gegn-
um vefinn.
Upplýsingatæknin er mest
nýtt af fyrirtækjum sem bjóða
upp á ýmsa sérhæfða þjónustu,
en næst á eftir þeim koma sam-
göngu- og flutningafyrirtæki.
Athygli vekur að fyrirtæki í iðn-
aði eru einna duglegust við að
tengjast Netinu en gera minnst
af því að koma sér upp heima-
síðu. brynjolfur@frettabladid.is
„Netviðskipti
fyrirtækja í
millum eru
á heimsvísu
um það bil tí-
falt meiri
heldur en
smásöluvið-
skipti við
neytendur.“
FYRIRTÆKI OG
UPPLÝSINGATÆKNIN
Tölvur notaðar í fyrirtæki 98%
Fyrirtæki er með heimasíðu 64%
Fyrirtæki hefur pantað á netinu 44%
Fyrirtæki hefur selt á netinu 24%
Nær helmingur
fyrirtækja
kaupir á Netinu
44% fyrirtækja hafa keypt vöru eða þjónustu á
Netinu samkvæmt nýlegri rannsókn.
OFANFLÓÐ Rannsóknarvinna
sem snýr að ofanflóðavörn-
um á Seyðisfirði er farin af
stað. Unnið er í hlíðunum
ofan við bæinn. Fellst vinnan
í athugun á jarðvegi, sam-
setningu hans og vatns-
magni. Aldrei fyrr mældist
jafn mikil úrkoma á Aust-
fjörðum og í nóvembermán-
uði og var úrkomusamt alla
dagana. Mesta úrkoman
mældist á Kollaleiru í Reyð-
arfirði, 1.000 mm. Leiddi
þessa mikla úrkoma til aurskriða
á Austurlandi, sér í lagi á Seyðis-
firði. Var hættuástandi lýst yfir
oftar en einu sinni.
Tryggvi Harðarson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, segir að
undirbúningur rannsóknar-
vinnunnar hafi byrjað eftir að
hættumat var staðfest á Seyð-
isfirði í júlí á þessu ári. Jarð-
fræðistofa og Náttúrufræði-
stofa Íslands á Akureyri komi
að þessari vinnu auk fleiri
aðila. „Aðgerðaráætlun þarf
að liggja fyrir innan hálfs árs
frá því hættumat er staðfest.
Þarf sú áætlun að segja fyrir
um hvort farið verði í aðgerð-
ir eða frekari rannsóknarvinnu.
Strangt til tekið þarf niðurstaða
að liggja fyrir í næsta mánuði.“ ■
Eftirmáli aurskriða:
Flóðahætta rannsökuð á Seyðisfirði
TRYGGVI HARÐARSON
Tryggvi segir mannlífið á Seyðisfirði
með besta móti og rjómablíða sé
þessa dagana.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga
og 10-15 laugardaga.
Pelsar frá 12.900
Mokkajakkar og kápur
Tilboð á vendipelsum
– áður kr. 24.900
– nú 12.500
Hattar, húfur og
kanínuskinn kr 2.900