Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 11. desember 2002
Tilboðsverð
án vsk. 2992.-
m.vsk. 3.725.-
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
• Þvottavatn í einu hólfi
• Skolvatnið i öðru hólfi
• Fótstigin rúllupressa
Tvær í einni
Tveggja hólfa Rocket-ræstifatan (15 l)
hefur fótstigna rúllupressu sem kemur
í veg fyrir hokur við þrifin. Einföld og
þægileg lausn fyrir heimilið og minni
svæði hjá stofnunum og fyrirtækjum.
Hreinna gólf og beinna bak
RÆSTIFATA
LONDON, AP Íhaldsflokkurinn í
Bretlandi sakar Tony Blair for-
sætisráðherra um að hafa reynt að
flýta því að ástralski svikahrapp-
urinn Peter Foster, sem aðstoðaði
eiginkonu Blair við íbúðakaup ný-
verið, færi úr landi. Tengsl
Fosters og forsætisráðherrafrúar-
innar hafa verið á forsíðum
breskra blaða undanfarna daga.
Foster aðstoðaði Cherie Blair
við kaup á tveimur íbúðum í
Bristol. Með aðstoð svikahrapps-
ins tókst henni að spara sér 69 þús-
und pund, eða rúmlega níu millj-
ónir króna. Kaupin voru fullkom-
lega lögleg, en forsætisráðherra-
hjónunum hefur tekist að búa til
úr þeim pólitískt moldviðri með
því að neita fyrst að hafa þegið
ráðleggingar frá Foster, en viður-
kenna það síðan.
Foster hefur setið í fangelsi í
Bretlandi, Bandaríkjunum og
Ástralíu, aðallega vegna dóma í
tengslum við svik með megrun-
arpillur. Honum var gert að yfir-
gefa Bretland í september með
þeim rökstuðningi að dvöl hans
þar í landi gæti ekki talist „í þágu
almannaheilla.“
Hann áfrýjaði þessum brott-
rekstri nokkrum sinnum, en fékk
lokafrest til að hafa sig úr landi
þann 18. desember.
Lögfræðingur hans heldur því
nú fram að embættismenn hafi
stytt þennan frest um tólf daga
eftir að samskipti hans og forsæt-
isráðherrafrúarinnar vöktu at-
hygli fjölmiðla.
Oliver Letwin, þingmaður
Íhaldsflokksins, segir að dómari
eigi að fá að skoða málskjöl
Fosters hjá innanríkisráðuneytinu
til þess að ganga úr skugga um að
forsætisráðherrann eða starfsfólk
á skrifstofu hans hafi engin af-
skipti haft af málinu.
„Þetta vekur þá spurningu
hvort einhver í Downing-stræti 10
hafi hávaðalítið vikið sér að ein-
hverjum í innanríkisráðuneytinu
... það væri nú ansi flott ef við
flýttum þessum brottflutningi,“
sagði Letwin í viðtali við bresku
sjónvarpsstöðina BBC.
Tony Blair segir að allt þetta
mál sé bara fjölmiðlafár. Formæl-
andi forsætisráðherrans sagði að
fréttaflutningur af málinu væri
„vísvitandi herferð til þess að
svipta fólk ærunni.“
Hann sagði að „svo mörgum
ásökunum væri varpað á frú Blair
í þeirri von að fólk missi sjónar á
þeirri staðreynd, að engin þeirra
reynist sannleikanum samkvæm
og leðjan loði við.“ ■
HEILBRIGÐISMÁL Þórir Kolbeinsson,
formaður Félags heimilislækna,
segir félagið fylgjast náið með
framvindu mála á Suðurnesjum.
„Ég vona að þetta séu ekki skila-
boð úr heilbrigðisráðuneytinu
um að ekki verði liðið að menn
standi saman í réttindabaráttu
sinni. Ef svo er á það eftir að
skella verst á ríkinu sjálfu,“ seg-
ir hann.
Þeir heilsugæslulæknar sem
starfað hafa á Suðurnesjum voru
á sínum tíma sóttir til vinnu beint
úr sínu sérnámi þegar mikill
skortur var á læknum þar og að
sögn Þóris hafa þeir byggt upp
mjög öfluga þjónustu á svæðinu.
„Á Suðurnesjum er mikil þörf á
grunnþjónustu því íbúar sækja
ekki mikið til höfuðborgarsvæð-
isins eftir læknisþjónustu. Það
bitnar fyrst og fremst á upp-
byggingunni þar ef það á að taka
svona á málum. Það er ekki gott
til afspurnar og erfitt verður að
fá lækna til starfa. Það er því
hætta á að ástandið verði ekki
ósvipað og það var þegar þessir
læknar tóku þar við störfum.
Heilsugæslulæknar eiga ekki
erfitt með að fá vinnu,“ segir
Þórir Kolbeinsson. ■
Læknadeilan á Suðurnesjum:
Vonandi ekki skila-
boð úr ráðuneytinu
HEILSUGÆSLAN Í REYKJANESBÆ
Svona framkoma af hálfu stjórnenda
kemur fyrst og fremst niður á þeim sem
þurfa að nota þjónustuna, þ.e. sjúklingun-
um, og er ekki gott til afspurnar, segir
Þórir Kolbeinsson.
Cherie Blair og
svikahrappurinn
Forsætisráðherra Breta sakaður um að beita áhrifum sínum til þess að
losna við svikahrapp úr landi. Eiginkona Blairs naut aðstoðar hans við
íbúðakaup. Tómt „fjölmiðlafár“ og „vísvitandi tilraun til ærumeiðinga“?
CHERIE OG TONY
Cherie Blair naut aðstoðar kærasta vinkonu sinnar við íbúðakaup nýverið. Kærastinn
reyndist vera svikahrappur og dæmdur sakamaður.
AP
/D
AV
ID
C
AU
LK
IN
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta vöruúrval á fermetra.
Austurlenskt bollastell
og aðrir skrautmunir
með ekta gyllingu,
einnig glæsileg
glös og pottar.
Ótrúlegt úrval
öðruvísi
gjafavöru.
Heitasta búðin í bænum
Við erum á 3ju hæðinni!
Frábært úrval af ullarjökkum
Verð frá 5900
Kjólar á allar konur
Kanínuskinn í ýmsum stærðum
verð frá 1990- tilvalin jólagjöf
ZE
ZE
VI
LA
ZEZEVILA
ZE
ZE
VI
LA
ZEZEVILA
Markaðtorg Kringlunnar
3ju hæð