Fréttablaðið - 11.12.2002, Side 16
16 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
STUTT
Við björgum því
sem bjargað verður
H á a l e i t i s b r a u t 5 8 - 6 0 S : 5 5 3 1 3 8 0
FÓTBOLTI Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri Manchester City, hef-
ur sett stefnuna á að koma liðinu í
hóp sex efstu liða ensku úrvals-
deildarinnar eftir sannfærandi úti-
sigur á Sunderland í fyrrakvöld, 3:0.
City hefur nú unnið fimm af síð-
ustu sjö leikjum og er komið upp í
12. sæti deildarinnar, aðeins sex
stigum frá sjötta sætinu. „Í fyrsta
sinn í vetur lítum við út eins og lið
sem á heima í úrvalsdeildinni,“
sagði Keegan.
Sunderland er í slæmum málum
í næstneðsta sæti deildarinnar.
Kevin Phillips, framherja liðsins,
var skipt út af í leiknum. Lét hann í
ljós óánægju sína með gang mála er
hann veifaði til stuðningsmanna
sinna eins og hann væri að fara frá
félaginu. Phillips hefur lengi verið
orðaður við Tottenham. Hann hefur
aðeins skorað eitt mark í úrvals-
deildinni á leiktíðinni. ■
Kevin Keegan:
Stefnir á
Evrópusæti
GOATER
Shaun Goater fagnar marki sínu ásamt fé-
lögum sínum í Manchester City í leiknum
gegn Sunderland í fyrrakvöld.
FÓTBOLTI Dennis Bergkamp, Hol-
lendingurinn í liði Arsenal, er að
íhuga að framlengja feril sinn um
eitt ár til viðbótar. Bergkamp
hafði lýst því yfir að hann ætlaði
að leggja skóna á hilluna eftir
þessa leiktíð.
Bergkamp, sem er 33 ára gam-
all, hefur skorað 99 mörk fyrir
Arsenal. Hann segir að það fari
eftir formi sínu hvort hann ákveði
að halda áfram eða ekki. „Á þess-
ari stundu finnst mér ég geta
haldið áfram. Mér líður vel, ég
elska fótbolta og það verður erfitt
að segja skilið við hann. Mér
finnst ég ekki vera tilbúinn til að
hætta eins og er,“ sagði Berg-
kamp. ■
BERGKAMP
Dennis Bergkamp á enn eftir að skora sitt
100. mark fyrir Arsenal.
Dennis Bergkamp:
Hættur við að hætta?
Íslendingaliðið Stoke mætirWigan, sem er í efsta sæti 2.
deildar, í þriðju umferð ensku
bikarkeppninnar. Leikurinn verð-
ur háður 4. eða 5. janúar. Peter
Hoekstra og Peter Handyside,
leikmenn Stoke, eiga báðir við
meiðsli að stríða og óvíst er hvort
þeir geti leikið gegn Portsmouth
um næstu helgi.
Ágúst S. Björgvinsson hefurverið ráðinn þjálfari meist-
araflokks Vals í körfubolta í stað
Bergs M. Emilssonar, sem sagt
hefur verið upp. Valsliðið hefur
ekki staðið undir væntingum í
vetur og situr í neðsta sæti deild-
arinnar með aðeins tvö stig.
Ricky Davis skoraði 45 stigþegar lið hans, Milwaukee
Bucks, tapaði fyrir Cleveland,
140:133, í tvíframlengdum leik í
NBA-deildinni í körfubolta. Sam
Cassell, samherji Davis, skoraði
39 stig í leiknum.
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Manchester United tekur á
móti spænska liðinu Deportivo La
Coruna á Old Trafford í D-riðli
Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lið-
in mættust fjórum sinnum á síðustu
leiktíð í Meistaradeildinni og vann
Deportivo fyrri tvo leikina. United
hafði aftur á móti betur í síðari
tveimur viðureignunum, sem háðar
voru í 16 liða úrslitum.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, gerir sér grein fyrir
því að leikmenn Deportivo verði erf-
iðir andstæðingar. „Við höfum fylgst
töluvert með þeim á þessari leiktíð
og þeir eru með afar gott knatt-
spyrnulið,“ sagði Ferguson, sem
man vel eftir leikjunum við Deport-
ivo á síðustu leiktíð. „Deportivo lék
frábærlega en við unnum þá leiki
sem skiptu máli,“ sagði Ferguson.
Deportivo, sem er í 8. sæti spæn-
sku deildarinnar, gerði jafntefli við
Juventus í fyrsta leik sínum í D-
riðli. Talið er að Juan Carlos Valer-
on, einn besti leikmaður Deportivo,
snúi aftur til leiks í kvöld eftir að
hafa fótbrotnað þann 21. september.
United vann fyrsta leik sinn í D-
riðli, á móti svissneska liðinu Basel,
og er í efsta sæti riðilsins. Óvíst er
hvort David Beckham og Rio
Ferdinand geti leikið með United í
kvöld vegna meiðsla. Þeir Roy
Keane, Nicky Butt, Laurent Blanc
og Quinton Fortune verða allir frá
vegna meiðsla.
Í hinum leik riðilsins mætast
Basel og Juventus á Ítalíu. Juventus
gerði 2:2 jafntefli við Deportivo í
síðustu umferð og þarf á sigri að
halda gegn svissneska liðinu til að
eiga góða möguleika á að komast
áfram. Evrópumeistarar Real
Madrid taka á móti rússneska liðinu
Lokomotiv í C-riðli. „Þessi leikur er
afar mikilvægur fyrir okkur til að
sýna að við getum endurtekið þann
góða fótbolta sem við sýndum í
Heimsmeistarakeppni félagsliða í
Tókíó,“ sagði Raúl, framherji Real,
sem hefur ekki sigrað í fimm síð-
ustu leikjum sínum í Meistaradeild-
inni.
Ítalska liðið AC Milan mætir Bor-
ussia Dortmund í Þýskalandi. Bras-
ilíumennirnir Rivaldo og Dida verða
ekki með Milan vegna meiðsla. Mil-
an hefur leikið vel upp á síðkastið og
er á toppi ítölsku deildarinnar eftir
sigur á Roma um síðustu helgi. ■
United og
Deportivo
mætast enn á ný
Fjórir leikir í C- og D-riðli í 16 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
LEIKIR KVÖLDSINS
C-riðill:
Dortmund-Milan
R. Madrid-Lokomotiv
D-riðill:
Juventus-Basel
Man. Utd-Deportivo
STAÐAN
C-riðill:
Dortmund 3
Milan 3
Lokomotiv 0
R. Madrid 0
D-riðill:
Man. Utd 3
Juventus 1
Deportivo 1
Basel 0
BECKHAM
Óvíst er hvort David Beckham geti leikið
með Manchester United gegn Deportivo í
kvöld vegna meiðsla.
AP
/M
YN
D
JÓLAÚTHLUTUN MÆÐRA-
STYRKSNEFNDAR REYKJA-
VÍKUR HEFST MÁNUDAG-
INN 9. DESEMBER.
Jólaúthlutun verður alla
mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga frá kl. 14 til 17
og síðustu vikuna fyrir jól
verður einnig opið á fimmtu-
degi frá 14 til 17.
Tekið er á móti gjöfum til
nefndarinnar á sama tíma eða
eftir samkomulagi.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
Sólvallagötu 48 • 101 Reykjavík