Fréttablaðið - 11.12.2002, Qupperneq 20
20 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
kl. 4, 6, 8 og 10SWIMFAN kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50 bi. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10
kl. 6 Í SKÓM DREKANS
POSSESSION kl. 5.50 og 8Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
THE TUXEDO kl. 8 og 10 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 4 og 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429
SANTA CLAUS 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 6, 8 og 10.10 VIT479
Sýnd kl. 4 og 8 VIT 469
kl. 5.45 og 10.05HAFIÐ
TÓNLIST Platan kom út í október og
hefur fengið góðar viðtökur. Þetta
er 11. sólóplata Geirmundar. „Ég á
lag á nýjum lista í Færeyjum.
Diskurinn er í sölu þar en ég veit
nú voðalega lítið um þetta allt sam-
an,“ segir Geirmundur Valtýsson
og virðist jafn hissa og aðrir lands-
menn. „Ég er mjög ánægður með
þetta og vona að diskurinn seljist
eitthvað.“
Lagið vinsæla heitir „Brosandi
birta“. „Þetta er lag númer eitt á
disknum og er sveifla. Það er alveg
hörku „drive“ í því. Helga Möller
syngur dúett með mér. Það er
rammíslenskur texti við þetta,
saminn af Kristjáni Hreinssyni.
Hann fjallar um stelpu og strák úti
í sveit að labba. Síðan gerist eitt-
hvað skemmtilegt.“
En skilja Færeyingar textann?
„Já, já, alveg örugglega, það er
ekkert ósvipað þessu að gerast
þar.“
Skífan dreifir plötunni í Fær-
eyjum. Í ljósi þessara vaxandi vin-
sælda á eyjunum hlýtur það að
vera freistandi að fara í smá vík-
ing, eða er það ekki? „Jú, ætli mað-
ur verði ekki hugsanlega að skoða
það, sjá fyrst hvernig gengur.“
Geirmundur hefur verið starf-
andi tónlistarmaður í 30 ár. Hann
gaf út fyrstu plötu sína 1972. Frá
1989 hefur hann gefið út plötu á
tveggja til þriggja ára fresti.
Sama ár kom út fyrsta safnplata
hans. Í raun mætti segja að ævin-
týrið hafi byrjað þá, því safnplat-
an seldist í 9.000 eintökum. Geir-
mundur kemur til Reykjavíkur á
tveggja mánaða fresti til þess að
halda tónleika. Næstu tónleikar
hans hér verða á Players 4. janú-
ar.
Geirmundur segir að nú sé jóla-
vertíð tónlistarmanna loks að skel-
la á. „Salan er frá 1. nóvember og
fram í desember. Síðan er það bara
búið.“ Að lokum segist hann vona
að salan á „Alltaf eitthvað nýtt“
gangi einnig vel hérna heima. Auk-
inn áhugi er í Færeyjum á íslenskri
tónlist og eru vinsældir Geirmund-
ar enn ein sönnun þess. Það sama
mætti segja um færeyska tónlist
hér á landi. Íslensk tónlist er komin
í góða dreifingu Færeyjum. Hafa
hljómsveitir á borð við Sigur Rós
og Múm verið að selja vel. Í raun
mætti segja að það hafi opnast nýr
markaður fyrir okkur Íslendinga til
þess að flytja út okkar tónlistaraf-
urðir þar í landi.
orlygur@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9 VIT 468
MASTER OF DISGUISE
TÓNLIST
Páll Rósinkranz hefur veriðeinn besti söngvari landsins
um árabil. Hann hóf feril sinn
með hafnfirsku hljómsveitinni
Edrú, sló í gegn með Jet Black
Joe en sneri sér síðan að sólóferl-
inum. „Nobody Knows“ er þriðja
sólóplata Páls. Fyrri plöturnar
fengu geysilega góðar viðtökur
og seldust grimmt. Eins og á
þeim eru erlend lög í fyrirrúmi á
„Nobody Knows“.
Lögin eru flest undir gospel-
áhrifum sem er ekki alslæmt. Fyr-
ir vikið verða þau hins vegar öll
helst til einsleit. Hljóðfæraleikar-
arnir leysa allir sitt vel af hendi en
útsetningar laganna eru steingeld-
ar, ekki minnsti vottur af frum-
leika. Sem dæmi um leiðinlega út-
setingu er trompetsóló í gamla
Lennon-laginu „Jealous Guy.“
Eftir að hafa rennt plötunni í
gegn er fátt sem situr eftir nema
þó ágætis söngur Páls og afar
ófrumlegar útsetningar sem
hljóma oft eins og þær berist frá
nýmóðins skemmtara. Páll ætti
frekar að reyna að þróa sig og
þroska sem lagasmiður, en ef
hann ætlar að halda áfram á
karaoke brautinni má hann í það
minnsta reyna koma hlustendum
á óvart, á einn eða annan hátt.
Kristján Hjálmarsson
PÁLL RÓSINKRANZ:
Nobody Knows
Skilur
lítið eftir
Skagfirska sveiflan
í Færeyjum
Leikstjórinn Peter Jackson, semgerir Hringadróttinssöguþrí-
leikinn, segist ekki ætla að gera
„The Hobbit“ þegar hann hefur
lokið við gerð síðustu myndarinn-
ar. Hann segir að þar sem hann
ætli ekki að gera mynd við söguna
sé nokkuð víst að öðrum leikstjóra
verði falið það hlutverk og því
vilji hann mun frekar bara borga
sig í bíó og sjá myndina eins og
aðrir. Þannig þurfi hann ekki að
standa í allri þessari erfiðisvinnu
sem fylgir því að gera myndirnar.
Leikstjórinn segist ekki geta hugs-
að sér að heimsækja Miðgarð aft-
ur að þessum myndum loknum.
Söngkonan Ashanti bætti viðfleiri verðlaunagripum á arin-
hillu sína þegar hún fékk átta
verðlaun á Billboard verðlaunahá-
tíðinni á mánudagskvöld. Nelly fór
heim með 6 verðlaun þar á meðal
sem „aðalflytjandi ársins 2002“.
Þriðja breiðskífa Eminem, „The
Eminem Show“, var valin plata
ársins. Hljómsveitin Aerosmith
fluttu lag sitt „Walk this Way“
ásamt Nelly til þess að minnast
plötusnúðarins Jam Master Jay
sem var skotinn til bana í október.
Góðgerðasamtökin sem munufá leikkonuna Winonu Ryder í
vinnu vegna dómsúrskurðar í
máli hennar segj-
ast spennt að fá
hana sem liðs-
auka. Leikkonan
þarf að skila af
sér 480 klukku-
stunda vinnu fyrir
þjóðfélagið sem
hluta af refsingu
sinni fyrir búðar-
hnupl á síðasta ári. Ryder verður
því að vinna launalaust fyrstu
þrjá mánuði næsta árs hjá þrem-
ur mismunandi forvarnarsamtök-
um alvarlegra sjúkdóma. Samtök-
in segja að það verði afar jákvætt
að fá Ryder í vinnu þar sem það
þýði aukna athygli og því meiri
tekjur fyrir þau.
GEIRMUNDUR VALTÝSSON
Á vaxandi vinsældum að fagna í Færeyjum og veit ekki hvers vegna. Nýjasta breiðskífa
Geirmundar heitir „Alltaf eitthvað nýtt“.
Samkvæmt nýjum danstopplista Færeyinga er Geirmundur Valtýsson á leiðinni
inn á Topp 10. Vinsæla lagið er af nýju plötunni hans „Alltaf eitthvað nýtt“.
FÓLK Rúmlega 100 leikarar í Banda-
ríkjunum hafa tekið sig saman og
undirritað bréf til Bush Bandaríkja-
forseta til þess að mótmæla hernað-
araðgerðum gegn Írak.
Á meðal þeirra leikara sem skrif-
að hafa undir bréfið eru Kim Basin-
ger, Samuel L. Jackson, Matt Damon,
Ethan Hawke, Uma Thurman,
Laurence Fishburne, Jessica Lange,
Anjelica Houston og Martin Sheen
sem einmitt leikur forseta Banda-
ríkjanna í sjónvarpsþáttunum „The
West Wing“.
Aðrir sem skrifa undir bréfið eru
Eugene Carroll Jr, fyrrum aðmíráll
bandaríska hersins, og Edward Peck,
fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í
Írak.
Í kjölfarið er búist við fjöldamót-
mælum í Lafayette Park, sem er hin-
um megin við götuna frá Hvíta hús-
inu í Washington. Einnig er búist við
svipuðum mótmælaaðgerðum í New
York.
Þegar hafa margir þjóðþekktir
einstaklingar í Bandaríkjunum lýst
yfir andúð sinni á hernaðaraðgerð-
um, þar á meðal Tim Robbins, Susan
Sarandon og liðsmenn System of a
Down og AudioSlave.
Damon Albarn og sveitin Massive
Attack hafa verið helstu talsmenn
stríðsandstæðinga í Bretlandi. ■
Hollywood-leikarar
gegn Bush:
Leikarar
mótmæla
stríði
MARTIN SHEEN
Er ekki mikill stuðningsmaður Bush
Bandaríkjaforseta og hefur áður kallað
hann „fávita“ í fjölmiðlum.