Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 23
ENN ER VON
Reeve lamaðist fyrir neðan háls er hann
féll af hestbaki fyrir sjö árum.
Christopher Reeve:
Gæti
gengið á ný
HEILSA Leikarinn góðkunni
Christopher Reeve og aðrir í
hans stöðu eygja nú von um að
geta hreyft útlimina á ný. Lækn-
ar við Washington-heilbrigðis-
fræðaháskólann í St. Louis í
Bandaríkjunum hafa komist að
því að þær stöðvar heila Reeve
sem sjá skyn og hreyfingu eru
enn virkar. Það hefur ávallt verið
kenningin að stöðvarnar séu
teknar undir aðra starfsemi ef
boð hætta að berast eftir taugum
en svo er ekki. Þetta gefur von
um að Reeve og aðrir sem hafa
skaddast á mænu geti gengið á
ný ef aðferð finnst til að bæta
skaðann.
Vísindamenn telja sig vera á
réttri braut til að finna slíka
lækningu. Reeve hefur verið öt-
ull baráttumaður fyrir rannsókn-
um á stofnfrumum, sem eru
helsta von um að framleiða nýjan
mænuvef. ■
STAR TREK: NEMESIS FRUMSÝND
Gamanleikarinn Tim Allen gerir hér
heiðarlega tilraun til að framkvæma
kveðju Vúlkana fyrir blaðamenn á frum-
sýningu nýjustu Star Trek-myndarinnar,
Star Trek: Nemesis.
Leikarinn Jim Carrey skildileikkonuna Jennifer Aniston
eftir bláa og marða eftir tökur á
ástaratriði í mynd sem þau leika
í saman. Leikkonunni brá nokk-
uð í brún yfir því hversu harð-
hentur Carrey var. Atvikið gaf
leikkonunni víst nýja
sýn á Carrey, sem
bjargaði lífi hennar í
síðustu viku þegar
hann ýtti henni úr
vegi krana sem féll í
átt til hennar.
Leik- og söngkonan JenniferLopez og leikarinn Ben Af-
fleck eru svo staðráðin í því að
eignast börn að þau eru þegar
byrjuð að kaupa barnaföt. Lopez
vill ekki gefa upp hvort hún er
með barni eður ei. Parið hefur
þegar leikið í tveimur myndum
saman. Þau kynntust við tökur á
myndinni „Gigli“ og eftir það
fékk vinur Afflecks, leikstjórinn
Kevin Smith, þau til þess að leika
fyrir sig í myndinni „Jersey
Girl“.
23MIÐVIKUDAGUR 11. desember 2002
FRÉTTIR AF FÓLKI