Fréttablaðið - 11.12.2002, Qupperneq 24
24 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
BÆKUR „Það hefur verið fastur siður
allt frá árinu 1996 að bjóða rithöf-
undum til Hornafjarðar til að lesa á
aðventunni,“ segir Guðný Svavars-
dóttir bókavörður, sem undanfarin
ár hefur tekið á móti tugum rithöf-
unda sem komið hafa til Hafnar í
Hornafirði í boði menningarmála-
nefndar bæjarins. Um síðustu helgi
mættu sex rithöfundar til að kynna
verk sín. Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson, Andri Snær Magnason,
Guðrún Eva Mínervudóttir, Reynir
Traustason, Sigurbjörg Þrastardótt-
ir og Þorvaldur Þorsteinsson komu
til Hafnar í þessu skyni. Guðný tók
á móti gestunum ásamt Gísla Sverri
Árnasyni, forstöðumanni Menning-
armiðstöðvar Hornafjarðar. Hún
segir að upphaflega hafi starfsfólk
bókasafnsins átt hugmyndina að því
að fá höfunda jólabókanna austur til
að kynna þá fyrir lesendum.
„Hingað hafa komið hátt í
fimmtíu rithöfundar á aðventunni
til að kynna verk sín. Strax á
haustdögum er byrjað að spyrja
um það hverjir komi það árið,“
segir hún.
Guðný fór með rithöfundana í
skóla, elliheimili og á vinnustaði.
Hápunktur heimsóknarinnar var
síðan bókmenntakvöld í Pakkhús-
inu á fimmtudagskvöld þar sem
höfundarnir lásu úr verkum sín-
um. Um sextíu manns mættu til að
hlýða á upplesturinn.
„Þetta er orðinn fastur liður á að-
ventunni og fólk kann vel að meta
þessar heimsóknir þeirra sem
standa á bak við jólabækurnar,“
segir Guðný og kveðst sannfærð um
að þessar heimsóknir verði fastur
liður á næstu árum. ■
Hornfirðingar bjóða rithöfundum heim:
Bókmenntakvöld
í Pakkhúsi
ELSTI ÍBÚINN
Sigurbjörg Þrastardóttir, höfundur Sólar sögu, las á elliheimilinu á Höfn. Hér les hún fyrir
elsta íbúann á Höfn, Sólveigu Pálsdóttur, 105 ára.
BÆKUR „Kveikjan að þessari bók
er í rauninni sú að ég er búinn að
vera með starfslokanámskeið í
tæp tuttugu ár hjá fyrirtækjum,
stofnunum og stéttarfélögum.
Þar hef ég verið með efni og
kennslugögn til útbýtingar og
viðað að mér alls kyns upplýs-
ingum. Kveikjan er þannig nám-
skeiðin sjálf og fólkið sem ég hef
umgengist, sem hefur gefið mér
hugmyndir um hvað væri mikil-
vægt að hafa í svona bók.“ Þetta
segir Þórir S. Guðbergsson, sem
nýlega sendi frá sér bókina Lífs-
orku, bók um lífsstíl, starfslok
og góða heilsu. Hann segir
starfslok mikilvæg tímamót í lífi
fólks, en þó séu æ fleiri sem geri
sér grein fyrir að hægt sé að
undirbúa sig fyrir þessar breyt-
ingar. „Fullorðið fólk er ólíkt
innbyrðis eins og allir aðrir ald-
urshópar og engin ein uppskrift
sem dugir fyrir alla“ segir Þórir.
Hann segir þó allt of marga upp-
lifa starfslokin eins og þeir séu
að stimpla sig út úr lífinu. „Ís-
lendingar hafa alltaf unnið mjög
mikið, það hefur verið lenska
hér á landi, bæði af illri nauðsyn
og líka löngun margra til að
vinna 10 til 14 tíma á sólarhring.
Þegar svo menn fá uppsagnar-
bréfið 67 ára eða 70 ára, þá
bregður þeim í brún, því allt í
einu eru 8, 10, eða 12 tímar auka-
lega í sólarhringnum. Hvað eiga
þeir að gera við þá?“
Annað sem Þórir segir kvíð-
vænlegt fyrir marga er tekju-
missirinn sem óhjákvæmilega
fylgir þessum tímamótum.
Margir hafa ekki fyllilega gert
sér grein fyrir því hvað þeir fá í
laun, annars vegar í eftirlaun úr
lífeyrissjóði og hins vegar
hvernig almannatryggingabæt-
urnar skerðast við eftirlaunin.
Þetta kallar á uppstokkun og
skiptir miklu máli að geta hagað
seglum jákvætt eftir vindi og
horfa á björtu hliðarnar. Það er
líka mikilvægt að fólk hafi ein-
hver áhugamál.“
Þórir segir þennan tíma eiga
að geta verið ánægjulegan þar
sem fólk eigi skilið að njóta lífs-
ins út í ystu æsar á ævikvöld-
inu. „Það er ótrúlegt hvað fólk
getur fundið sér skemmtileg
verkefni og sumir segja þegar
þeir hætta launavinnunni að
þeir hafi aldrei á ævinni haft
eins mikið að gera og notið lífs-
ins í jafn ríkum mæli. En hinir
eru líka til sem vita ekki sitt
rjúkandi ráð. Bókin á að geta
verið aðstoð öllum þeim sem
standa frammi fyrir þessum
tímamótum.“
edda@frettabladid.is
Hvað á að gera að
lokinni starfsævi?
Starfslok eru mikil tímamót í lífi einstaklinga. Mikilvægt er að þeir
sem þurfa fái hjálp til að mæta breytingunni og læri að njóta ævi-
kvöldsins, en engin ein uppskrift hentar öllum.
ÞÓRIR S. GUÐBERGSSON
Gaf nýverið út bókina Lífsorku, bók um lífsstíl, starfslok og góða heilsu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Heimsendingar og sótt!
A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r
Grensásvegur 12
533 2200
SPRENGITILBOÐ!
12“ pizza
m/3 áleggstegundum
690 kr.
16“ pizza
m/3 áleggstegundum
990 kr.
18“ pizza
m/3 áleggstegundum
1.190 kr.
EF SÓTT
EF SÓTT
EF SÓTT
Með veðurstöðinni spáir þú
sjálfur í veðrið. Veðurstöðin,
sem er dönsk hönnun frá Jacob
Jensen, samanstendur af eining-
um sem hver og einn getur rað-
að saman eftir því hvaða mæli-
tæki nýtast honum best. Í veður-
stöðina er hægt að fá rakamæli,
loftvog, hitamæli úti og inni,
þráðlaust, klukku og vekjara og
kostar hver eining frá 5.100 kr.
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
Nýtt - Jacob Jensen hönnun - Nýtt
ALLIR
Á SKAUTA!
Skautaholl.is