Fréttablaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 28
28 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
í sveitasælunni
Jólahla›bor›
Hátíðin hefst með gistingu og glæsilegu
jólahlaðborði í friðsælu umhverfi.
Bor›pantanir í síma 486 6630 /
fludir@icehotel.is
Bor›apantanir í síma 480 2500 /
selfoss@icehotel.is
4.200 kr.Jólahlaðborð
Hótel Selfoss 14. des.
Jólahlaðborð fyrir tvo ásamt
gistingu í tveggja manna
herbergi með morgunverði
13.500 kr.
4.200 kr.Jólahlaðborð
Hótel Flúðir 13. des.
Jólahlaðborð fyrir tvo ásamt
gistingu í tveggja manna
herbergi með morgunverði
15.800 kr.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
n
m
0
8
1
7
6
/
s
ia
.i
s
Uppáhaldsjólaskraut:
Rússnesk jólakúla með feitum kalli
JÓLASKRAUT „Mér dettur auðvitað
strax í hug kúla sem ég átti í 40 ár,
en er nýbúin að henda,“ segir Mar-
grét Birgisdóttir myndlistarkona.
„Heimilisfólkið kallaði hana rúss-
nesku jólakúluna vegna þess að á
henni var mynd af stórum feitum
kalli og höfuðið mótað ofaná, svona
rússneskur burgeis. Kúlan var
brotin eftir að hafa dottið í gólfið,
en ég var búin að fylla hana með
bómull og notaði hana þangað til
ekki varð lengur hjá því komist að
hún færi í ruslið.“
Margrét segist vera heilmikið
jólabarn. „Jólastemningin kemur
auðvitað þegar ég er búin að setja
upp aðventukrans sem ég hengi
upp í loftið hjá mér. Það er sami
kransinn ár eftir ár, bara nýtt
greni og slaufur. Hann er sannkall-
að stofustáss.“
Margrét er mjög íhaldssöm
þegar kemur að jólahaldi og eltir
enga tísku. „Ég brá reyndar út af
vananum núna og hafði hvíta
borða og hvít kerti, en ég teygi mig
ekki út fyrir hvítt, grænt og rautt
þegar kemur að jólaskrauti.“ Hún
segist ekki skreyta sérstaklega
mikið. „Það er ekkert hlaðið, yfir-
leitt bara það sama og hefur verið
í gangi undanfarin 15 ár. Það er þá
gjarnan sett á sömu staðina, ekki
síst hlutir sem stelpurnar mínar
hafa búið til í skólanum í gegnum
tíðina. Þetta er allt frekar tilfinn-
ingatengt.“ ■
Gefðu mér gott í skóinn
Nú fer að líða að því að íslensku jólasveinarnir komi til byggða með
gjafir handa góðum börnum. Vonandi gæta þeir þess að skipta
varningi sínum bróðurlega á milli allra að þessu sinni.
Flestir kannast við það þegarjólasveinninn laumast að nætur-
lagi að glugga lítilla barna og lætur
óvæntan glaðning í skóinn þeirra.
Þessi siður hefur verið við lýði á Ís-
landi síðan snemma á síðustu öld en
hefur þróast og breyst töluvert í
tímans rás. Hefðin er uppruninn
suður í Evrópu. Þar var hún bundin
við nafndag heilags Nikulásar sem
lét gjafir í skóna hjá öllum aðfara-
nótt 6. desember. „Skórinn var tákn-
mynd fyrir skip Nikulásar, sem var
verndari sjómanna,“ segir Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur.
„Eftir siðaskiptin vildu lútherskir
ekki að gjafir kæmu frá kaþólskum
dýrðlingi og því færðu þeir gjafa-
hefðina yfir á jólin. Þannig má segja
að sá siður að gefa jólagjafir hafi
orðið til.“
En Nikulás reyndist þrautseigur
og kemur færandi hendi enn í dag
víða í löndum mótmælenda ekki síð-
ur en kaþólskra. Það var þó ekki
fyrr en á síðustu öld sem þessi hefð
birtist í einhverri mynd á Íslandi.
„Íslenskir sjómenn sem sigldu á
Norðursjávarhafnirnar á 3. ára-
tugnum kynntust þessum sið og
fluttu hann til Íslands. Til að byrja
með þekktist þetta aðeins hjá ein-
staka sjómannsfjölskyldum en með
aukinni velmegun eftir síðari
heimsstyrjöld varð bylting á þessu
sviði.“
Þegar þarna var komið sögu
höfðu orðið ýmsar breytingar á ís-
lenskum jólasiðum almennt, ekki
síst hvað varðaði íslensku jólasvein-
ana. Þeir höfðu upphaflega verið
hrekkjóttir og illkvittnir en voru
farnir að mýkjast upp og líkjast
meira starfsbræðrum sínum er-
lendis. Sveinarnir tóku því vel í það
að taka að sér að færa börnum gjaf-
ir í skóinn á aðventunni. Á ýmsu
gekk þó fyrst um sinn þar sem þeir
virtust ekki geta komið sér saman
um hvenær bæri að hefja leikinn og
hversu gjafmildir þeir ættu að vera.
Þetta misræmi skapaði töluverða
ólgu meðal barna og forráðamanna
þeirra.
„Þetta var allt tóm vitleysa og á
endanum fóru ömmur að hringja
upp á Þjóðminjasafn og kvarta.
Börnin voru að bera sig saman í
skólanum og þá kom í ljós að sum
höfðu fengið stórar gjafir á meðan
önnur höfðu ekkert fengið,“ segir
Árni. Í framhaldi af því var þeim til-
mælum beint til hlutaðeigandi aðila
að miðað yrði við fjölda jólasvein-
anna þannig að sá fyrsti kæmi til
byggða 13 dögum fyrir jól og færði
börnunum aðeins smágjafir. Með
tímanum tóku sveinarnir það upp
hjá sér að gefa óþekkum börnum
kartöflu í skóinn og ber það vott um
að þeirra fyrra eðli sé ekki með öllu
horfið.
Um árabil hefur tekist að halda í
þessar óskráðu reglur og gæta sam-
ræmis að miklu leyti. En með aukn-
um áhrifum erlendis frá og breytt-
um samfélagsháttum virðist sem
komið sé los á þessa hefð að nýju.
Víða á heimilum hefur verið tekinn
upp sá siður að vera með jóladaga-
tal með pökkum og fá börnin þá gjöf
á hverjum degi frá 1. desember. Síð-
an birtast jólasveinarnir um miðjan
mánuðinn og bæta um betur. Eðli og
umfang gjafanna er í dag orðið æði
misjafnt og má velta því fyrir sér
hvort ekki sé ástæða til þess að
sveinarnir fari að bera saman bæk-
ur sínar á nýjan leik.
brynhildur@frettabladid.is
Þeir eru að
koma!
JÓLASVEINAR Í nótt er komið að því,
fyrsti jólasveinninn kemur til
byggða og laumar góðgæti í skó
þægra barna – og þá kartöflu í skó
óþekktarorma. Margir krakkar
kjósa að hafa vaðið fyrir neðan sig
og skrifa jólasveininum bréf. Þá
er betra að vera með það á hreinu
hvenær hver um sig er á ferðinni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er dagskrá jólasveinanna
á þessa leið:
12. desember: Stekkjastaur
13. desember: Giljagaur
14. desember: Stúfur
15. desember: Þvörusleikir
16. desember: Pottaskefill
17. desember: Askasleikir
18. desember: Hurðaskellir
19. desember: Skyrjarmur
20. desember: Bjúgnakrækir
21. desember: Gluggagægir
22. desember: Gáttaþefur
23. desember: Ketkrókur
24. desember: Kertasníkir
MARGRÉT BIRGISDÓTTIR
Átti uppáhalds jólakúlu sem ekki varð
lengur komist hjá að henda.
Ínótt kemur fyrsti jólasveinninntil byggða svo nú geta börnin
farið að hlakka til. Svo eru allar
þær bækur sem væntanlegar eru
fyrir jólin þegar komnar út og
ekki seinna vænna að fara að
kynna sér hvað er á boðstólum.
Því er gráupplagt að rölta í næstu
bókabúð, glugga í nokkrar áhuga-
verðar bækur og taka upp veskið
ef eitthvað fangar hugann. Í leið-
inni er tilvalið að kaupa nokkrar
bækur til gjafa ef sá er gállinn á
manni. ■
13 DAGAR TIL JÓLA
GLAÐNINGUR Í SKÓNUM
Fátt er skemmtilegra en að kíkja í skóinn á
morgnanna og sjá hvað jólasveinninn hef-
ur komið með um nóttina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Jólagjöf skotveiði-
mannsins í ár!
Til afgreiðslu strax fyrir fimm og sjö
byssur. Viðurkenndir af skotvopna-
eftirliti.
Öflugir skápar
með vönduðum
læsingarbúnaði.
Heildsöluverð
aðeins kr.
39.900.- m. vsk.
Varðveisla skotvopna er alvörumál.
Frí heimkeyrsla í Reykjavík
og á Akureyri fram að jólum.
GAGNI Heildverslun
Hafnarstræti 99–101, Akureyri
S. 461-4025 GSM 461-4026
gagni@gagni.is www.gagni.is
Visa – EURO