Fréttablaðið - 11.12.2002, Page 30
30 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
VERÐLAUNAHAFI „Það fylgir því
mikil ábyrgð að vera orðinn bjart-
sýnishafi ársins,“ segir rithöfund-
urinn Andri Snær Magnason, sem
hlaut Íslensku bjartsýnisverð-
launin á mánudaginn. Verðlaunin
voru fyrst veitt árið 1982 að frum-
kvæði danska athafnamannsins
Peter Bröste og verðlaunahafarn-
ir, sem alltaf eru ungir íslenskir
listamenn, eru því komnir á annan
tuginn. „Þegar maður lítur til
baka yfir hópinn getur maður
ekki annað en verið auðmjúkur
yfir því að fá að vera með en
þarna eru menn eins og Friðrik
Þór Friðriksson og Einar Már
Guðmundsson.“
Bröste stofnaði til verðlaun-
anna eftir opinbera heimsókn Vig-
dísar Finnbogadóttur, þáverandi
forseta Íslands, til Danmerkur en
þá þóttu þær fara á kostum hún og
Margrét Þórhildur drottning. „Það
ríkti mikið þunglyndi í Danmörku
á þessum árum og kjarnorkuógnin
var áberandi með langdrægum og
skammdrægum eldflaugum í öll-
um hornum. Margrét hafði verið
mikið til baka en þegar Vigdís
kom sneru þær þessu upp í glens
og grín, meðal annars á blaða-
mannafundum. Þær sneru ástand-
inu í Danmörku alveg við og
Bröste ákvað þá að búa til verð-
laun til að styrkja íslenska lista-
menn og þau hafa síðan dreifst
nokkuð jafnt á allar listgreinar.“
Andri Snær hefur gefið út sex
bækur en fyrsta skáldsaga hans
fyrir fullorðna, LoveStar, kom út í
haust. Hann gerir ekki ráð fyrir að
skrifa mikið í desember enda fer
mestur tími hans í að fylgja bók-
inni eftir.
Andri Snær segist vera með
um fimm meginhugmyndir í koll-
inum og gerir ráð fyrir að setjast
við skriftir í janúar. „Ég sé svo til
hver þeirra kallar fastast eða læt
bara vaða á eina. Það er ekkert
ákveðið en það eru tvær barna-
bækur í sarpinum.“ Rithöfundur-
inn bjartsýni býr með fjölskyldu
sinni í Glaðheimum þar sem hann
unir hag sínum vel. „Ég er tveggja
barna faðir í Glaðheimum, með
fimm ára strák og níu mánaða
stelpu sem byrjaði að vera til um
svipað leyti og LoveStar.“ ■
ÁFANGI
55 ÁRA Rithöfundurinn og útvarps-
konan Auður Haralds fyllir 55 ár í
dag. „Yfirleitt býð ég nú vinum í
mat í tilefni dagsins en sleppi því
að þessu sinni,“ segir Auður en
bætir við að hún muni elda fyrir
börnin sín. Auður segist hafa
gaman af því að gefa fólki að
borða því henni líði eins og hún sé
að bjarga lífi þess og telur þá sem
njóta veitinga hennar vera sama
sinnis. Annars viðurkennir Auður
að hún sé farin að finna fyrir
sömu afmælisþrautum og móðir
sín, sem auk þess að standa í jóla-
undirbúningi og reka eigið fyrir-
tæki þurfti að standa í að skipu-
leggja afmæli á sama tíma. „Þetta
endaði með því að hún gleymdi af-
mælinu einn daginn,“ upplýsir
Auður og bætir við að það hafi
ekki vakið mikla lukku hjá barn-
inu. „Ég hef líka heyrt margar
raunasögur desemberafmælis-
barna undanfarið. Ég vil setja
kynlífsbindindi í mars til að koma
í veg fyrir slíkt.“
Auður er á kafi í jólaundirbún-
ingi um þessar mundir eins og
meirihluti landsmanna. „Ég er að
föndra jólagjafirnar sem ég gef,“
segir hún en vill ekki gefa dæmi
um hvað það er. „Þá yrði þetta
eins og þegar Englandsdrottning
fer í búðir að kaupa jólagjafir. Það
myndu allir vita hvað þeir eiga að
fá í gegnum fjölmiðlana.“ Þá bak-
ar Auður einnig smákökur. „Ég
baka það sem börnin mín vilja,“
segir hún. „Þau verða svo að taka
afleiðingunum af því að borða
svona fitandi mat.“
Aðspurð að því hvort hún sé
mikið jólabarn svarar Auður bæði
játandi og neitandi, þetta sé svona
ástar/haturs samband. Henni líði
vel um jólin en hins vegar sé tím-
inn fram að þeim strembinn með
sinni vinnu, álagi og útgjöldum.
Þá tekur Auður líka fram að hún
haldi heiðin jól. „Hjá mér og dótt-
ur minni eru jólin hátíð ljóssins en
ekki frelsarans þar sem dagsbirt-
an fer að aukast.“ ■
Auður Haralds á afmæli í dag. Að þessu
sinni ætlar hún ekki að gera neitt sérstakt.
Hún er á kafi í jólaundirbúningi og
segist halda heiðin jól.
Afmæli
Kynlífsbindindi í marsmánuði
FINNUR FYRIR AFMÆLISÞRAUTUM
MÖMMU
Auður segir það lítið skemmtilegt að eiga
afmæli í miðri jólaösinni í desember.
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 ágeng, 2 fen, 3 sprotar, 4 hengilmæna, 5 kveinstafir, 6 ökumann, 7
skrifara, 8 espaði, 11 staurar, 14 lyktar, 16 hirðuleysingjana, 18 kvabb, 20 vargs,
21 aflið, 23 skipbrot, 26 bátar, 28 frumeind, 30 eirir, 31 útlims, 33 óhreinki.
LÁRÉTT:
1 rúm,
4 breiðar,
9 bákn,
10 rækti,
12 virðing,
13 sárin,
15 hnjóð,
17 lengdarmál,
19 upphaf,
20 hvassviðri,
22 flanaði,
24 skjól,
25 afturenda,
27 blaða,
29 óttann,
32 inn,
34 álpast,
35 reikningnum,
36 þvalir,
27 kona.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hret, 4 ásakar, 9 lúmskur, 10 sónn, 12 tóra,
13 skadda, 15 afla, 17 rýrt, 19 túr, 20 argar, 22 raski, 24 fró, 25 skúr, 27 riðs, 29
eikina, 32 Ævar, 34 aðan, 35 raulaði, 36 skirra, 37 Inga. Lóðrétt: 1 hass, 2 elna, 3
túndra, 4 ástar, 5 skó, 6 aura, 7 krafts, 8 rakari, 11 ókyrri, 14 dýrs, 16 lúkuna, 18
trúi, 20 afreks, 21 góðæri, 23 arkaði, 26 kerla, 28 svar, 30 iðin, 31 anda, 33 aur.
Bjartsýnismaður
í Glaðheimum
Andri Snær Magnason rithöfundur hlaut
Íslensku bjartsýnisverðlaunin á mánudag.
Glæsileg ítölsk leðursófasett
Model IS 1000 3+1+1og 3+2+1
Litir: Koníaksbrúnt, antikbrúnt,
Burgundy rautt, svart og ljóst
Verð frá aðeins kr. 198.000
Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–16 og sun. 13–16
– gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.
Sími 565-1234
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik • sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
ANDRI SNÆR MAGNASON
„Tónninn í LoveStar er ekki
beinlínis bjartsýnn þannig
að það er svolítið írónískt
að ég fái verðlaunin núna.
Verðlaunin og bókin eru
ekki alveg í stíl en þannig á
þetta líka að vera.“FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI