Fréttablaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 2
2 20. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Magnús Ólafsson er landskunnur skemmtikraftur
og hefur í gegnum árin margsinnis komið fram í
gervi vinsæls jólasveins.
Já, hann er til og ég hef hitt hann. Hann er
mikill vinur minn eins og allra barna.
SPURNING DAGSINS
Er jólasveinninn til ? Þreifingar hafnar um lausn á deilunni:
Hriktir í stoðum Reykjavíkurlistans
STJÓRNMÁL Samstarfið innan
Reykjavíkurlistans hefur aldrei
staðið eins völtum fótum og þessa
stundina. Samstarfsmenn Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra úr röðum Vinstri
grænna og Framsóknar eru æfir
yfir áformum hennar um að fara í
þingframboð fyrir Samfylkinguna
og finnst borgarstjóri hafa komið
aftan að þeim.
Það sem hefur farið sérstak-
lega fyrir brjóstið á Framsóknar-
mönnum og Vinstri grænum er að
búið hafi verið að tilkynna um að
Ingibjörg tæki fimmta sætið áður
en hún var búin að tilkynna sam-
starfsmönnum sínum um það.
Kunna þeir henni og Össuri
Skarphéðinssyni, formanni Sam-
fylkingar, litlar þakkir fyrir það.
Það heyrðist á sumu Samfylk-
ingarfólki í gær að Össur hefði
gert illt verra með því að fara svo
snemma í fjölmiðla með fréttina,
það breyti því þó ekki að tíðindum
um þingframboð hennar hefði
alltaf verið illa tekið af samstarfs-
flokkunum. Einn orðaði það svo að
menn mættu gera sér grein fyrir
því að hvernig sem staðið hefði
verið að kynningunni hefði alltaf
verið ráðist að henni með
sprengjuárásum úr öllum áttum.
Eftir stendur að R-listasam-
starfið er erfiðara en það hefur
áður verið. Menn voru farnir að
þreifa fyrir sér þegar í gær um
hvernig mætti leysa vandann sem
er kominn upp. Viðmælendur
gerðu sér þó ekki grein fyrir því í
gær hvernig það ætti að takast,
skaðinn væri þegar orðinn veru-
legur. ■
STJÓRNMÁL „Þetta kemur mér ekki
alveg á óvart vegna þess að ég tel
að þetta hafi
blundað með Sam-
fylkingunni lengi.
Hins vegar virðist
Samfylkingin ekki
gera sér grein fyr-
ir því að borgar-
stjórinn er for-
ystumaður og
sameiningartákn
þriggja flokka í borgarstjórn-
inni,“ segir Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins,
um þá ákvörðun Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra að
taka 5. sæti á lista Samfylkingar-
innar í Reykjavík fyrir næstu al-
þingiskosningar.
„Og það gengur ekki að hún
fari á fullan kraft í landsmálapóli-
tík og ætli sér í sæti sem formað-
ur Samfylkingarinnar kallar bar-
áttusæti í Reykjavík. Þetta er ekki
samrýmanlegt og hlýtur að skapa
trúnaðarbrest milli flokkanna í
þessu samstarfi. Þetta ætti að
vera hverjum manni ljóst en ein-
hverra hluta vegna þá virðist
Samfylkingin ekki hafa haft nein-
ar áhyggjur af þessu, ekki síst
með tilliti til þess að ákvörðunin
var tilkynnt af formanni flokksins
í útvarpinu, ekki af borgarstjór-
anum,“ segir Halldór en vill ekki
kalla ákvörðun Ingibjargar svik
við kosningabandalag R-listans.
„Ég ætla ekki að taka mér nein
slík orð í munn en hún hefur tekið
sína ákvörðun og við virðum hana.
Nú hefur hún ákveðið að taka einn
flokkinn fram yfir hina með mjög
afgerandi hætti,“ segir Halldór og
bætir við að R-lista samstarfið sé
allt annað en áður.
„Það er ekkert sambærilegt.
Og Samfylkingin verður að gera
sér grein fyrir því. Ef forystu-
maður kosningabandalagsins
hefði komið frá Framsóknar-
flokknum þá er ég alveg viss um
það að Samfylkingunni hefði þótt
það ósamræmanlegt að sá for-
ystumaður væri jafnframt í
harðri baráttu í landsmálum. Og
ég tel að þarna sé um sjálfsblindni
Samfylkingarinnar að ræða því
um leið og Ingibjörg Sólrún tók
þessa ákvörðun þá varð hún hluti
af Samfylkingunni. Hún er í
stjórnmálum á vegum Samfylk-
ingarinnar en stendur ekki utan
stjórnmálanna eins og stundum
kemur fram,“ segir Halldór og
leynir því ekki að traust hans til
Ingibjargar Sólrúnar sem stjórn-
málamanns er ekki samt og áður.
„Ég hef borið fullt traust til
hennar og stutt hana af heilum
hug. Nú hefur hún tekið nýja
ákvörðun. Þar með hefur að sjálf-
sögðu orðið mikil breyting,“ sagði
Halldór Ásgrímsson.
the@frettabladid.is
Deilur innan
Reykjavíkurlistans:
Uppnám í
Ráðhúsinu
STJÓRNMÁL „Ég tel að það hafi bitnað
mjög harkalega á borgarbúum að
þetta fólk hafi verið við völd í átta
ár, ekki batnar það
við þetta,“ segir
Björn Bjarnason,
oddviti Sjálfstæð-
ismanna í borgar-
stjórn, um deilurn-
ar í Reykjavíkur-
listanum. Hann
segir að það auð-
veldi ekki stjórn
borgarinnar að
þeir sem standi að
meir ih lu tanum
hafi lýst því yfir
að borgarstjóri eigi að víkja.
„Við buðum okkur hér fram til
að taka að okkur þau verkefni sem
felast í því að vera í borgarstjórn,“
segir Björn aðspurður um hvort
Sjálfstæðismenn séu reiðubúnir í
meirihlutasamstarf með öðrum.
„Við skorumst ekki undan
ábyrgð.“ ■
Borgarstjóri í tómarúmi:
Tryggði ekki
baklandið
STJÓRNMÁL Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi Frjálslyndra og
óháðra, segir að sér sé svolítið
brugðið vegna þróunar mála í
samstarfi flokkanna sem standa
að Reykjavíkurlistanum.
„Ég er hissa á því að jafn hæfi-
leikaríkur stjórnmálaleiðtogi og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi
ekki verið búin að undirbúa bak-
landið betur,“ segir hann. Nú
skapist tómarúm. Ingibjörg Sól-
rún hafi verið kjarninn og límið í
Reykjavíkurlistasamstarfinu.
Ólafur veltir fyrir sér hvað
Framsóknarmenn geri. „Þeir hafa
alltaf getað unnið með öllum í
þeim tilgangi að verja hagsmuni
flokksins.“ ■
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Það er alveg ljóst að borgarstjóri getur ekki
vænst þess að halda í borgarstjórastólinn
fari hún í framboð.
Borgina eða þingið:
Kristaltær
krafa
STJÓRNMÁL Það er kristaltært að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun
ekki gegna embætti borgarstjóra
áfram ef hún heldur fast við það
að fara í þingframboð fyrir Sam-
fylkinguna. „Já, það er svo,“ sagði
Alfreð Þorsteinsson, oddviti
Framsóknarmanna í borgarstjórn,
þegar hann var spurður hvort
túlka ætti yfirlýsingu Framsókn-
armanna og Vinstri grænna með
þessum hætti.
Eftir að hafa fundað með borg-
arstjóra og kynnt henni afstöðu
samstarfsflokka Samfylkingar
sagði Alfreð að afstaða þeirra
hefði ekkert breyst. ■
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Ingibjörg Sólrún getur farið í framboð og
gegnt starfi borgarstjóra áfram.
Deilan leyst síðar:
Segir ekkert
liggja á
STJÓRNMÁL Stefán Jón Hafstein,
oddviti Samfylkingar í borgar-
stjórn, segir enga ástæðu til að
leysa strax þann vanda sem er
kominn upp í tengslum við þing-
framboð Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra. Hann
sagðist telja að R-listafólk gæti
vel gefið sér tíma til að anda ró-
lega og fara fyrir stöðuna. Það
væri svo hægt að vinna úr stöð-
unni sem upp er komin eftir jól og
áramót.
Þrátt fyrir skýrt orðalag yfir-
lýsingar fulltrúa VG og Fram-
sóknar og yfirlýsingar þeirra
neitaði Stefán Jón að taka undir
að um afarkosti væri að ræða.
Hann sagðist enn fremur líta svo
á að Ingibjörg Sólrún gæti farið í
framboð og setið áfram sem borg-
arstjóri. ■
BORGARSTJÓRI
SAGÐUR BREGÐAST TRAUSTI
Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
voru á einu máli um að borgarstjóri hefði
brugðist loforðum sem voru gefin þegar
samið var um Reykjavíkurlistasamstarfið. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Segist hafa borið fullt traust til Ingibjargar Sólrúnar og stutt hana af heilum hug. Ákvörðun
hennar breyti hins vegar heilmiklu.
„Þetta er ekki
samrýmanlegt
og hlýtur að
skapa trúnað-
arbrest milli
flokkanna.“
Sjálfsblindni Sam-
fylkingarinnar
Formaður Framsóknarflokks segir ákvörðun borgarstjóra um þing-
framboð ekki koma á óvart. Vill ekki tala um svik en segir borgarstjóra
hafa tekið einn flokk fram yfir aðra í R-lista. Ákvörðun borgarstjóra
hafi skapað trúnaðarbrest milli flokka og einstaklinga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
BJÖRN
BJARNASON
Til í að stjórna
borginni ef R-
listinn springur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Össur undrast viðbrögðin:
Úrelt flokksræðishugsun
STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingar, segir við-
brögð forystumanna samstarfs-
flokka Samfylkingar í borgar-
stjórn við þingframboði borgar-
stjóra vera úr öllum takti við stað-
reyndir málsins.
„Ég er undrandi á þeirri úreltu
flokksræðishugsun sem birtist í
forystumönnum samstarfsflokka
minna,“ segir Össur. „Þeir vilja
neita öflugum stjórnmálamanni
um þau einföldu mannréttindi að
fá að styðja þann flokk sem hún
hefur tilheyrt og alltaf lýst yfir
stuðningi við.“
Össur vildi ekki taka undir að
betra hefði verið að standa að
ákvörðun um framboð borgar-
stjóra með öðrum hætti. Hún tæki
sæti sem aðrir hefðu talið fjarri
að dygði til þingsetu, það horfði
öðru vísi við ef hún tæki að sér 1.
sætið eins og rætt var í haust. ■
ÖSSUR
Furðar sig á því að
formaður VG telji
framboð borgar-
stjóra draga úr
líkum á vinstri
stjórn. „Almennt
eru menn ekki
lafmóðir á
hlaupum eftir að
komast í stjórn
með VG.“