Fréttablaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 20. desember 2002 Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Pelsar frá 12.900 Mokkajakkar og kápur Tilboð á vendipelsum – áður kr. 24.900 – nú 12.500 Hattar, húfur og kanínuskinn kr 2.900 Að sögn Sigurðar Kára Krist-jánssonar, lögfræðings og verðandi frambjóðanda Sjálfstæð- isflokksins til alþingis í vor, er jólamaturinn hefðbundinn, eins og hann hefur verið síðan hann var krakki. Hann lýsir matseðlinum: „Í forrétt er dýrindis súpa sem pabbi sér um að gera. Um er að ræða rjómalagaða sveppasúpu af ein- hverju tagi sem er alveg meirihátt- ar, enda pabbi menntaður kokkur. Í aðalrétt er síðan hamborgarhrygg- ur með þessu klassíska meðlæti, brúnni sósu, brúnuðum kartöflum og waldorf salati svo eitthvað sé nefnt. Í eftirrétt er síðan heimalag- aður ís að hætti mömmu með heitri súkkulaðisósu. Algjör sprengja sem maður liggur kylliflatur eft- ir.“ Sigurður Kári er mjög sáttur við matinn og sér ekki fram á geta hugsað sér að breyta þessari hefð um ókomna framtíð. ■ Heima- lagaður ís í eftirrétt SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON Vill halda í hefðbundinn jólamat foreldra sinna um ókomna framtíð. Jólamaturinn minn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.