Fréttablaðið - 20.12.2002, Page 4
4 20. desember 2002 FÖSTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Heldur þú að Ingibjörg Sólrún
nái inn á þing í vor?
Spurning dagsins í dag:
Á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að víkja
úr embætti borgarstjóra?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
3,6%
48,6%Nei
47,8%
SKIPTAR
SKOÐANIR
Kjósendur eru
ekki einnar skoð-
unar um hvort
borgarstjóri nái
kjöri til Alþingis í
vor.
Veit ekki
Já
KJARADÓMUR „Þetta er nokkuð djarft
og vel í lagt hjá Kjaradómi þegar
horft er til þess að almennar launa-
hækkanir um áramót verða 3,15%,“
sagði Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands,
vegna úrskurðar Kjaradóms um
hækkun launa æðstu embættis-
manna þjóðarinnar.
Kjaradómur hefur ákveðið að
laun embættismanna, annarra en
forseta Íslands, hækki um 7% frá
og með áramótunum. Laun forset-
ans hækka um 3%. Eftir hækkun
verða laun forsetans 1.460 þúsund á
mánuði, forsætisráðherra 730 þús-
und og annarra ráðherra 660 þús-
und, að meðtöldu þingfararkaupi.
Laun Hæstaréttardómara og Ríkis-
saksóknara verða 480 þúsund og
forseta Hæstaréttar 530 þúsund.
Þingfararkaup verður tæplega 370
þúsund.
Í úrskurði kjaradóms segir með-
al annars að dómurinn telji að enn
sé óbætt nokkur launahækkun sem
opinberir starfsmenn hafa notið á
grundvelli kjarasamninga sem rík-
ið hefur gert við starfsmenn sína.
Hins vegar hafi verið ákveðið að
laun forseta Íslands taki sömu al-
mennu hækkun og önnur laun um
áramótin, með hliðsjón af sérstakri
ákvörðun sem tekin var um laun
forseta í júlí árið 2000.
„Þetta er svolítill leikur að eldin-
um en vonandi er þetta reykurinn
af réttunum sem almennir launa-
menn njóta á næsta ári,“ sagði Hall-
dór Björnsson. ■
Laun æðstu embættismanna hækka um 7% um áramót:
Vel í lagt segir verkalýðshreyfingin
HALLDÓR BJÖRNSSON
Þykir vel í lagt hjá kjaradómi. Segir hækkun-
ina úr takti við þær hækkanir sem almennir
launamenn fá um áramótin.
SKATTAR Rúmlega 152 þúsund ein-
staklingar hafa nýtt sér frádrátt
vegna hlutafjárkaupa frá árinu
1985. Frádrátturinn á tímabilinu
nemur samanlagt 18,5 milljörðum
króna og er þá reiknað út frá verð-
lagi hvers árs fyrir
sig. Framreiknuð
nemur upphæðin
yfir 20 milljörðum.
Fram til ársins 1989
voru engin skilyrði
um eignarhaldstíma
á keyptum hluta-
bréfum. Menn gátu
þá keypt hlutabréf á
gamlársdag og selt í byrjun nýs árs
en samt fengið skattaafslátt. Þessu
var breytt 1990 og sett sem skilyrði
að menn ættu bréfin í 2 ár. Tíminn
var svo lengdur 1992 í 3 ár og árið
1997 var sett að skilyrði að menn
eigi hlutabréfin yfir 5 áramót vilji
þeir nýta sér skattaafslátt. Reynd-
ar fer hver að verða síðastur, frá-
dráttarheimildin fellur niður um
áramótin.
Hámarksfrádráttur hefur
breyst nokkuð gegnum árin, var 72
þúsund krónur í upphafi, hækkaði
nokkuð í lok níunda áratugarins og
var hæstur tæpar 126 þúsund
krónur hjá einstaklingi. Nú eru
60% hlutabréfakaupa frádráttar-
bær, þó að hámarki 80 þúsund
krónur hjá einstaklingi eða 160
þúsund hjá hjónum. Þeim sem
nýttu sér skattaafsláttinn vegna
hlutabréfakaupa fjölgaði umtals-
vert þegar hámarksfrádrátturinn
var hækkaður1990. Það ár nýttu
rúmlega 24 þúsund einstaklingar
sér heimildina og nam frádráttur-
inn tæplega 1.700 milljónum króna
á verðlagi þess árs. Hlutafjárkaup
einstaklinga drógust saman árin á
eftir en jukust svo á ný um miðjan
tíunda áratuginn. Frádrátturinn
hefur numið 1,5 til ríflega 2 millj-
örðum króna og hafa 15 til 20 þús-
und manns nýtt sér afsláttinn síð-
ustu ár. Í fyrra dró hins vegar um-
talsvert úr. Tæplega 7.800 manns
nýttu sér afsláttinn og frádráttur-
inn nam aðeins rúmum 800 miljón-
um. Samdrátturinn er tæplega
50%, bæði í fjölda einstaklinga og
upphæð frádráttar. Skýringanna
er að leita í gengislækkun hluta-
bréfa. Gengisþróun á hlutabréfa-
markaði gefur ekki tilefni til að
ætla að tölurnar hækki mikið fyrir
þetta ár.
Hlutabréfaeign einstaklinga var
samkvæmt skattframtölum síðasta
árs 49,1 milljarður króna, hafði
lækkað um rúman milljarð frá
fyrra ári. Fjölskyldum sem telja
fram hlutabréfaeign hefur einnig
fækkað nokkuð, þær eru nú 52.478,
fækkaði um 828 frá fyrra ári.
the@frettabladid.is
18,5 milljarðar í frádrátt
vegna hlutabréfakaupa
152 þúsund manns hafa nýtt sér frádrátt vegna hlutabréfakaupa frá árinu 1985. Rúmlega 24 þús-
und nýttu sér afsláttinn árið 1991. Hlutabréfaeign 52.500 fjölskyldna er nú rúmir 49 milljarðar
samkvæmt skattframtölum, milljarði minni en í fyrra. Frádráttarheimild vegna hlutabréfakaupa
fellur niður um áramótin.
SKATTAAFSLÁTTUR
Álagningarár Fjárfesting í Fjöldi
atvinnurekstri M.kr.
1985 24 936
1986 38 913
1987 65 1.302
1988 16 244
1989 70 741
1990 392 2.930
1991 1.669 24.340
1992 812 6.279
1993 761 6.102
1994 835 6.417
1995 1.032 7.077
1996 1.454 9.541
1997 2.660 17.535
1998 1.993 18.243
1999 2.095 21.031
2000 2.223 20.585
2001 1.553 15.125
2002 823 7.793
Samtals: 18.515 152.405
GEIR H. HAARDE
Fjármálaráðherrar síðustu 18 ára hafa séð á eftir einum milljarði króna að meðaltali á ári í
formi skattaafsláttar vegna hlutabréfakaupa einstaklinga.
Hlutabréfaeign
einstaklinga
var samkvæmt
skattframtöl-
um síðasta
árs 49,1
milljarður.
SEÚL, AP Roh Moo-hyun verður
næsti forseti Suður-Kóreu. Hann
vann nauman sigur á Lee Hoi-
chang í forsetakosningunum þar í
gær. Roh er stuðningsmaður ríkis-
stjórnarinnar, en Lee stjórnarand-
stæðingur.
Lee tapaði einnig naumlega í
forsetakosningum árið 1997. Hann
viðurkenndi ósigur sinn í gær: „Ég
gerði mitt besta, en náði ekki tak-
markinu,“ sagði hann.
Roh styður „sólskinsstefnu“ nú-
verandi forseta, Kim Dae-jungs
,gagnvart Norður-Kóreu. Sú stefna
felur í sér að bæta eigi tengslin við
Norður-Kóreu með því að efla sam-
starf ríkjanna á ýmsum sviðum.
Hann vill hins vegar að meira jafn-
ræðis gæti í samskiptum Suður-
Kóreu og Bandaríkjanna heldur en
verið hefur. Suður-Kórea verði að
rétta úr kútnum og hætta að lúta
vilja Bandaríkjanna í einu og öllu.
Vaxandi andúðar hefur gætt í
garð Bandaríkjanna í Suður-Kóreu
undanfarið, ekki síst vegna þess að
tveir bandarískir hermenn, sem
ollu dauða tveggja kóreskra
stúlkna í bílslysi, voru sýknaðir af
öllum ákæruatriðum nýverið. ■
Forsetakosningar í Suður-Kóreu:
Roh vill rétta úr kútnum
NÆSTI FORSETI SUÐUR-KÓREU
Roh Moo-hyun fagnaði sigri í gær.
Honum finnst að Suður-Kórea eigi að
vera sjálfstæðari gagnvart Bandaríkjunum
en verið hefur.
Kynferðisbrot:
Út fyrir öll
mörk
DÓMSMÁL Faðir á fimmtugsaldri hef-
ur verið dæmdur í átján mánaða
fangelsi fyrir að misnota 16 ára dótt-
ur sína kynferðislega. Stúlkan var í
heimsókn á heimili föðurins þegar
atburðurinn varð. Þau voru bæði við
drykkju. Hún sagðist hafa vaknað
við aðfarir föður síns. Hún væri
ekki fullviss um að um samfarir hafi
verið að ræða þó svo hafi virst. Fað-
irinn sagðist ekkert muna og neitaði
sök. „Með framferði sínu fór hann út
fyrir öll siðferðismörk í samskipt-
um föður og dóttur og rauf með
grófum hætti það trúnaðartraust,
sem þar á að ríkja,“ sagði Héraðs-
dómur Reykjaness. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Evrópusambandið:
Þorskverðið
hækkar og
hækkar
HALLE, AP Þorskverðið hækkar ár
frá ári í ríkjum Evrópusam-
bandsins. Á síðasta ári kostaði
kílóið í Belgíu 1.020 krónur út úr
búð, nú kostar það 1.530 krónur
og á næsta ári fer það líklega upp
yfir 2.100 krónur.
„Viðskiptavinir líta ekki einu
sinni á þorskinn minn lengur
vegna þess að hann er of dýr,“
segir Johnny Pauwels, fisksali í
Halle, skammt suður af Brussel.
Svipaða sögu er að segja frá öðr-
um Evrópusambandsríkjum, þar
sem þorskurinn hefur jafnan ver-
ið meðal ódýrustu fæðutegund-
anna. ■
ÁREKSTUR Í KÓPAVOGI Árekstur
varð á Hafnarfjarðarvegi við
Kópavogslæk um áttaleytið í
gærmorgun þegar tveir bílar
lentu saman. Ökumenn kenndu
sér báðir eymsla, annar í hné og
hinn í síðu. Báðir bílarnir urðu
óökufærir og fjarlægðir af vett-
vangi með kranabíl.
FLEIRI ÖLVAÐIR Í KÓPAVOGI Lög-
reglan í Kópavogi hafði afskipti
af tveimur ökumönnum sem
grunaðir eru um ölvun. Telur lög-
regla að miðað við árið í fyrra
hafi mun fleiri ökumenn verið
teknir ölvaðir undir stýri.
ÞRJÚ INNBROT SAMA MÁNUÐINN
Lögreglan í Kópavogi rannsakar
þrjú innbrot í fyrirtækið Tölvu-
virkni í Kópavogi í desember, tvö
þeirra framin mánudags- og
þriðjudagskvöld. Lögreglan segir
viðvörukerfi hafa farið í gang en
þjófarnir hafi ekki látið segjast.
Stolið hafi verið tölvubúnaði að
verðmæti hátt á hálfa milljón
króna.
LAUN ÆÐSTU EMBÆTTIS-
MANNA
Forseti Íslands 1.460.156
Forsætisráðherra 729.938
að meðtöldu þingfararkaupi
Aðrir ráðherrar 663.694
að meðtöldu þingfararkaupi
Forseti Hæstaréttar 528.705
Aðrir hæstaréttardómarar 480.584
Ríkissaksóknari 480.584
Biskup Íslands 464.105
Ríkissáttasemjari 459.586
Dómstjóri Héraðsdómi
Reykjavíkur 440.713
Aðrir dómstjórar 398.341
Héraðsdómarar 384.342
Umboðsmaður barna 382.468
Þingfararkaup alþingismanna 368.719