Fréttablaðið - 20.12.2002, Page 6
6 20. desember 2002 FÖSTUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Storkur einn hefur verið mikið
í fjölmiðlum að undanförnu.
Nýlega var hann fangaður og
fluttur suður. Hvað heitir stork-
urinn?
Menntafélagið ehf. er að taka
við rekstri Stýrimannaskólans.
Hvað heitir fráfarandi skóla-
meistari?
Hvaða knattspyrnukona var
valin knattspyrnumaður ársins
af Alþjóðaknattspyrnusam-
bandinu FIFA?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 82.74 0.27%
Sterlingspund 132.67 0.58%
Dönsk króna 11.44 0.22%
Evra 84.9 0.17%
Gengisvístala krónu 126,60 0,59%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 385
Velta 2.750 milljónir
ICEX-15 1.327 -0,01%
Mestu viðskipti
Tryggingamiðstöðin hf. 382.054.592
Baugur Group hf. 260.392.189
Íslandsbanki hf. 38.450.786
Mesta hækkun
Íslenskir aðalverktakar hf. 9,38%
Nýherji hf. 2,67%
Flugleiðir hf. 2,17%
Mesta lækkun
Skýrr hf. -3,64%
SÍF hf. -2,64%
Eimskipafélag Íslands hf. -2,52%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8440,7 -0,1%
Nasdaq*: 1362,7 0,1%
FTSE: 3841,4 0,2%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8387,6 0,5%
S&P*: 891,9 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
BRUNI „Ég vaknaði, fór fram úr og
sá að íbúðin var orðin full af reyk.
Ég flýtti mér út á svalir og sá hvar
slökkvilið og sjúkrabílar voru fyr-
ir utan og þá létti mér mikið,“ seg-
ir Unnur Anna Sveinbjörnsdóttir,
23 ára gömul, íbúi í Hjaltabakka 8
í Breiðholti. Eldur kviknaði í kjall-
ara fjölbýlishússins um miðnætti
í fyrrinótt og lagði mikinn reyk
inn í tvo aðra stigaganga. Skamma
stund tók að slökkva eldinn en
rýma þurfti alla þrjá stiga-
gangana. Til þess notaði
slökkviliðið körfubíla og
stiga og var íbúum hjálpað
að komast frá svölum húss-
ins. Unnur þurfti að horfa á
tæplega eins árs gamlan son
sinn í faðmi slökkviliðs-
manns sem bjargaði honum
fram af svölum á þriðju hæð.
„Þetta var afskaplega
ónotaleg tilfinning að sjá á
eftir stráknum en um leið
mikill léttir að hann væri að
komast í örugga höfn. Synin-
um leist nú ekkert of vel á
slökkviliðsmanninn sem
bjargaði honum en róaðist
um leið og hann var kominn
niður og lögreglukona tók
hann í faðminn.“ Sjálf þurfti
Unnur og sambýlismaður
hennar Edwin Boama að
klifra niður stigann.
Unnur segir íbúum stiga-
gangsins hafa verið safnað saman
í strætisvagni sem kallaður var á
vettvang. „Það kom reglulega til
okkar slökkviliðsmaður og sagði
okkur frá gangi mála. Það skiptir
okkur mjög miklu máli.“
Unnur segir fólki hafa verið í
fersku minni íkveikjutilraunin
sem gerð var í einum stigagangin-
um í Hjaltabakka fyrr í mánuðin-
um. Nú er talið að eldurinn hafi
kviknað þegar börn voru að fikta
með eld.
Einungis íbúar eins stiga-
gangsins fengu að snúa aftur til
síns heima eftir að búið var að
reykræsta. Íbúar í hinum tveimur
þurftu að gista annað hvort hjá
vinum eða ættingjum. Tveir þáðu
gistingu hjá Rauða krossinum.
Unnur segir þetta atvik ekki
setja jólaundirbúninginn í upp-
nám. Búið var að reykræsta þegar
hún sneri heim í gærmorgun eftir
að hafa gist hjá vinafólki um nótt-
ina. Hún segir ástandið í íbúðinni
vera í þokkalegu standi. Aftur á
móti væri stigagangurinn mjög
illa farinn. „Það sem manni er efst
í huga á þessari stundu er að allir
sluppu ómeiddir frá þessu,“ sagði
Unnur að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
Tuttugu íbúum var bjargað þegar eldur kviknaði í fjölbýlishúsi við
Hjaltabakka. Unnur Anna Sveinbjörnsdóttir var ein þeirra. Hún horfði
á þegar eins árs syni hennar var bjargað ofan af svölum á þriðju hæð.
ÍBÚAR Í ÖRUGGRI HÖFN
Unnur segir ónot hafa farið um sig þegar
hún horfði á eftir drengnum sínum ofan
af svölum á þriðju hæð.
FENGU ATHVARF Í STRÆTISVAGNI
Slökkviliðsmenn upplýstu íbúa
Hjaltabakka reglulega og skýrðu
þeim frá gangi mála.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
HEIMSÓKN Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, fór í opinbera
heimsókn til Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur í gær á síð-
asta úthlutunardegi nefndarinn-
ar fyrir jólin. Er þetta í fyrsta
sinn sem forseti Íslands heim-
sækir nefndina. Þegar Ólaf bar
að garði hafði myndast löng bið-
röð. Sögðu skjólstæðingar
Mæðrastyrksnefndar forsetan-
um frá því að þeir hefðu beðið í
röðinni hátt í þrjár klukkustund-
ir. Ólafur Ragnar sagðist brugð-
ið hversu margir þyrftu á aðstoð
að halda. „Það er greinilegt að
mikil fátækt er hér á landi og að
hún hefur farið vaxandi. Það var
nístandi að sjá hvað margar ung-
ar konur voru í röðinni.“
Ólafur segir að breyta þurfi
skipan samfélagsins til að koma
í veg fyrir að svona neyð endur-
taki sig á hverju ári. „Við getum
ekki haft þennan blett á því vel-
ferðarsamfélagi sem okkur öll-
um er kappsmál að ríki. Með
þessari heimsókn vildi ég kynn-
ast þessu af eigin raun. Þá munu
frásagnir fulltrúa Mæðrastyrks-
nefndar af ástandinu verða mér
alvarlegt umhugsunarefni.“ ■
MÆÐRASTYRKSNEFND HEIMSÓTT
Ólafur Ragnar Grímsson kynnti sér starfsemi Mæðrastyrksnefndar í gær. Ásgerður Jóna
Flosadóttir segir yfir 1.000 fjölskyldur hafa leitað eftir aðstoð á þeim sjö dögum sem jóla-
úthlutunin hafi farið fram. Hún segir ástandið aldrei hafa verið eins slæmt og nú í ár.
Forseti Íslands heimsótti Mæðrastyrksnefnd:
Neyðin er blettur á
velferðarsamfélaginu
Skerjafjarðarslysið:
Fá ekki afrit
lögreglu-
gagna
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík hefur hafnað kröfu réttar-
gæslumanns dánarbús fórnar-
lambs Skerjafjarðarslyssins um
aðgang að gögnum vegna lög-
reglurannsóknar á slysinu.
Löglegan segir ástæðuna þá að
málinu sé ekki lokið þar sem
ákvörðun hennar um að fella mál-
ið niður hafi verið kærð til ríkis-
saksóknara. Á þeim grundvelli er
einnig hafnað að rökstyðja sér-
staklega ákvörðunina um niður-
fellinguna.
Lögreglan segir enn fremur að
aðstandendur fórnarlambanna
séu ekki brotaþolar í málinu. Þá
hafi ekki fylgt með kröfunni upp-
lýsingar um það í hvaða skyni
gagnanna væri óskað. ■ Íbúum bjargað
fram af svölum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó