Fréttablaðið - 20.12.2002, Side 14
HEILBRIGÐISMÁL Stjórn Landspít-
ala – Háskólasjúkrahúss tók þá
ákvörðun á stjórnarfundi í gær
að segja upp samningum um
svokölluð ferliverk við lækna á
spítalanum frá og með áramót-
um. Ferliverk eru
unnin á göngu-
deildum spítalans
og fram til þessa
hafa læknar feng-
ið ákveðna upp-
hæð greidda fyrir
sum verk sem
þeir sinna á þann
hátt. Óánægja
hefur lengi verið
með þetta tvöfalda kerfi og seg-
ir Guðný Sverrisdóttir, formað-
ur stjórnar spítalans, að ekki sé
réttlátt að einungis læknar fái
greitt aukalega fyrir þessa
vinnu á meðan fleiri starfsmenn
spítalans komi að henni. „Auk
þess má spyrja þess hvers
vegna greiða eigi mönnum auka-
lega fyrir að vinna vinnuna sína.
Tryggingastofnun metur fyrir
hvaða verk er greitt og hvað
ekki. Spítalinn fær greiðsluna
frá Tryggingastofnun og lækn-
arnir fá greitt frá spítalanum.“
Nefnd á vegum spítalans
vinnur nú að því að finna lausn á
hvernig best sé að haga greiðsl-
um fyrir þessa vinnu og segist
Guðný vonast til að samningar
takist við læknana fyrir áramót:
„Mér finnst eðlilegt að öll verk
sem unnin eru innan spítalans
séu greidd í launum viðkomandi
en ekki sé um tvöfalt kerfi að
ræða.“
Í yfirlýsingu sem hefur
borist frá Læknafélagi Reykja-
víkur segir að samningum Land-
spítala við lækna hafi verið sagt
upp frá næstu áramótum af
hálfu spítalans og ekki hafi enn
verið gerðar ráðstafanir af
hálfu stjórnenda til að semja um
áframhald þeirrar þjónustu.
„Læknafélögin hafa ítrekað
ritað háttvirtum heilbrigðisráð-
herra erindi um nauðsyn sam-
ráðs til farsællar lausnar máls-
ins en til þessa hafa engar vís-
bendingar borist um móttöku
þeirra. Kjarni málsins er sá að
lög um heilbrigðisþjónustu voru
sett til þess að vernda hagsmuni
hins sjúka. Það er hlutverk
framkvæmdavaldsins að skapa
grundvöll til þess að veita á hag-
kvæman hátt þá lágmarksþjón-
ustu sem talin er nauðsynleg á
hverjum tíma. Slíkt verður ein-
ungis gert í samstarfi við þá
sem þjónustuna eiga að veita,“
segir enn fremur í yfirlýsingu
frá Læknafélagi Reykjavíkur.
bergljot@frettabladid.is
Það er mikið um að vera á vett-vangi Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar þessa dagana. En það
fer ekki mjög hátt. Alþjóðavið-
skiptastofnunin var sett á laggirn-
ar árið 1994 á grunni GATT-samn-
ingaferilsins um afnám tolla á
heimsvísu. Nú er þjónustustarf-
semin undir GATS (General
Agreement on Trade in Services).
Tekist er á um það hvernig skil-
greina skuli þjónustustarfsemi og
hvaða hlutar hennar skuli ofur-
seldir markaðslögmálunum. Sam-
tök launafólks - með samtök innan
almannaþjónustunnar í broddi
fylkingar - hafa barist fyrir því að
þessar viðræður skuli fara fram
fyrir opnum tjöldum en ekki lukt-
um. Við erum nú stödd þar í þessu
ferli að einstök ríki leggja fram
kröfur á hendur öðrum ríkjum um
hvaða þjónustugeirar verði opn-
aðir fyrir erlendri samkeppni og
settir á markað. Hugmyndin er sú
að þau reyni að ná samkomulagi
sín í milli og síðan haldi allir
áfram í sameiningu að útvíkka
grunninn.
Þegar hafa íslensk stjórnvöld
fengið kröfur frá Bandaríkja-
mönnum, Japönum og Indverjum.
BSRB vildi sjá þessar kröfur en
fékk neitun frá utanríkisráðu-
neytinu. Málinu var þá skotið til
Úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál. Með fylgdi ítarlegur rök-
stuðningur þar sem sýnt var fram
á að það væri í þágu almanna-
heilla að upplýsa og opna þessa
umræðu (bréfin er hægt að nálg-
ast á heimasíðu BSRB,
www.bsrb.is). Úrskurðarnefnd
um upplýsingamál sat með málið í
einn og hálfan mánuð áður en hún
hafnaði erindinu. Hún át hrein-
lega upp röksemdir yfirvaldsins
en skeytti engu um röksemdir
kærandans. Ef til vill var það
vegna jólaanna. Ef til vill var það
vegna undirgefni við ríkisvaldið.
Hið síðara er líklegra. Það er
áhyggjuefni hve ómálefnaleg og
veikburða nefndin er og hve höll
hún er undir yfirvaldið. Þannig
hefur hún reynst túlka lög þröngt
og í þágu stjórnvalda en ekki þeir-
ra þjóðfélagsþegna sem vilja opna
stjórnsýsluna.
Hvað GATS-viðræðurnar
snertir hefur BSRB þó haft árang-
ur af erfiði sínu. Utanríkisráðu-
neytið hefur ákveðið að birta
kröfugerðir erlendra ríkja opin-
berlega á netinu - að vísu án þess
að sundurgreina kröfur eftir þeim
löndum sem leggja kröfurnar
fram. Það er þó bitamunur en ekki
fjár svo vitnað sé í mjög athyglis-
verða yfirlitsgrein Páls Hannes-
sonar á fréttavef BSRB en Páll
hefur fylgt þessum málum eftir á
vegum samtakanna. Tekið skal
ofan fyrir utanríkisráðuneytinu
að stíga þetta skref í lýðræðisátt.
Svör utanríkisráðuneytisins við
spurningum BSRB varðandi
GATS hafa að vísu ekki verið full-
nægjandi en þeim verður fylgt
eftir í beinum viðræðum við ráðu-
neytið. Sú hætta er raunveruleg
að samfélagið átti sig ekki fyrr en
um seinan á því hve mikilvægir
þessir samningar eru. Þeir eru án
efa afdrifaríkustu samningar sem
nú fara fram í heiminum og lúta
að samfélagsmálum og eignar-
haldi á auðlindum.
Þetta eru samningarnir sem
framkölluðu mótmælin í Seattle
árið 1999 og síðar í Washington og
Prag. Að vísu hafa einnig fléttast
saman við þessi og síðari mót-
mæli gegn GATS andóf gegn
stefnu Alþjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Svo
rammt kvað að þessum mótmæl-
um að síðasti fundur Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar var haldinn
í Doha í Quatar á eyðimörk Arab-
íuskagans. Þangað komust engir
mótmælendur og nánast mátti
telja á fingrum annarrar handar
þá fulltrúa verkalýðshreyfingar
og almannasamtaka sem fengu að
vera viðstaddir fundinn. Nánast
allir voru útilokaðir sem vita hvað
er í húfi þegar einkavæðing á
vatni og öðrum sameiginlegum
auðlindum er annars vegar. Á
þessu stigi snúast átökin um hvort
GATS eigi að taka til þessara
þátta. Um þetta þarf að fara fram
lýðræðisleg umræða. Þess vegna
skiptir sköpum að samningarnir
séu fyrir opnum tjöldum svo sam-
tök launafólks geti haft áhrif á þá,
samfélaginu til hagsbóta. Sú
spurning vaknar hvers vegna
fjármálaöflin í heiminum vilja
fela umræðuna. Getur verið að
málstaðurinn þoli ekki dags-
ljósið? ■
14 20. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
LEIÐRÉTTING
Íblaðinu í gær áttu sér stað þauleiðu mistök að myndir sem
birtust með viðtölum við Guð-
mund G. Kristjánsson og Þórð
Snæ Júlíusson víxluðust. Hlut-
aðeigandi sem og lesendur
blaðsins eru beðnir velvirðingar
á þessu. ■
Það er eitthvað skondið við þessamynd: Alfreð Þorsteinsson og
Árni Þór Sigurðsson boða til blaða-
mannafundar til að lýsa yfir vilja
til að reka Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur úr embætti borgar-
stjóra. Þetta er fyndið þar sem þeir
Alfreð og Árni hefðu aldrei komist
í meirihlutasamstarf í Reykjavík-
urborg nema fyrir kjörþokka Ingi-
bjargar. Þeir eru tveir af dvergun-
um sjö. Og brottrekstrarsökin er
einnig kostuleg; hugsanlegt fram-
boð Ingibjargar í fimmta sæti á
lista Samfylkingarinnar í norður-
kjördæmi Reykjavíkur. Til að
koma sér inn í hugsanagang þeirra
Alfreðs og Árna þarf maður að sjá
stöðu Ingibjargar í R-listanum sem
eins konar pattstöðu; að hún sé
geymd í stól borgarstjóra svo hún
skaði samstarfsflokka Samfylking-
arinnar í Reykjavík ekki í þing-
kosningum.
Ingibjörg Sólrún kom inn í kosn-
ingabandalag R-listans sem fulltrúi
Kvennalistans. Síðan þá hefur
Kvennalistinn gengið inn í Sam-
fylkinguna. Það ætti því ekki að
koma félögum hennar í R-listanum
á óvart að hún sé í Samfylkingunni.
Hún hefur meira að segja sést á
myndum á landsfundum flokksins.
Það er heldur ekki til samkomulag
um að Ingibjörg skipti sér ekki af
landsmálum. Það ætti því ekki að
skemma samstarf flokkanna í R-
listanum svo framarlega sem Ingi-
björg sinnir vinnu sinni sem borg-
arstjóri.
Með því að reyna að halda Ingi-
björgu nauðugri í borginni af ótta
við að hún veiði atkvæði frá flokks-
mönnum Alfreðs og Árna sýna þeir
skammsýni – og ekki síður veik-
leika; varnarstöðu og ótta við breyt-
ingar. Það er ekkert sem segir að
framboð Ingibjargar til þings muni
leyða til verri útkomu Framsóknar
og Vinstri grænna. Jafnvel þvert á
móti. Ef Ingibjörg kemur hreyf-
ingu á kjósendur býður það upp á
sóknarfæri fyrir alla – líka Fram-
sókn og Vinstri græna. Pólitísk
valdahlutföll eru ekki föst stærð
heldur síkvika. Pólitíkin hegðar sér
eftir lögmálum sem eru líkari
skammtafræði og afstæðiskenning-
unni en eðlisfræði Newtons.
Viðbrögð þeirra Alfreðs og
Árna afhjúpa líka ákveðinn veik-
leika í sjálfsmynd Framsóknar og
Vinstri grænna. Til að koma Ingi-
björgu á þing þyrfti Samfylkingin
að hala inn rúmlega 40 prósent at-
kvæða í norðanverðri Reykjavík.
Ef þeir félagar hefðu trú á afli
sinna flokka hefðu þeir átt að hlæja
að þessari hugmynd. Með við-
brögðum sínum hafa þeir tekið
undir með albjartsýnustu Samfylk-
ingarmönnum um að það sé raun-
hæfur möguleiki að Ingibjörg nái
kosningu. ■
Dvergarnir reka Mjallhvíti
skrifar um þingframboð Ingibjargar
Sólrúnar og löngun félaga hennar í
R-listanum til að reka hana.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Glæsileg
vasaúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
formaður BSRB,
skrifar um upplýs-
ingar frá stjórn-
völdum.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Um daginn
og veginn
Utanríkisráðuneyti
í plús en Upplýsinga-
nefnd í mínus
Tvöfalt launa-
kerfi lagt niður
Guðný Sverrisdóttir segir ekki rétt að læknar
fái greitt aukalega fyrir verk sem aðrir starfs-
menn spítalans komi að. Tvöfalt launakerfi til
að flækja málin. Læknar segjast ítrekað hafa
skrifað ráðherra um farsæla lausn án árangurs.
FERLIVERK UNNIN Á GÖNGUDEILD
Læknar hafa í sumum tilfellum fengið sér-
taklega greitt fyrir komu hvers sjúklings.
„Auk þess má
spyrja þess
hvers vegna
greiða eigi
mönnum
aukalega fyrir
að vinna vinn-
una sína.“