Fréttablaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 20. desember 2002
699
Frábært
verð!
Tilboð á
grilluðum
kjúkling
alla föstudaga
ill
ll
kr/stk
Grillaður
kjúklingur
SFC
...safaríkur og bragðgóður!
Það er aspassúpan hennarmömmu og svo er það ham-
borgarhryggur. Það klikkar
aldrei,“ segir Örn Arnarson
sundkappi. Örn segir þennan
jólamat vera á boðstólnum á
hverjum jólum.
Aðspurður segist hann ekki
borða neitt sérstakt hollustufæði
yfir jólin. „Nei, ég er bara í þess-
um góða jólamat. Svo fer maður
aftur í sitt venjulega mataræði
eftir jól. Maður slappar bara af
og liggur uppi í rúmi þegar mað-
ur hefur tíma yfir jólin, hakkar í
sig nammi og lifir mjög góðu
lífi.“ ■
Örn Arnarson sundkappi:
Aspassúpan
hennar mömmu
Jólamaturinn
minn
ÖRN ARNARSON
Örn lætur hollustufæðið
eiga sig yfir jólin.
Mín eftirminni-legustu jól upp-
lifði ég í Ameríku,“
segir Nanna Kristín
Magnúsdóttir leik-
kona. Þar var hún
stödd sem átján ára
skiptinemi í Minne-
sota. „Þau eru frekar
frábrugðin jólunum
hér á Íslandi. Það
vantar svolítið þessa
heilögu stemningu
sem fólk er vant
hérna heima. Fólk er
ekkert að klæða sig
upp á heldur vaknar
á jóladagsmorgun og
klæðir sig í gallabux-
ur og bol. Þá er fólk
þarna ekki að leggja
jafn mikið upp úr
matnum eins og við
gerum hér á Íslandi.
Fólk kemur hvert
með sinn rétt og
þetta er meira svona
eins og hlaðborð,“
upplýsir Nanna
Kristín og finnst
einnig jólin þar vera
heldur stutt þar sem
þau standa aðeins
yfir jóladag.
Þá segir Nanna Kristín jóla-
gjafahefðina hjá fjölskyldunni
sem hún bjó hjá hafa verið lítið
eitt skrýtna í sínum augum. „Ég
var náttúrulega búin að fá alveg
haug af pökkum frá fjölskyldu og
ættingjum heima. Hjá banda-
rísku fjölskyldunni minni var
málið hins vegar að þar keypti
hver bara eina gjöf. Þannig var
bara ein gjöf á mann og hana fékk
fólk með því að draga miða um
hvaða pakka hver átti að fá.“ Eitt-
hvað sem virkaði mjög skrýtið
fyrir stúlku eins og Nönnu sem
var vön pakkaflóðinu sem við-
gengst hérlendis. Nanna viður-
kennir að hún hafi fengið mikla
heimþrá og langað heim í alvöru
jól. Það bjargaði hins vegar mál-
unum að fjölskyldan sem hún
dvaldi hjá er kaþólsk og þess
vegna var farið í miðnæturmessu
á aðfangadagskvöld. „Þá fann ég
fyrir heilagleika jólanna þar sem
ég sat í stórri kirkju með þúsund
logandi kertum,“ útskýrir Nanna
Kristín.
Annars tekur Nanna því rólega
þessa dagana og föndrar jólakort
og dundar við að skreyta heimilið.
„Það vill svo vel til að ég er ekki
að æfa neitt verk fyrir þessi jól
ólíkt því í fyrra þegar ég endaði á
þönum að redda jólagjöfunum á
Þorláksmessu. Nú ætla ég að
reyna að sleppa alveg við þetta
jólastress og þá kvöð sem oft
þjakar Íslendinga á þessum tíma,
bara taka þetta í rólegheitunum
og njóta,“ segir Nanna Kristín að
lokum. ■
Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona fékk
heimþrá yfir jólin í Bandaríkjunum.
Undarleg jól
í Ameríkunni
Eftirminnulegustu
jólin
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
Miðnæturjólamessan bjargaði jólunum
í Ameríkunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Vönduð
karlmannsúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
PÓSTURINN Á FERÐ MEÐ JÓLATRÉN
Pósturinn August Glienke sér um að færa 18 íbúum eyjarinnar Nordstrandischmoor við
norðurströnd Þýskalands allan varning. Hann ferðast á þessari litlu járnbraut milli lands
og eyjar og er hér að færa eyjarskeggjum jólatré.
M
YN
D
/A
P