Fréttablaðið - 20.12.2002, Side 40
40 20. desember 2002 FÖSTUDAGUR
NÝJAR BÆKUR
Flott ...
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Leaves í Rolling Stone:
Á topp tíu lista yfir falda gimsteina
TÓNLIST Bandaríska tónlistartíma-
ritið Rolling Stone velur frum-
raun íslensku sveitarinnar
Leaves sem eina af betri „óupp-
götvuðu“ útgáfum ársins. Breið-
skífan „Breathe“, sem enn hefur
ekki verið gefin út í Bandaríkjun-
um, endaði á listanum „Ten of the
Best, From Under the Radar“.
Það er ársuppgjör hins virta
blaðamanns David Fricke yfir
þær plötur sem komu út, ein-
hvers staðar í heiminum, sem
eiga eftir að brjóta sig upp á yfir-
borðið. Hann kallar plöturnar á
listanum „falda gimsteina“. Plata
Leaves kemur út í Bandaríkjun-
um á næsta ári og spáir Fricke
þeim velgengni þar í landi.
Hann segir sveitina vera hina
„raunverulegu Coldplay“ þar sem
liðsmenn séu íslenskir og leiki
fallega depurð og styðjist við
„ljúfa strauma enduróma“. Hann
segir það líka vel hugsanlegt að
Leaves sé róttækasta sveit Ís-
lands um þessar mundir. ■
LEAVES
Ummæli Fricke gætu gefið þeim
ágætis byrjun í Bandaríkjunum
en breiðskífa þeirra kemur þar
út á næsta ári.
Gjafavara
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÆKURNAR Í BÓKA-
BÚÐUM PENNANS/EYMUNDS-
SONAR (11.12- 17.12)
Kolbrún Bergþórsdóttir
JÓN BALDVIN - TILHUGALÍF
Arnaldur Indriðason
RÖDDIN
Reynir Traustason
SONJA
Óttar Sveinsson
ÚTKALL - GEYSIR ER ...
Andri Snær Magnason
LOVESTAR
Viðar Hreinsson
LANDNEMINN MIKLI
Miguel de Cervantes
DON KÍKÓTI
Helgi Skúli Kjartansson
ÍSLAND Á 20. ÖLD
Davíð Oddsson
STOLIÐ FRÁ HÖFUNDI ...
Anna Valdimarsdóttir
LEGGÐU RÆKT VIÐ ÁSTINA
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÆKURNAR Í BÓKA-
BÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR
(10.12- 16.12)
Kolbrún Bergþórsdóttir
JÓN BALDVIN - TILHUGALÍF
Jóhannes úr Kötlum
JÓLIN KOMA
Landmælingar
Á FLUGI YFIR ÍSLANDI
Andri Snær Magnason
LOVESTAR
Arnaldur Indriðason
RÖDDIN
Brynhildur Þórarinsdóttir
NJÁLA-BARNABÓK
Miguel de Cervantes
DON KÍKÓTI
Guðjón Friðriksson
JÓN SIGURÐSSON
Guðrún Helgadóttir
ÖÐRUVÍSI DAGAR
Einar Kárason
KK - ÞANGAÐ SEM...
FURÐULIST
Listamaðurinn
Ken Feingold
sýnir verk sín í
Corcoran-gall-
eríinu í Wash-
ington um
þessar mund-
ir. Þessi
áhugaverða
talandi sjálfs-
mynd í
blómapotti er
meðal verka á
sýningunni.
Vaka-Helgafell hefur gefið útbókina Ísbarnið eftir breska
rithöfundinn Elizabeth
McGregor. Bókin þykir metnað-
arfyllsta verk hennar til þessa en
hún hefur áður sent frá sér
spennusögur, smásögur og fleira.
Hún hefur fengið mikla athygli
og útgáfurétturinn var seldur til
12 landa áður en hún kláraði bók-
ina. Ísbarnið segir frá Jo Harper,
blaðakonu sem býr í Lundúnum
og fær það
verkefni að
kynna sér
hvarf forn-
leifafræðings-
ins Douglas
Marshalls á
Grænlandi,
sem hafði far-
ið þangað til
að grafast fyr-
ir um afdrif
heimskautaleiðangurs Johns
Franklins, sem hélt á norðurslóð-
ir um miðja 19. öld. Atburðarás-
in tekur brátt óvænta stefnu og
lesendur fá í senn að fylgjast
með sviptingum í einkalífi blaða-
konunnar ungu og leiðangrinum
sem farinn var fyrir hálfri
annarri öld; á báðum vígstöðvum
verður baráttan fyrir lífinu
sjálfu smám saman öllu öðru
yfirsterkari. ■