Fréttablaðið - 20.12.2002, Qupperneq 44
20. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Eyjólfur
Kristjánsson
Ásamt Íslands eina von
FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD
kaffi@kaffireykjavik.com kaffi@kaffireykjavik.com
Níundi
jólasveinninn
Tyggjóklínir
er kominn
Honum fylgir leiður ósiður,þeim sem kom til byggða í
nótt. Ósiður sem flestum sóma-
kærum mönnum og snyrtilegum
er þyrnir í augum.
Níundi var Tyggjóklínir,
sem tyggur dag og nótt.
Hann gildrur setur oft,
svo manni er ei rótt.
Bak við hluti og undir,
bæði borð og stóla.
Fara tyggjóblettir
í buxur, skó og kjóla.
Eftir Ragnar Eyþórsson (með fullri
virðingu fyrir Jóhannesi úr Kötlum)
TEIKNINGAR: INGI SÖLVI ARNARSON
Nú fer sá tími í hönd þegarnámsmenn og aðrir Íslend-
ingar búsettir erlendis flykkjast
í þúsunda tali heim á Frónið í
jólafrí. Þá er eins og ferskur
gustur fari um landið og hjörtu
margra fyllast gleði yfir kær-
komnum endurfundum. Ein-
hverjir eru nú þegar mættir til
landsins og því er tilvalið að
skreppa í bæinn og hitta nýlenta
vini eða vandamenn á kaffihúsi
til að skiptast á fréttum.
SKIPULAGSMÁL „Það má að sumu
leyti segja að þetta sé samantekt á
ævistarfi mínu,“ segir Trausti
Valsson um bók sína Skipulag
byggðar á Íslandi – Frá landnámi
til líðandi stundar. Trausti lauk
námi af skipulagslínu TU í Berlín
árið 1972 og doktorsnámi í um-
hverfisskipulagi við UC Berkeley
1987. Hann fékk hlutadósents-
stöðu við HÍ 1988 og var skipaður
fyrsti prófessor í skipulagsfræði
við HÍ árið 2000. „Ég hef kennt
skipulagsfræði við Háskóla Ís-
lands í 14 ár, haldið þúsundir fyr-
irlestra um þessi málefni og safn-
að saman miklu af myndefni og
öðrum gögnum. Þá hef ég skrifað
níu aðrar bækur um skipulagsmál
og fjölda greina. Margt af þessu
er óaðgengilegt og alls ekki allt á
sama stað þannig að ég stóð
frammi fyrir því að láta þetta
liggja í möppu eða taka saman
myndarlegt heildarrit.“
Trausti rekur skipulagssögu
landsins allt frá landnámi. „Ég
ákvað að draga rammann vítt til
að fá góða yfirsýn og það er
skemmtilegt að skoða hvernig
byggðin mótast frá fyrstu tíð.
Byggðarmynstrin byrja að mynd-
ast snemma og mörg halda nánast
alltaf velli og þessi sagnfræðilegi
bakgrunnur gerir okkur því kleift
að skilja samtímann betur.“
„Norðurálfumenn hafa vissa
tilhneigingu til að vera svolítið
ferkantaðir. Við sjáum þetta hér, í
Svíþjóð og í Noregi. Úthverfa-
kjarnar og steinsteypukumbaldar
eru ekki mikið fyrir augað, ólíkt
því sem við höfum séð á ferðalög-
um okkar um Ítalíu og Spán, þar
sem þetta er miklu safaríkara og
reynt að gefa húsum sál. Við
höfum vísi að þessu í gamla mið-
bænum.“
Trausti deilir á ýmsar heilagar
kýr í bókinni og gagnrýnir meðal
annars mikilvægi bílsins í borgar-
skipulaginu. „Það er varla hægt
að lifa lengur án bílsins og bíllaus-
ir, unglingar og aldraðir, eru í
slæmri stöðu. Það er svolítið
skrítið að félagshyggjuflokkar
skuli ekki vekja athygli á þessu
þar sem hér er í raun um félags-
legan harmleik að ræða.“
thorarinn@frettabladid.is
Samantekt á
ævistarfinu í bók
Trausti Valsson hefur tekið saman veglegt rit um sögu skipulags á
Íslandi frá landnámi til okkar daga. Hann segir margt gott hafa verið
gert en deilir á ferkantaða hugsun Íslendinga og ofurtrúna á bílinn.
TRAUSTI VALSSON
„Ég er af þessari svokölluðu hippakynslóð og þegar ég kom heim frá námi 1972 var út-
hverfaskipulagið í algleymi með tilheyrandi bíladellu og ofurbrautum. Þá stóð enn fyrir
dyrum að ganga af öllum gamla miðbænum dauðum.“
JÓLASVEINAR 2002Sjóvá-Almennar:
Rafhlöður í
reykskynjara
með póstinum
FORVARNIR Sjóvá-Almennar hafa
sent viðskiptavinum sínum sem
eru með fjölskyldutryggingu hjá
fyrirtækinu rafhlöður fyrir reyk-
skynjara. Alls eru það um 30 þús-
und heimili sem fá póstinn send-
an, en með honum fylgja ábend-
ingar í forvarnarmálum. Þannig
mælast Sjóvá-Almennar til þess
að viðskiptavinir hafi reyk-
skynjara í hverju herbergi og
skipti um rafhlöðu í þeim einu
sinni á ári. Þá minnir félagið á að
líftími reykskynjara er talinn
vera 8 til 10 ár.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Sjóvá-Almennar senda slíkan
póst, en honum er sérstaklega
ætlað að minna á mikilvægi reyk-
skynjara í þeim mánuði sem mest
hætta er á eldsvoðum. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JIBBÍ
JEI!!
VÚ-
HÚÚ !!
KOMA SVO... FARÐU
ÚR DERRICK
FRAKKANUM!!
...VIÐ VERÐUM
AÐ TALA
AÐEINS SAMAN...
HVÍTUR
LÍKAMINN...
KIRSUBERIN
STINN... ÞÚ VEIST
MIG LANGAR
IIINNNN...
4 DAGAR TIL JÓLA