Fréttablaðið - 20.12.2002, Page 48
Það er margt hægt að læra afstjórnmálamönnum, einkum
þeim allraklárustu. Ef maður til
dæmis lofar einhverju og svíkur
það síðan þá getur maður réttlætt
gjörðir sínar með því að segja ein-
faldlega: „Ég ætlaði að gera það
sem ég sagðist ætla að gera ÞEGAR
ég sagði það.“ Við þessu er ekkert
hægt að segja, en ef einhver er
samt með einhver leiðindi getur
maður bætt við: „Maður verður
alltaf að skoða aðstæður í ljósi þess
að aðstæður eru alltaf að breytast.“
AUÐVITAÐ væri gersamlega óþol-
andi að vera stjórnmálamaður ef
maður væri sífellt bundinn í báða
skó af einhverjum gömlum loforð-
um sem voru gefin við allt aðrar að-
stæður en við búum við á líðandi
stund. Auðvitað er nógu erfitt að
vera stjórnmálamaður þótt maður
sé ekki skuldbundinn til að þurfa að
standa við einhver loforð sem fólk
er sífellt að heimta af manni. Það er
lágmarkskrafa að almenningur
skilji að loforð er ekki hægt að efna
nema aðstæður leyfi.
STJÓRNMÁLALEIÐTOGI sem
vegna stórkostlegra hæfileika sinna
og löngunar til að ráðskast með ann-
að fólk getur ekki látið almennt sið-
gæði hefta framagöngu sína. Rétt
eins og forystufé er öðruvísi en
venjulegt sauðfé sem er alið upp til
að enda ævi sína sem sunnudags-
steik eða svamlandi í kjötsúpu innan
um kál og rófur er forystufólk í
pólitík öðru vísi heldur en venjuleg-
ir fótgönguliðar í faginu sem þurfa
ekki hafa aðra hæfileika en þá að
kunna að gera það sem þeim er sagt
og enginn ætlast til að þeir skilji eitt
né neitt, allrasíst í heimi þar sem
aðstæður eru sífellt að breytast.
FORYSTUSAUÐIR eru ekki til
þess ætlaðir frá náttúrunnar hendi
að láta brytja sig niður í kótilettur,
lærisneiðar og súpukjöt og þaðan af
síður að láta hakka sig og sjóða nið-
ur í nafnlausan kæfubelg sem hang-
ir í rjáfri sögunnar. Forystusauðir
eiga að leiða hjörðina til beitar þar
sem grasið er grænast hverju sinni
og leiða hana heim í öruggt skjól
þegar veður gerast válynd. Það
guðslamb sem þrákelknislega reyn-
ir að feta þröngan veg sannleikans
við síbreytilegar aðstæður verður
aldrei forystusauður, því að það er
bara venjulegur sauður. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Sannkölluð
stórvirki
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
ED
D
1
97
61
1
2/
02
Glæsibók um stríðsárin
„Með frábærum ljósmyndum og lýsandi textum veitir þetta
mikla rit gott yfirlit yfir einn mesta umbrotatíma 20. aldar.“
Páll Björnsson, Kastljósið
„Góður fengur er að þessari bók fyrir alla þá sem áhuga hafa
á sögu stríðsáranna.“ Jón Þ. Þór, Morgunblaðið
Íslenska orðabókin
Íslensk orðabók er grundvallarrit um íslenska tungu.
Í nýrri útgáfu hennar eru 90.000 flettur og er hún
1900 blaðsíður í tveimur bindum.
Hér eru þúsundir nýrra orða miðað við fyrri útgáfu,
fyllri skýringar og bætt efnisflokkun, en að auki
greiðir breytt uppsetning aðgang að lýsingu orðanna.
Í Íslenskri orðabók skynjar notandinn samhengið í
íslenskri tungu frá Eddukvæðum til tölvutækni.
www.edda.is
Besta bókin í flokki
rita almenns efnis
að mati bóksala
4. sæti
Morgunblaðið
almennt efni 10.-16. des
6. sæti
Bókbúðir MM
almennt efni 10. – 16. des
6000 eintaka
upplag á þrotum
Þúsundir Íslendinga hafa nú þegar eignast þessi stórvirki
á sérstöku kynningarverði sem gildir aðeins til áramóta.
Ert þú búinn að tryggja þér eintak?
Sauðir og
forystusauðir
Bakþankar
Þráins Bertelssonar