Fréttablaðið - 10.01.2020, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
h e i l s u v ö r u r
abel
Annie Mist Þórisdóttir birti nýlega innlegg á Instagram þar sem hún hélt upp á að
það eru rúm 10 ár liðin frá því að
hún hóf að keppa á heimsleikunum
í Crossfit. Annie tók fyrst þátt árið
2009, þegar hún var aðeins 19 ára
gömul og hefur með ótrúlegum
hætti tekist að halda sér á toppnum
síðan.
Annie byrjaði í Crossfit þegar
það var lítið þekkt, en hún hafði
lengi verið í öðrum íþróttum.
„Ég var í fimleikum þangað til ég
fór í menntaskóla og æfði þá 24 tíma
í viku. Svo byrjaði ég í MR og ætlaði
bara að einbeita mér að skólanum,
því ég ætlaði í læknisfræði. En ég
fann að ég gat ekki farið úr svona
miklu æfingaálagi í ekki neitt,“ segir
Annie. „Ég fór í dans og stangar-
stökk og ætlaði að keppa í því á
Ólympíuleikunum. En mér fannst
þetta ekki nóg og var líka í Boot
Camp til að fá útrás og svitna. Ég fór
svo að keppa í Þrekmeistaranum og
var mjög góð í því, fór að vinna og
fannst rosalega gaman að keppa.
Evert Víglundsson, sem þjálfaði
í Boot Camp og kenndi Crossfit,
fékk mig til að skrá mig á fyrsta
stóra íslenska Crossfit-mótið,“ segir
Annie. „Það var á sama degi ég var
að fara í munnlegt stúdentpróf í
stærðfræði, svo ég var ekki mjög
vel upplögð, en fór samt, keppti og
vann.
Sigurinn gaf mér sæti á heims-
leikunum í Crossfit svo ég hafði tvo
mánuði til að kynnast íþróttinni,“
segir Annie. „Ég fór út og keppti
og fannst eins og ég hefði fundið
það sem ég var að leita að. Eitthvað
sem var nógu fjölbreytt til að halda
áhuga mínum og um leið bæði
skemmtilegt og erfitt.“
Annie var í öðru sæti á leikunum
fram að síðustu grein, en þá kom
æfing sem hún hafði ekki gert áður,
svo henni tókst ekki að klára og
endaði í 11. sæti.
„Þetta kveikti í mér. Ég ákvað að
hætta í stangarstökki og einbeita
mér að Crossfit í ár,“ segir hún.
„Eftir leikana 2010, þar sem ég náði
öðru sæti, vissi ég svo að ég vildi
titilinn „hraustasta kona í heimi“.“
Byggði á góðum grunni
Árangurinn kom hratt, því Annie
vann gullið strax á þriðju leikunum
sínum.
„Ég var með svaka góðan bak-
grunn í íþróttum og vantaði bara
rútínu,“ segir hún. „Þegar þjálfarinn
kom sá maður allt fara hratt upp.
Ég hef líka alltaf verið með
svakalegt keppnisskap og ég hélt
bara áfram þar til ég gat hlutina,“
segir Annie. „Þá var ég samt ekki
endilega að æfa af skynsemi. Ég
vann árin 2011 og 2012 en meiddist
illa í baki 2013 og gat ekki keppt.
Ég þurfti að vinna mig í gegnum
það og var mjög stolt af því að geta
komið til baka.
Ég hefði aldrei getað verið svona
lengi að keppa án þjálfarans og
kírópraktorsins míns. Við erum
líka búin að læra mikið. Ég var ein
af þeim fyrstu til að vera með þjálf-
ara og nálgast þetta skynsamlega,
passa upp á endurheimt og næringu
og ýmislegt fleira, því atvinnu-
mennska í íþróttum fer ekki vel
með líkamann,“ segir Annie. „Ég
held utan um þetta allt til að geta
haldið áfram að æfa.“
Þarf að leggja allt í þetta
Annie segir að heimsleikarnir séu
tækifæri til að uppskera eftir alla
vinnuna sem fer í undirbúninginn.
„Allt árið á undan fer í undirbún-
ing. Þetta er svakalega mikil vinna
og maður þarf að færa fórnir,“ segir
hún. „Ég elska það sem ég er að gera,
en maður þarf að leggja allt í það.
Það er blóð, sviti og ansi mikið af
tárum sem fara í undirbúninginn.
En maður fær að sýna afraksturinn
á þessum dögum.
Í gegnum árin hef ég haft ólík
markmið og þarf að finna nýjan
drifkraft fyrir hvert ár. Ég vil alltaf
vinna en það þarf meira til,“ segir
Annie. „Það er líka ósanngjarnt að
líta svo á að manni hafi misheppn-
ast eða ekki gert nóg ef maður vann
ekki. Það skiptir mestu máli að hafa
undirbúið sig rétt og geta gengið
frá þessu vitandi að maður hafi
gert allt sem maður gat. Vonbrigðin
koma bara ef maður gerði ekki allt
sem maður gat. Það gerðist þegar
ég fékk hitaslag árið 2015 og í fyrra,
þegar ég fékk ekki að klára.“
Enn á toppnum eftir áratug
Annie segir mörg augnablik standa
upp úr frá áratug af heimsleikum
en það besta hafi verið þegar hún
gerði sér grein fyrir því að hún hefði
unnið í fyrsta sinn.
„Ég gleymi ekki þessu augnabliki,
þegar ég var búin að ná mark-
miðinu mínu. Það voru svo margir
að fylgjast með og ég var með
stuðningshóp sem hafði unnið hart
að þessu. Þó þetta sé einstaklings-
íþrótt eiga svo margir þátt í sigr-
inum. Foreldrar mínir og fjölskylda
koma til dæmis með mér á hverju
einasta ári að styðja við mig,“ segir
Annie. „Það var líka æðislegt þegar
ég vann í annað sinn og varð fyrsta
konan til að gera það.“
Hún segir að 2017 hafi líka verið
stórt ár fyrir hana, eftir óvenju
slæmt gengi árin tvö á undan.
„Ég fann að margir voru að missa
trú á mér eftir árin á undan,“ segir
hún. „En ég og mitt fólk vissum að
ég var enn á toppnum. Það var líka
drifkraftur að fólk segði að ég gæti
ekki eitthvað. Ég náði þriðja sæti og
það er sæt minning, mér fannst ég
sýna að seinustu tvö ár hefðu bara
ekki verið rétt og var stolt af því.
En það sem Annie er stoltust af er
að vera ein af þeim örfáu sem hafa
verið í íþróttinni þetta lengi og eru
enn á toppnum. „Ég á erfitt með
að trúa því sjálf, ég bjóst ekki við
að geta þetta svona lengi. Ég elska
vinnuna mína og ég elska að þetta
sé vinnan mín,“ segir Annie, full
ástríðu. „Að ég fái að gera þetta að
atvinnu og hafi vonandi áhrif á sem
flesta á jákvæðan hátt.
Á þessum tímapunkti heldur
það mér gangandi að ég sé enn
að bæta mig, því það gerir þetta
svo spennandi, sem og skilaboð
frá fólki sem segir mér að ég hafi
breytt lífi þeirra eða hjálpað þeim
gegnum erfiðleika. Sérstaklega frá
ungum konum sem hafa verið í
vandræðum með sjálfstraust eða
mataræði,“ segir Annie. „Það hvetur
mig áfram að fólki finnist ég hvetja
þau áfram. Ef ég get haft jákvæð
áhrif á eitt líf hlýt ég að vera að gera
eitthvað rétt.“
Árangurinn er viðurkenning
Annie segir að árangur hennar gefi
öllu erfiðinu viðurkenningu.
„Þetta sýnir að ég hef tekið rétt-
ar ákvarðanir,“ segir hún. „Allur
árangurinn hefur líka gert það að
verkum að ég hef getað gert þetta
svona lengi og einbeitt mér að því
að gera þetta 100%. Árangurinn
heldur manni líka á tánum og
hvetur mann til dáða.“
En hann kostar líka ómælda og
endalausa vinnu.
„Ég vinn fyrir sjálfa mig og
stjórna mínum tíma, en ég er eigin-
lega alltaf í vinnunni, ég get ekki
bara farið í tveggja vikna frí og hætt
að æfa eða hugsa um mataræði og
hvíld,“ segir Annie. „Maður er alltaf
að hugsa um endurheimt og vinna
í líkamanum. En ég passa mig líka
að vera ekki of djúpt sokkin og eyða
nægum tíma með vinum og fjöl-
skyldu.“
Vill vera óhrædd
Annie tryggði sér nýverið þátttöku-
rétt á heimsleikunum 2020 með
því að ná öðru sæti á Crossfit Open
mótinu. Hún segir að hún vilji
vinna heimsleikana í þriðja sinn og
sé líka að leita eftir persónulegum
sigrum.
„Það er stórt markmið hjá mér
að vinna í útihlaupinu, sem er í
miklum hita. Það eru alltaf ákveðn-
ar greinar sem gefa manni í magann
og ég er minnst fyrir greinar þar
sem margir byrja á sama tíma, auk
þess sem hitaslagið frá 2015 situr í
mér og kom í veg fyrir að ég gerði
mitt besta 2016,“ segir Annie. „En
ég fer út mánuði fyrir og venst því
að hlaupa í hitanum, svo nú er það
stærsta markmiðið að vera óhrædd
í þessari grein.“
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Annie nálgast
æfingar skyn-
samlega og
passar vel upp
á endurheimt,
næringu og
fleira, því at-
vinnumennska
í íþróttum fer
ekki vel með
líkamann.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Ég gleymi ekki
þessu augnabliki,
þegar ég var búin að ná
markmiðinu mínu. Það
voru svo margir að
fylgjast með og ég var
með stuðningshóp sem
hafði unnið hart að
þessu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R