Fréttablaðið - 10.01.2020, Side 8
Gróðureldarnir fara illa með heimkynni dýra. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÁSTRALÍA Búist er við áframhald-
andi eyðileggingu í Nýja Suður-
Wales, Viktoríuríki og Suður-Ástr-
alíu í dag. Viktoríuríki í Ástralíu
lýsti aftur yfir neyðarástandi í gær
vegna gróðurelda. Búist er við heitu
veðri í ríkinu í dag og því mikilli
eyðileggingu. Fram til þessa hafa
janúar og febrúar verið þeir mán-
uðir þar sem mestir gróðureldar
geisa, en nú er hásumar á suður-
hveli jarðar. Alls hafa 27 látið lífið
í gróðureldunum í Ástralíu og tvö
þúsund heimili brunnið til grunna.
Búist er við áframhaldandi eyði-
leggingu í Nýja Suður-Wales og
Suður-Ástralíu.
„Við höfum ekki séð svona mikið
af eldum svo snemma sumars,“
sagði Daniel Andrews, ríkisstjóri
í Viktoríuríki, við blaðamenn. „Á
sama tíma höfum við aldrei séð
jafn vel skipulögð og jafn áhrifarík
viðbrögð við eldunum líkt og við
höfum séð á síðustu vikum.“
Mikið er deilt um uppruna eld-
anna, hefur sökinni meðal annars
verið skellt á loftslagsaðgerðasinna.
Því hefur lögreglan í Viktoríuríki
hafnað alfarið og sagt engar vís-
bendingar um að eldarnir í ríkinu
séu af mannavöldum.
Á vef lögreglunnar í Nýja Suður-
Wales segir hins vegar að lögreglan
hafi höfðað mál gegn 183 einstakl-
ingum vegna 205 elda frá því í sept-
ember. Þar af hafa 24 verið ákærðir
fyrir að hafa kveikt viljandi í gróðr-
inum, 53 fyrir að virða ekki eld-
bann og 47 fyrir að hafa kastað frá
sér sígarettum eða eldspýtum. Ekki
kemur fram hvaða einstaklinga
um er að ræða eða í hvaða erinda-
gjörðum þeir voru. Eiga þessir ein-
staklingar yfir höfði sér allt að 25
ára fangelsi. CNN hefur greint frá
því að maður í Nýja Suður-Wales
hafi verið handtekinn fyrir að nota
rafmagnsverkfæri utandyra sem
munu hafa gefið frá sér neista.
Veðurstofa Ástralíu gaf frá sér
tilkynningu í gær þar sem kom
fram að árið í fyrra hafi verið það
hlýjasta í landinu frá því mælingar
hófust með 41,9 gráðu meðalhita í
desember.
Eldarnir hafa haft mikil áhrif á
dýralífið. Er talið að hálfur til allt
að milljarður dýra hafi drepist.
Þar hefur gróðureyðingin mikið að
segja. Af þessum milljarði dýra eru
rúmlega 100 þúsund kindur og kýr.
Alls hafa 6,3 milljónir hektara eða
63 þúsund ferkílómetrar orðið eld-
inum að bráð. Til samanburðar þá
er Ísland 103 þúsund ferkílómetrar.
Scott Morrison, forsætisráð-
herra Ástralíu, hefur verið gagn-
rýndur harðlega fyrir sein viðbrögð
við eldunum. Hefur hann heitið
tveimur milljörðum dala, eða 170
milljörðum íslenskra króna, til
viðbótar við núverandi framlög til
slökkvistarfa. Erfitt er hins vegar
að slökkva eldana sjálfa og fer stór
hluti slökkvistarfsins í að koma í veg
fyrir útbreiðslu. arib@frettabladid.is
Búist er við að
eyðileggingin
haldi áfram
Alls hafa 27 manns látist
í gróðureldum í Ástralíu
og minnst hálfur millj-
arður dýra drepist. Lög-
regla fer hart fram gegn
þeim sem kveikja elda
viljandi eða af gáleysi.
MIKILVÆG ÖRYGGISVIÐVÖRUN:
PHILIPS AVENT-BARNAPÍUTÆKI
MEÐ STAFRÆNNI MYNDAVÉL (SCD620)
Philips hefur, til varúðarráðstöfunar, ákveðið að eigin frumkvæði að innkalla og skipta út
Philips Avent-barnapíutækjum með stafrænni myndavél (SCD620) sem framleidd voru
frá janúar 2016 til mars 2018.
Vörurnar sem um ræðir bera eftirfarandi vörunúmer: SCD620. Þau tæki sem um ræðir bera
raðnúmer sem byrja á eftirfarandi fjórum stöfum:
- TM5AYYWWXXXXXX
- TM5BYYWWXXXXXX
- TM5CYYWWXXXXXX
Í undantekningartilvikum getur rafhlaðan í aðalstöðinni ofhitnað þegar hún er í hleðslu.
Þetta getur hugsanlega haft eldhættu í för með sér.
Þú getur kannað hvort þetta á við um þína vöru með með því að hringja í norsku þjónustu-
deildina í síma +47 22 97 19 50 (á milli kl. 08:00 og 16:00 að norskum tíma eða á milli kl.
07:00 og 15:00 að íslenskum tíma) með vöruna við höndina svo hægt sé að ákvarða hvaða
lausn hentar þér. Ef þetta á ekki við um þína vöru getur þú haldið áfram að nota hana
áhyggjulaust.
Þessi innköllun að frumkvæði Philips undirstrikar áherslu fyrirtækisins á að fylgja ströngustu
kröfum um gæði og áreiðanleika. Við þökkum skilninginn og biðjumst afsökunar á þeim
óþægindum sem þetta kann að valda.
SAMFÉLAG Breska ofurfyrirsætan,
leikkonan og raunveruleikasjón-
varpsstjarnan Kelly Brook vill fara
á skeljarnar og biðja kærasta sinn,
ítölsku fyrirsætuna Jeremy Parisi,
að giftast sér. Telur hún Breiða-
merkursand tilvalinn til brúksins.
Brook, sem varð nýlega fertug, var
valin kynþokkafyllsta kona heims
af tímaritinu FHM árið 2005. Hún
hefur verið reglulegur gestur í þátt-
um á borð við Strictly Come Danc-
ing og Britain´s Got Talent og leikið í
bíómyndum á borð við Piranha 3D.
Brook og Parisi hafa verið par
síðan 2015 og heimsóttu saman
Ísland fyrir tveimur árum. Sagði
hún þá að Bláa lónið væri einn af
stöðunum sem hún yrði að heim-
sækja áður en hún hyrfi yfir móð-
una miklu.
Þetta sama ár, 2018, heimsótti
parið karabísku eyjuna Antigua.
Þar tók Brook stóra stökkið og
bað Parisi að giftast sér. Hann tók
bónorðið hins vegar ekki alvar-
lega. „Ég reyndi að biðja hans en
hann sagði að það væri of mikið
af fólki á staðnum og sagði mér að
hafa hljótt,“ segir Brook í viðtali við
blaðið OK!
Eftir á að hyggja er hún ánægð
með að ekkert hafi orðið úr bón-
orðinu á þessari stundu því að það
hefði sett of mikið álag á samband-
ið. Núna er hins vegar rétti tíminn
og hyggst hún panta aðra ferð til
Íslands. – khg
Ofurfyrirsæta með áform um að skella sér á skeljarnar á Íslandi
Parisi og Brook á viðburði í desember. NORDICPHOTOS/GETTY
Ég reyndi að biðja
hans en hann sagði
að það væri of mikið af fólki
á staðnum og sagði mér að
hafa hljótt.
Kelly Brook, ofurfyrirsæta
1 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð