Fréttablaðið - 10.01.2020, Qupperneq 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hluttekningu og alúð
við andlát okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Sveinsdóttur
Dalbraut 27,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu 7. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dalbrautar.
Sveinn Jónasson
Birgir Jónasson Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir
Rakel Jónasdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elsku systir mín og frænka okkar,
Sigríður Helga Sigurðardóttir
skólaritari,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju,
mánudaginn 13. janúar kl. 14.
Sigþrúður Sigurðardóttir
Sigurður Halldórsson
Erla Helga Sveinbjörnsdóttir
Brynjúlfur Halldórsson
Gunnar Jóhannesson
Elín Eir Jóhannesdóttir
Hjartkær móðir mín og tengdamóðir,
Kerstin Hiltrud Roloff
frá Bakkakoti í Vesturdal,
Skagafirði,
lést þann 24. desember síðastliðinn.
Útför hefur farið fram.
Swanhild Ylfa K. R. Leifsdóttir
Sindri Rögnvaldsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Helgasonar
Holtsgötu 21, Reykjavík.
Kærar þakkir fær starfsfólk á
hjúkrunarheimilinu Eir og Hlíðarhúsum 3
fyrir hlýhug og góða umönnun sem var ómetanleg.
Guðmundur Jónsson Rannveig Egilsdóttir
Kristín Jónsdóttir Ragnar Smári Ingvarsson
Ægir Thorberg Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðfinna Helgadóttir
lést hinn 26. desember að
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
í dag þann 10. janúar kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hinnar látnu er bent á Blindrafélagið.
Edda Sigurgeirsdóttir Þórður Kristinsson
Helgi Sigurgeirsson Gerður Garðarsdóttir
Svanberg Sigurgeirsson Rannveig Ása Reynisdóttir
Gunnar Guðjónsson
og barnabörn.
Útför ástkærs föður okkar,
stjúpföður, tengdaföður og afa,
Péturs Sveinbjarnarsonar
verður gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn
24. janúar nk. kl. 13.00.
Guðmundur Ármann Pétursson Birna Ásbjörnsdóttir
Auðbjörg Helga Guðmundsdóttir
Embla Líf Guðmundsdóttir Nói Sær Guðmundsson
Eggert Pétursson Malin Svensson
Freyja Christine Eggertsdóttir Einar Pétur Lars
Eggertsson
Friðrik Örn Hjaltested
Úlfhildur Lokbrá Friðriksdóttir Skorri Ísleifur Friðriksson
Óli Rafn Jónsson Valgerður Magnúsdóttir
Edda Sól Óladóttir Atli Þór Ólason
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bára Egilsdóttir
lést þann 27. desember. Útförin fór
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Bjarni Ólafur Bjarnason Gyða Einarsdóttir
Egill Kristján Bjarnason Elfa Rún Antonsdóttir
Hrafnhildur Bjarnadóttir Þröstur Sævar Steinarsson
Jón Guðbjörn Bjarnason Signý Sigurðardóttir
Sævar Bjarnason Hulda Saga Sigurðardóttir
Guðfinnur Stefánsson Linda Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Vilborg Vilmundardóttir
lést sunnudaginn 5. janúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.
Vilmundur Þorsteinsson Bjarney J. Sigurleifsdóttir
Gísli Þorsteinsson Jólanta Þorsteinsson
Hrefna Björg Þorsteinsdóttir Guðmundur Löve
Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Aðalbjörn Þórólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför
Guðlaugs Valdimars
Eiríkssonar
trésmiðs,
Núpalind 2.
Einnig viljum við þakka starfsfólki Hrafnistu,
Boðaþingi, fyrir góða umönnun.
Þórey Björnsdóttir
börn, barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Júlíus Gestsson
rafvirkjameistari,
lést þann 8. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Halldóra Guðmundsdóttir
Jón Júlíusson
Sigríður S. Júlíusdóttir
Helga Júlíusdóttir Arnfinnur Róbert Einarsson
Bjarni Júlíusson Þórdís Klara Bridde
Hrönn Júlíusdóttir Ársæll Hreiðarsson
Sigríður Rut Júlíusdóttir Hjalti Már Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Myndirnar á þessari sýningu eiga sér rót í djúpstæðri virð-ingu og trega vegna þeirra hrafnistu-manna sem hafið
hefur ekki hleypt í land. Sjóslys hafa sótt
á huga minn á seinni árum,“ segir Hjördís
Henrys dóttir sem í dag opnar sýningu í
Listasal Mosfellsbæjar.
Faðir Hjördísar, Henry Hálfdánarson,
var framkvæmdastjóri Slysavarnafélags
Íslands og hún ólst upp við að hann var
alltaf á vakt, á nóttu sem degi. „Við börn-
in heyrðum hann sinna loftskeytastörf-
um að heiman á nóttunni, ræsa út björg-
unarsveitir og stjórna aðgerðum, oftast
vegna manna í sjávarháska. Þá hugsaði
maður sterkt til barnanna sem áttu
pabba á sjónum. Ég þekkti líka marga
á sjónum, foreldrar mínir eru báðir að
vestan og það var mikil sjósókn í þeirra
fjölskyldum. Móðurafi minn sem reri frá
Ísafirði á litlum bát með son sinn með sér
lenti oft í kröppum sjó en bjargaðist alltaf
og dó í elli. Ein mynd á sýningunni heitir
Afi minn er róinn.“
Nóttina sem Hjördís fæddist, 9. febrúar
1946, gerði aftakaveður, að hennar sögn.
Fjöldi báta var á sjó, 20 manns fórust
en aðrir björguðust í land við illan leik.
„Pabbi var í símanum og mamma inni
í hjónarúmi að fæða. Eldri systkinum
mínum er þessi nótt minnisstæð. „Það
var nú meira veðrið nóttina sem þú fædd-
ist,“ segja þau þegar þau koma í afmælis-
veislur til mín.“
Hjördís kveðst ekki hafa upplifað missi
nákominna ættingja í hafið, nema gegn-
um frásagnir. „Pabbi slapp því mann-
björg varð þegar skipið sem hann var
loftskeytamaður á, Hannes ráðherra,
strandaði undan Músaskerjum á Kjalar-
nesi 1938 og eyðilagðist en föðuramma
mín missti tvo menn í sjóinn. Hún fæddi
sjöunda barnið um það leyti sem seinni
maðurinn fórst, hann náði aldrei að sjá
það.“
Hafið er þriðja einkasýning Hjördísar.
Hún kveðst líta á hana sem minningarat-
höfn. „En ég vil líka halda því á lofti að
björgunarsveitir landsins hafa unnið
mörg þrekvirki gegnum tíðina. Nú fer
þeirra starf meira fram á fjöllum en sjó,
eins og áður var.“ gun@frettabladid.is
Sjóslys hafa sótt á hugann
Á sýningunni Hafið: Í minningu sjómanna – sem opnuð verður síðdegis í dag í Listasal
Mosfellsbæjar birtir Hjördís Henrysdóttir málverk af úfnum sjó og bátum í háska.
Ein myndanna sem er til sýnis heitir Afi
minn er róinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hafið, í Listasal Mosfellsbæjar, er þriðja einkasýning Hjördísar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT