Fréttablaðið - 10.01.2020, Side 33

Fréttablaðið - 10.01.2020, Side 33
KVIKMYNDIR Cats Leikstjórn: Tom Hoopers Aðalhlutverk: Francesca Hayward, Judi Dench, Robbie Fairchild, Idris Elba, Ian McKellen Það var forvitni frekar en tilhlökkun sem réð förinni þegar ég klöngraðist niður í sal fjögur í katakombunum í Háskólabíói. Þar lá ræman Cats graf- in eftir aðeins rúma viku í sýningu en miðasala á myndina hefur verið hræðileg. Gagnrýnendur erlendis tættu myndina í sig af áfergju sem hefur ekki sést síðan Travolta lék í Battlefield: Earth árið 2000. Getur þessi stjörnum prýdda mynd virki- lega verið svona slæm? Cats byggir á samnefndum söng- leik Andrew Loyd Webber sem byggði söngleikinn afar lauslega á ljóðaflokki T.S. Eliot, Old Possum's Book of Practical Cats. Sagan segir frá kettinum Viktoríu sem er skilin eftir í ræsinu af eigendum sínum þar sem hún kynnist hinum svokölluðu Grúttkisum. Þær eru í þann mund að fremja hið árlega Grúttval þar sem einn köttur er valinn til að svífa upp í jónahvolfið þar sem hann mun öðlast nýtt líf sem sá köttur sem hann vill helst vera. Valið byggir á frammi- stöðu hvers kattar í söng. Söguupp- byggingin er því með hefðbundnara móti. Það fyrsta sem áhorfandinn rekur augun í er hvað allt er ógeðslegt. Kettirnir hafa óþægilega mennsk einkenni á borð við höfuð, herðar, hné og tær sem blandast einstak- lega illa saman við veiðihár og rófu. Þessi furðulega persónuhönnun væri kannski ekki svo slæm ef hún væri vel útfærð. Það er hún ekki. Andlitin eru sérstaklega afkáraleg og þegar verst lætur mætti halda að framleiðendur væru að nota filter á Snapchat í stað rándýrra tölvubrellna sem hlaupa á milljörðum. „Búningarnir“ eru undir áhrifum af sviðsuppsetningunni og myndin fær því stig fyrir viðleitni en falleinkunn fyrir útfærslu. Ofan á allt saman er svo yfirgengilega eró- tískur blær yfir öllu saman sem setur óþægindin í annað veldi. Kjötið á beinunum í hverjum söng- leik er þó tónlistin og mörg laganna eru ansi skemmtileg. Söngvararnir standa sig margir með prýði og text- arnir eru oft sniðugir. Kattaeigendur munu örugglega tengja við lagið um Rum Tum Tugger sem vill ólmur fara út þegar þú hleypir honum inn, en vill svo strax koma inn þegar þú hleypir honum út. Það var líka gaman að laginu um lestarköttinn Skimbles- hanks sem heldur því fram að engin lest á stöðinni hans fái brottfarar- leyfi fyrr en hann sé þess fullviss að engar mýs séu um borð. Jennifer Hud- son ber þó af þegar hún flytur lagið Memory, en hún gerir það af einstakri tilfinningu og skilningi á laginu. Það truflar þó aðeins að í gervi sínu líti hún út eins og varúlfur. Inn á milli eru svo einstaklega leið- inleg lög. Ian McKellen olli miklum vonbrigðum og það er engin afsökun að hann sé orðinn níræður og í kisu- líki. Eða jú, kannski. Áðurnefnt ógeð skyggir þó á sönginn og er ráðandi í heildarsvip myndarinnar. Atriðið þar sem Rebel Wilson glennir sig og sperrir áður en hún borðar illa tölvugerða kakka- lakka með mennsk andlit mun lík- lega fylgja mér til dauðadags. Arnar Tómas Valgeirsson NIÐURSTAÐA: Þótt Cats eigi sína spretti og sé ekki alveg jafn léleg og allir vilja meina þá er hún samt sem áður misheppnuð í heildina. Þó má mæla með henni til að sjá hvað allir eru að tala um – forvitnin drap víst aldrei neinn. Breimverurnar eru lentar Francesca Hayward stendur sig vel í frumraun sinni á hvíta tjaldinu. Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 10. JANÚAR 2019 Myndlist Hvað? Tímalaus sköpunargleði Ínúíta Hvenær? 9.00-17.00 Hvar? Veröld - hús Vigdísar Afrakstur samkeppni Inúíta um listskreytingar fyrir nýju kanad- ísku Norðurslóða- rannsóknarmið- stöðina (CHARS) í Ikaluktutiak í Kanada. Aðgangur er ókeypis. Hvað? Hafið: Í minningu sjómanna Hvenær? 16.00-18.00 Hvar? Listasalur Mosfellsbæjar, Þverholti Hjördís Henrysdóttir opnar sýningu á málverkum af úfnum sjó og bátum í háska. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hvað? Útskriftarsýning Ljósmynda- skólans Hvenær? 17.00 Hvar? Hólmaslóð 6. Hvað? Nokkur uppáhalds verk Hvenær? 17.00 -19.00 Hvar? Nýlistasafnið Sýning á verkum úr safneign Nýló. Dans Hvað? Argentínskur tangó Hvenær? 21.00-24.00 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg Opinn tími sacadas kl.21-22 og milonga kl.22-24. Dj er Atli og gestgjafar Jóhanna&Hallur. Opni tíminn 2.000, milongan 1.000 kr. Tónlist Hvað? Paniik - melóna Hvenær? 20.30. Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Tríó Tómasar Jónssonar spilar tónlist eftir Tómas í opnum útsetningum þar sem allir með- limir eiga jafnan þátt í lokaniður- stöðu. Miðaverð: 2.000 kr. Aðrir viðburðir Hvað? Jarðarfarasiðir Hvenær? 20.00 Hvar? Lífspekifélagið, Ingólfs- stræti 22. Svanur B. Annasson útskýrir kenningar Martinusar um hvað gerist í míkróheiminum við svo- kallaðan dauða. Opið öllum áhugasömum. Það verður boðið upp á argentínsk- an tangó í Kramhúsinu í kvöld . Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is Bridge gerir lífið skemmtilegra Viltu læra bridge? Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa, fyrirtæki og skóla. Guðmundur Páll starfrækir Bridgeskólann, þar geta þeir lært bridge sem eru að stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem vilja bæta við kunnáttu sína. Námskeið í Bridgeskólanum hefjast 20. janúar nk. Allir undir 25 ára aldri fá frítt á byrjendanámskeið. Upplýsingar hjá Guðmundi Páli Arnarsyni í síma 8985427 eða á gpa@simnet.is Eldri borgarar spila alla mánudaga og fimmtudaga kl. 13–17 í Síðumúla 37 Stórmót í Bridge Reykjavík Bridgefestival fer fram í Hörpu 30. janúar – 2. febrúar 2020, skráning á bridge@bridge.is Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is Bridge sameinar aldurshópana Bridge er gott fyrir heilsu þína Bridge er manns gaman „Bridge er fyrir alla“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra setti síðustu Bridgehátíð og sagði fyrstu sögnina fyrir Zia Mahmod heimsfrægan spilara. Allir brosandi, já það er skemmtilegt að spila bridge M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F Ö S T U D A G U R 1 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.