Skessuhorn - 13.03.2019, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 23
Á næstu dögum munu Ásdís Kr.
Melsted og Jóhannes Haukur Jó-
hannesson hætta rekstri gistiheim-
ilisins Kastalans í Búðardal. Gisti-
heimilið opnuðu þau við Brekku-
hvamm 1 vorið 2016 en nú hafa
þau selt reksturinn þeim Skildi Orra
Skjaldarsyni og Carolin A Baare
Schmidt. „Við ætlum okkur að halda
áfram þessum fína rekstri sem ver-
ið hefur á gistiheimilinu fram til
þessa,“ segir Skjöldur þegar Skessu-
horn sló á þráðinn til hans. Carol-
in rekur nú þegar bæði tjaldstæðið í
Búðardal og hestaleigu undir nafn-
inu Dalahestar og Skjöldur starfar
sem neyðarflutningamaður á Heil-
brigðisstofnun Vesturlands og sem
kennari í Auðarskóla. „Þetta fer held
ég bara ágætlega saman, Carolin er
kannski meira í ferðaþjónustunni en
við ætlum að reka gistiheimilið sam-
an. Við stefnum á að reka þetta með
óbreyttum hætti og bara halda vel
í þessa frábæru einkunn sem gisti-
heimilið hefur fengið frá gestum
fram til þessa,“ segir Skjöldur.
Aðspurður segist Skjöldur hafa
fulla trú á rekstri Kastalans og segir
hann Dalina eiga mikið inni í ferða-
þjónustunni. „Ég held að staðsetn-
ingin sé frábær því á meðan önnur
landssvæði hafa verið yfirsetin af
ferðamönnum hingað til held ég að
Dalirnir eigi mikið inni. Við hjón-
in erum í bullandi ferðamannavinnu
nú þegar með tjaldstæðið og hesta-
leiguna og við trúum því að gisti-
heimilið sé góð viðbót. Ef maður
hefur trú á því sem maður hefur að
bjóða lætur maður bara vaða,“ segir
Skjöldur. „Grundvöllur fyrir öllu er
að hafa trú á hlutunum og ég hef trú
á því að hér í Dölunum muni ferða-
mennska fara vaxandi á næstunni,“
bætir hann við. arg
Kastalinn í Búðardal
fær nýja eigendur
Rut Ragnarsdóttir tók í byrjun
mánaðarins við rekstri Pakkhússins
í Ólafsvík og stefnir á að opna þar
verslun og veitingasölu. Rut langaði
að skapa sér atvinnu í heimabæ sín-
um eftir að hún lauk fæðingarorlofi
um síðustu mánaðamót og fór á fund
bæjarstjórnar og bar þar upp beiðni
um að leigja Pakkhúsið. „Bæjar-
stjórn tók vel í erindið og vildi styðja
við atvinnuuppbyggingu í bænum.
Úr varð að við gerðum leigusamn-
ing og ég tók við húsinu núna 1.
mars,“ segir Rut. Hún flutti í Snæ-
fellsbæ frá Akranesi ásamt mannin-
um sínum, Heimi Berg Vilhjálms-
syni, fyrir rúmu ári en sjálf er Rut
fædd og uppalin á Hellissandi. „Ég
var því að flytja heim aftur og lík-
ar mjög vel að vera komin hingað,“
segir hún en Rut vann áður sem að-
stoðarmaður framkvæmdastjórnar
hjá Vodafone og verkefnastjóri hjá
fjárfestingafélaginu GAMMA. „Það
má því segja að ég sé að taka algjöra
U-beygju í lífinu. En það er bara
gaman og lífið er endalaus áskorun,
sem gerir það svona skemmtilegt.“
Opið allt árið
Í Pakkhúsinu verður Rut með versl-
un þar sem hún ætlar að selja minja-
gripi, handverk, sælkeravörur, ís-
lenska hönnun og léttar veitingar.
„Við verðum með boozt, skyr, vefj-
ur og annað léttmeti á boðstólnum.
Þetta verður kannski frekar mik-
ið stílað inn á ferðamenn sem geta
fengið sér smá hollustu áður en
þeir halda lengra í Þjóðgarðinn og
svoleiðis, en það verður samt líka
margt fyrir heimafólkið,“ segir Rut.
Byggðasafnið á efri hæðum hússins
verður opið og þangað verður öllum
velkomið að líta við og skoða án end-
urgjalds. „Við viljum að sagan og allt
það sem fylgir safninu sé opið fyr-
ir alla og því ætlum við ekki að taka
gjald fyrir,“ segir Rut. Aðspurð seg-
ist hún ætla að hafa Pakkhúsið opið
allt árið þó opnunartímar verði ef-
laust styttri yfir veturinn. „Fram til
þessa hefur húsið verið nýtt að ein-
hverju leyti hluta úr ári en ég ætla að
hafa opið allt árið um kring.“ Fyrir
þá sem hafa áhuga á að fylgjast með
starfseminni í Pakkhúsinu er bent
á Facebook-síðu undir nafninu Út-
gerðin. arg
Útgerðin opnar í Pakkhúsinu í Ólafsvík
Rut Ragnarsdóttir hefur tekið við rekstri Pakkhússins í Snæfellsbæ. Ljósm. aðsend.
Svipmyndir úr starfi Björgunarsveitarinnar Brák.