Skessuhorn


Skessuhorn - 16.04.2019, Qupperneq 10

Skessuhorn - 16.04.2019, Qupperneq 10
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 201910 Framkvæmdum er nú nánast lok- ið við byggingu nýju frístundamið- stöðvarinnar við Garðavöll á Akra- nesi. Risið er glæsilegt þúsund fer- metra fjölnota hús sem í senn verð- ur klúbb- og félagsaðstaða golf- klúbbsins Leynis með æfingaað- stöðu í kjallara, fundaaðstaða, veit- ingastaður og allt að tvö hundruð manna veislusalur til útleigu. Sal- inn verður ýmist hægt að stúka nið- ur fyrir smærri samkomur eða opna í eina heild og er þá að stærð við fullgildan bocciavöll. Af sviði verð- ur hægt að halda tónleika eða sýn- ingar í húsinu og vera með veisl- ur og mannfagnaði af ýmsu tagi. Framkvæmdum er nú að mestu lokið og segir Guðmundur Sig- valdason, verkefnisstjóri með bygg- ingu hússins og framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis, að stefnt sé að vígslu hússins í lok apríl. Þá verður bæjarbúum og öðrum gest- um boðið að koma og skoða nýju húsakynnin. Blaðamaður Skessu- horns leit fyrir helgi í heimsókn til Guðmundar sem kveðst stoltur af þessu verkefni og samstarfi við alla sem að því komu svo sem Akranes- kaupstað, verktaka og alla aðra. Áætlun stóðst „Hér hófust framkvæmdir form- lega í janúar 2018, fyrir réttum 14 mánuðum síðan, með því að gamla klúbbhúsið var rifið og jarðvegs- skipti fóru fram. Við höfðum að leiðarljósi að vinna alla áætlana- gerð af kostgæfni þannig að ekki yrði farið fram úr áætluðum bygg- ingarkostnaði eða verktíma. Það hefur tekist. Leitað var til verk- taka hér á Akranesi um að koma að framkvæmdinni.“ Þá segir hann að félagsmenn í Golfklúbbnum Leyni hafi verið duglegir að leggja hönd á plóg við byggingu hússins í sjálf- boðavinnu. Þar hafi gamli félags- andinn verið allsráðandi líkt og í ungmennafélögunum forðum. „Í aðdragandum að verkefninu varð niðurstaðan sú að Fasteignafélag Akraneskaupstaðar á húsið að fullu, en Golfklúbburinn Leynir mun sjá um rekstur þess samkvæmt sérstök- um rekstrar- og leigusamningi. Við höfum síðan samið við Veitinga- staðinn Galitó um veitingasölu í húsinu og rekstur og hér verður opnaður nýr veitingastaður; Galitó Bistró Cafe um leið og húsið verð- ur vígt nú í lok mánaðarins,“ segir Guðmundur. Heimamenn unnu verkið Alls voru það níu verktakar á Akra- nesi sem tóku að sér umsjón af- markaðra verkþátta við byggingu hússins. „Þróttur sá um jarðvinnu, Vogir og lagnir um rafmagn, Blikk- verk um loftræsingu, HH verk- tak um málningu, Akur um innan- hússfrágang, Sjammi um glugga, hurðir og byggingarstjórnun, BM Vallá reisti burðarvirki og eining- ar, Ylur pípulagnir sá um pípulögn og GS import um þakvirki. Þar að auki voru einir 6-8 verktakar sem komu að ýmsum smærri verkþátt- um. Golfklúbburinn Leynir skip- aði framkvæmdanefnd verkefnis- ins og var hún skipuð Guðmundi sjálfum, Alfreð Þór Alfreðssyni og Lárusi Ársælssyni og sá hún alfarið um verkefnisstjórnina og alla sam- þættingu á byggingartímanum. Við þetta verkefni kom sér vel sá bak- grunnur, reynsla og menntun sem Guðmundur sjálfur hefur af verk- fræðiráðgjöf, en hann er með bæði tæknimenntun og meistarapróf í viðskiptafræði sem nýttist vel til að stýra verkefninu. Hefur hann áður komið að skipulagningu slíkra verka. „Almennt er ég mjög stoltur af þessu verkefni sem gengið hefur vel í alla staði. Við erum hér komin með þúsund fermetra nýbyggingu sem risin er á tilsettum tíma, kostar 380 milljónir króna, eða jafn mik- ið og lagt var upp með í upphafi. Í rauninni er þetta sérstakt verk- efni fyrir margra hluta sakir. Ég er í það minnsta mjög ánægður hvernig til hefur tekist og trúi því að bæði félagsmenn okkar og aðrir sem nýta munu húsið geti tekið undir það.“ Eflir klúbbinn Fyrir Golfklúbbinn Leyni er Guð- mundur ekki í minnsta vafa um að aðstaðan mun gjörbreyta öllu félagsstarfi og efla klúbbinn til lengri tíma, enda fáir ef nokkr- ir golfklúbbar hér á landi sem hafa jafn góða aðstöðu. „Þessi aðstaða öll mun gjörbreyta rekstri okkar félags og styrkja stoðir klúbbsins. Vissulega er maður bjartsýnn í ljósi bókana sem þegar eru komnar fyrir allt þetta ár. Framundan er mikið af veislum og fjölbreyttum samkom- um í húsinu. Við sömdum við Ga- litó um rekstur og þjónustu og hér verður veitingastaðurinn Galitó Bistró Cafe opnaður í lok mánað- ar með fullkomnu veislueldhúsi og flottum matseðli. Við höfum feng- ið mjög jákvæðar viðtökur við þeim samningi enda þekkja menn hand- bragð og metnað Hilmars Ólafs- sonar og hans fólks hjá Galító. Þetta eru veitingamenn sem leggja sig fram um að gera hlutina vel. Nú þegar er búið að halda fyrstu veisl- urnar í húsinu og hefur fólk lýst ánægju sinni með aðstæður. Hér getum við nú bókað í fjölnota sal, allskyns mannfagnaði og höfum veitingaleyfi fyrir 200 manns. Við hönnun hússins var gert ráð fyrir að ólíkar samkomur gætu farið fram í húsinu á sama tíma. Jafnvel þótt hér sé fullur salur af fólki, mun hefð- bundin spilamennska á golfvellin- um og afgreiðsla fyrir hann verða Nýja frístundamiðstöðin vígð í lok apríl Fjölnota félags- og frístundahús risið við Garðavöll á Akranesi Guðmundur Sigvaldason stendur hér sunnan við nýja húsið. Aðalhönnuður þess er Halldór Stefánsson í Akri en verk- fræðihönnun var í höndum Mannvits og Alhönnunar. Fjölmargir félagsmenn í Leyni hafa lagt gjörva hönd á plóg við framkvæmdir við húsið. Svo eru aðrir sem leggja verkefninu lið með öðrum hætti. Meðal annars Bjarni Þór Bjarnason listamaður og golfari sem styrkir húsið með málverkagjöf. Guðmundur stendur hér við mynd eftir Bjarna sem er í efri veitingasal, þaðan sem útsýni er yfir Garðavöll. Þegar blaðamaður var á ferðinni á föstudaginn voru iðnaðarmenn að ganga frá tengingum á gufugleypi í eldhúsi. Hér eru starfsmenn frá Vogum og lögnum og Blikksmiðju Guðmundar. Svipmynd úr afgreiðslu fyrir golfvöllinn. Edda Elíasdóttir var á föstudaginn að taka æfingu á púttvellinum í kjallara húss- ins. Þar er einnig golfhermir og annar slíkur væntanlegur.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.