Skessuhorn


Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 3
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir áhugaverðu íbúaþingi mánudaginn 6. maí 2019 undir yfirskriftinni „Mótum framtíð Vesturlands í sameiningu“. Þingið fer fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og hefst kl.13.00 og mun standa til kl.16.00. Markmiðið með þinginu er að fá íbúa á Vesturlandi til að koma saman, skiptast á skoðunum og hugmyndum um hvernig þeir vilja sjá Vesturland þróast. Afrakstur þingsins mun verða leiðarljós við frekari vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2020-2024. Auk þess mun afrakstur íbúaþingsins nýtast við vinnu við sviðsmyndagerð um þróun atvinnulífs á Vesturlandi. Verum með og tökum þátt. Það er leiðin til þess að hafa áhrif á hvernig Vesturland þróast. Við bjóðum Vestlendinga velkomna á íbúaþingið í Hjálmakletti 6. maí n.k. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið saedis@ssv.is Mótum framtíð Vesturlands í sameiningu SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á VESTURLANDI

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.