Skessuhorn - 09.01.2019, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 5
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns
með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og
kvenna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar.
Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt
sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru
störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun
og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og konum.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt
og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Árangurstengd laun sumarfólks í vaktavinnu eru um 600.000 krónur á
mánuði fyrir fullt starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi
og af höfuðborgarsvæðinu.
Sumarstarfsmenn í framleiðslu- og iðnstörfum fara á námskeið vegna
vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og
hjá Guðrúnu Hjaltalín Guðjónsdóttur í síma 430 1000. Öllum umsóknum
verður svarað og trúnaði heitið.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Spennandi
sumarstörf
18 ára lágmarksaldur
Dugnaður og sjálfstæði
Bílpróf er skilyrði
Mikil öryggisvitund og árvekni
Heiðarleiki og stundvísi
Góð samskiptahæfni
Hótel í landi Skerðingsstaða,
Grundarfjarðarbæ
Verkefnislýsing fyrir
gerð deiliskipulags
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann
18. október 2018 að kynna verkefnislýsingu fyrir gerð deiliskipulags
á reit í landi Skerðingsstaða. Bæjarstjórn hafði áður veitt landeig-
endum heimild til að vinna að gerð deiliskipulags, skv. 2. mgr. 38. gr.
skipulagslaga. Áform deiliskipulagsins felast í að fyrirhugað er að
reisa hótel, með allt að 100 herbergjum auk fimm stakstæðra
gistihúsa. Skipulagssvæðið er undir Skerðingsstaðafjalli,
á tanga sem gengur út í Lárvaðal.
Athygli er vakin á því að deiliskipulagstillaga samkvæmt þessari
lýsingu mun byggja á samsvarandi stefnu í tillögu að endurskoðuðu
aðalskipulagi sem kynnt hefur verið á vinnslustigi. Gert er ráð fyrir
að báðar tillögur verði auglýstar samtímis fyrri hluta árs 2019.
Verkefnislýsinguna má nálgast á vef sveitarfélagsins,
www.grundarfjordur.is. Óskað er eftir því að athugasemdum
verði komið á framfæri á netfangið bygg@grundarfjordur.is í
síðasta lagi miðvikudag 30. janúar 2019.
Ábendingum má einnig skila skriflega til skipulags- og umhverfis-
nefndar, b.t. skipulagsfulltrúa, Borgarbraut 16, 350 Grundarfirði.
Kynning verkefnislýsingarinnar er í samræmi við 40. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Grundarfjarðarbær
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Fyrir fund í umhverfis-, skipu-
lags- og landbúnaðarnefnd Borg-
arbyggðar síðastliðinn föstudag var
lögð fram beiðni frá Cymene Howe
og Dominic Boyer fyrir hönd Cen-
ter for Energy and Environmen-
tal Research in the Human Scien-
ces (CENHS). Erindið snerist um
beiðni um að fá að setja upp minn-
isvarða um jökulinn Ok, sem talinn
er vera fyrsta jökullinn á Íslandi sem
hefur orðið loftslagsbreytingum að
bráð. Nefndin tók jákvætt í erindið,
með fyrirvara um leyfi landeigenda.
Okjökull var lengst af einn
minnsti jökull landsins, en dyngjan
Ok er upp af Borgafjarðardölum í
um 1200 metra hæð yfir sjó. Sum-
arið 2007 urðu menn fyrst varir við
stöðuvatn í gíg dyngjunnar undir
jöklinum. Fjórum árum síðar töldu
sérfræðingar svo komið að Okið
gæti vart talist til jökla lengur. Odd-
ur Sigurðsson jöklafræðingur sagði
þá í samtali við fjölmiðla að flatar-
mál sjálfs jökulsins væri um 0,7 fer-
kílómetrar og hafi hann hopað hratt
síðustu öldina. Til samanburðar
nefndi Oddur að flatarmál Oksins
árið 1890 hafi verið 16 ferkílómetr-
ar, eða 22. sinnum meira en það
var orðið árið 2011. Þegar jökull-
inn er að verða þetta lítill að flatar-
máli missir hann þá eiginleika sem
einkenna jökla sem t.d. er að skríða
fram undan eigin þunga og mynda
sprungur með tilheyrandi vatns-
gangi í leysingum. Oddur og aðrir
jöklafræðingar töldu þá að komið
væri að því að skrifa formlegt dán-
arvottorðs Oksins sem jökuls.
mm
Fyrsti jökullinn sem verður
loftlagsbreytingum að bráð
Horft upp í hlíðar Oksins úr Reykholtsdal. Búrfell neðar til vinstri og til hægri eru
Steindórsstaðir og Rauðsgil.
Sumarið 2007 uppgötvaði Hilmar J. Malmquist stöðuvatn sem myndast hafði í
dyngju jökulsins. Ljósm. úr safni: hm.