Skessuhorn - 09.01.2019, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 7
Í desember 2017 hlaut Karen
Jónsdóttir, Kaja hjá Kaja Org-
anic á Akranesi, öndvegisstyrk að
upphæð fjórar milljónir króna úr
Uppbyggingarsjóði Vesturlands.
Styrkinn hlaut hún til þróunar á
jurtamjólk. Nú, rúmlega ári síðar,
er þróunarvinnu lokið og Kaja hef-
ur sett í sölu þrjá drykki sem fram-
leiddir eru úr haframjólk sem hún
flytur inn frá Ítalíu. Það er Tur-
merik Latte, Chai Latte og Súkk-
ulaði Chai Latte. „Nú þegar fram-
leiðsluferlið er klárt stefni ég á að
framleiða haframjólkina sjálf en
fyrst þarf ég að koma upp búnaði
til að ná afköstum,“ útskýrir Kaja
þegar blaðamaður kíkti til henn-
ar í verslunina Matarbúr Kaju við
Stillholt á Akranesi.
Lífræn haframjólk
Þetta er jafnframt í fyrsta skipti sem
jurtamjólk með löngu geymslu-
þoli er framleidd á Íslandi en Öl-
gerðin framleiðir í dag jurtamjólk
sem er með 12 daga geymsluþoli.
„Markaðurinn fyrir jurtamjólk
hér á landi er um ein milljón lítra
á ári og fer ört vaxandi. Fram-
leiðsluaðferð þar sem jurtamjólk
er með 18 mánaða geymsluþoli er
vel þekkt erlendis en vélbúnaður-
inn sem notaður er við slíka fram-
leiðslu kostar um 200-300 millj-
ónir króna og framleiðslugetan er
um 800 þúsund einingar á viku.
Það er enginn hér að fara í slíka
fjárfestingu með svo lítinn markað
að baki,“ segir Kaja.
Kaja hefur ásamt Matís, Þórarni
Agli mjólkurfræðingi og Guðrúnu
Jónsdóttur eðlisverkfræðingi,
unnið að því að leita ódýrari leiða
til að framleiða jurtamjólkina fyr-
ir markaðinn hér á landi. „Mjólk
hefur hátt sýrustig og geymist því
illa. Það sem við þurftum því að
gera var að finna út framleiðslu-
aðferð til að gerilsneyða mjólkina
og tryggja gæði hennar og góðan
geymslutíma,“ segir Kaja. Eftir
mikla þróunarvinnu og tilraunir
fundu þau aðferð sem hentar til
framleiðslu á mjólkinni og get-
ur hún í dag tryggt geymsluþol í
að lágmarki einn mánuð. „Ég veit
samt að geymsluþolið er meira en
það tekur tíma að fá það staðfest
frá Matís til að hafa lengri stimpil
á vörunni. Þeir þurfa fyrst að hafa
vöruna hjá sér í nokkra mánuði og
fylgjast með henni. En ég hef sjálf
prófað að geyma mjólkina í þrjá
mánuði og það var í góðu lagi með
hana,“ segir Kaja. Haframjólk-
in hjá Kaju er lífræn og án allra
aukaefna. „Það eru engin bindi-
efni eða önnur aukaefni í drykkj-
unum en þeir eru bæði hollir og
mjög bragðgóðir, þó ég segi sjálf
frá,“ segir Kaja að endingu. arg
Ný íslensk jurtamjólk kemur í sölu
Karen Jónsdóttir hefur nú hellt sér út í vöruhönnun og þróar jurtamjólk.
Kaja hefur sett í sölu þrjár tegundir af jurtamjólkurdrykkjum. Ljósm. Unnur Jónsdóttir.