Skessuhorn


Skessuhorn - 09.01.2019, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 09.01.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 19 Á síðasta kjörtímabili var samþykkt og auglýstar breytingar á aðal- skipulagi og deiliskipulagi Borgar- byggðar sem fól í sér möguleika á að setja niður skotæfingasvæði rétt við friðlandið í Einkunnum og á helsta útivistarsvæði hestamanna í Borgarbyggð. Er skemmst frá því að segja að verkefnið fékk slæmar viðtökur og m.a. munu 123 íbúar hafa gert formlegar athugasemdir, sem mun vera fáheyrður fjöldi athugasemda við tillögur um breytingar á skipu- lagi. Niðurstaðan varð því sú að þá- verandi meirihluti í Borgarbyggð lagði málið til hliðar. En rétt fyrir síðustu bæjar- stjórnakosningar þann 9. maí 2018 var þessi vanhugsaða tillaga um eyðileggingu þessara útivistasvæða lögð aftur fyrir umhverfis-, skipu- lags- og landbúnaðarnefnd. Á við- komandi nefndarfundi virðast að- eins hafa verið mættir 3 af 5 nefnd- armönnum. Tillögur um breyting- ar á aðalskipulagi og deiliskipulagi Borgarbyggðar var síðan samþykkt með 2 atkvæðum gegn 1. Það má því með réttu segja að efasemdir geta verið um réttmæti og lögmæti þessara samþykktar. Þessi gjörningur var síðan stað- festur af bæjarstjórn þann 14 maí, á einum af síðustu fundum þáver- andi sveitarstjórnar. Síðan gerist ekkert í málinu fyrr en 19. nóvem- ber s.l. að þessar skipulagstillögur eru auglýsingar með fresti til þess að gera athugasemdir við þær til 21. janúar 2019. Það er læðst með þetta í auglýs- ingu þegar jólaundirbúningur er að hefjast á mörgum heimilum, jól og áramót að koma, tími sem flestir hafa um eitthvað annað að hugsa en skipulagmál. Þetta er gert með einföldum látlausum auglýsingum, væntalega til þess að koma málinu í gegn án mikillar eftirtektar. Alveg er gleymd klausan í sam- starfssamningi núverandi meiri- hluta í Borgarbyggð; „Farið verði í frekari kynningu a skotæfingar- svæði í landi Einkunna áður en tekin er endanleg ákvörðn um leyf- sveitingu fyrir starfsemina.“ En eins og þessi klausa ber með sér var gert ráð fyrir samráði um næstu skref og að auki þá virðist vera til staðar sami skilningur og hjá flestu hugsandi fólki, að verið sé að setja niður skotæfingasvæði í friðlandi Einkunna! E.t.v. er rétt að minnast þess að meirihluti Sjálfstæðismanna og Samfylkingar á síðasta kjörtíma- bili var með allt niður um sig þegar kom að skipulagsmálum í Borgar- byggð, eins og dæmin sýna. Eftir- spurn eftir óbreyttu verklagi var ekki meiri en svo að Sjálfstæðis- flokkurinn tapaði 25% af fylgi sínu og Samfylkingin galt afhroð og tapað 40% af sínu fylgi í bæj- arstjórnarkosningum í vor, sem ætti að sýna núverandi meirihluta að takmörkuð eftirspurn er eftir óbreyttu verklagi og vinnubrögð- um innan sveitarstjórnar. Ef Umhverfisskýrsla um verk- efnið er lesin þá má sjá fjölda vafa- samra fullyrðinga um takmörk- uð áhrif þess að setja niður skot- æfingasvæði í útvistarsvæði hesta- manna og við hlið friðlandsins í Einkunnum. Í umhverfismati áætlunar segir í niðurstöðum um hávaðamælingar á útivistarsvæðinu: „Áætlað hljóðstig við Lækjar- kot liggur þó yfir neðri mörkum og má út frá því búast við að hljóð- stig frá 5 skotbrautum geti mögu- lega verið yfir viðmiðunarmörk- um fyrir Álatjörn og önnur svæði sem liggja í um 1 km fjarlægð frá fyrirhuguðu skotsvæði. Meta þarf því hvort eitthvað af því svæði sem liggur í nálægð við 1 km jaðarinn frá skotsvæðinu eigi að skilgrei- nast sem útivistarsvæði samkvæmt sænsku viðmiðunarreglum og þá sérstaklega hvort eitthvað af þeim svæðum sé ætlað til reiðmennsku þar sem skyndilegir hvellir geta fælt hesta.“ Rétt er að hafa það í huga að Álatjörn mun vera 800 metra frá skotsvæðinu þannig að áhrif frá því gætir langt inn í friðland Ein- kunna. Ein rökin í um- h v e r f i s m a t i n u fyrir því að setja niður skotæfing- arsvæði í mitt útivistarsvæði hesta- manna og við friðlandið í Einkunn- um er að skotíþróttin sé í vexti og það eitt muni efla byggð. Það er alveg horft framhjá þeirri staðreynd að vaxandi eftirspurn er eftir ósnortnum útivistasvæðum eins og Einkunnum, þar sem fólk getur sótt á vit nátturunnar, til afs- löppunar og afþreyingar, fjarri skarkala þéttbýlisins. Mun líklegra er að ósnortin náttura muni hafa jákvæð áhrif á frekari uppbyggingu byggðar í Borgarnesi heldur en skotæfingasvæði við bæjarmörkin. Einkunnir og svæðið umhverfis eru náttúruperla sem verður verð- mætari og verðmætari eftir því sem árin líða. Látum ekki skamm- sýna og/eða þröngsýna stjórnmála- menn eyðileggja svæðið, mótmæl- um þessum óábyrga og óheiðarlega gerningi. Borgarnesi, 6. janúar 2019. Guðsteinn Einarsson. Pennagrein Eyðilegging friðlandsins í Einkunnum! Pennagrein Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam- þykkti á fundi sínum 14. maí síðast- liðinn að auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi Borgarbyggðar og tillögu að nýju deiliskipulagi til þess að koma fyrir skotæfinga- svæði í landi Hamars. Auglýsing- in er í lögbundnu ferli hjá Borgar- byggð og hægt er að nálgast gögn og upplýsingar á slóðinni https:// borgarbyggd.is/thjonusta/um- hverfis-og-skipulagssvid/skipu- lagsmal/. Þessi ákvörðun gamla meirihlut- ans var mjög umdeild og þegar lýs- ing á breytingatillögunni var kynnt bárust ábendingar og mótmæli frá 134 íbúum, stofnunum og félaga- samtökum! Mótmæli hagsmuna- aðila voru af ýmsum toga. Íbúar bentu á að tillagan samræmdist ekki aðalskipulagi Borgarbyggðar, uppbyggingu á fólkvanginum, ör- yggisþáttum og starfsemi sem er innan og við fólkvanginn. Einn- ig var vitnað til hljóðmengunar, öryggismála, náttúruupplifunar, stærðar sveitarfélagsins, til náttúru fólkvangsins og bent á hve stutt er í æskulýðsstarf, mannvirki og nátt- úrufyrirbrigði. Jafnframt bárust athugasemdir vegna nálægðar við atvinnustarfsemi. Íbúar í Lækjar- koti lýstu yfir andstöðu sinni, en í Lækjarkoti er rekin öflug ferða- þjónusta, listagallerí og járnsmiðja sem skapar fjölda starfa. Íbúar Lækjarkots lýstu því yfir að stað- setning skotæfingasvæðisins kippti fótunum undan rekstri þeirra, ef af þessari ákvörðun yrði þyrftu þau að bregða búi og flytja sig um set með starfsemi sína. Sveitar- félagið er skaðabótaskylt fyrir því tjóni sem þessi framkvæmd kann að kosta. Skemmst er frá því að segja að at- hugasemdum var ekki svarað, ekki var tekið tillit til þeirra við breyt- ingu á aðalskipulaginu né við gerð deiliskipulagsins og ekkert samráð var haft við hagsmunaaðila sem hafa nýtt svæðið í tugi eða hundr- uði ára! Ekki minnsta tilraun gerð til að leita sátta – þó er málið búið að vera í vinnslu hjá Borgarbyggð síðan 2013. Slík vinnubrögð kalla á óánægju og reiði íbúa sem kom fram í undanfara síðustu sveitar- stjórnarkosninga í Borgarbyggð og úrslitum þeirra. Meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks féll en myndaði nýjan meirihluta, með Vinstrihreyfingunni – grænu framboði að kosningum loknum, sem ætlar sér að halda málinu til streitu. Töluvert er búið að skrifa um þetta mál og hef ég reynt að halda utan um þau skrif á vefnum https:// folkvangurinneinkunnir.weebly. com/. Það sem mestu máli skiptir í þeirri umræðu er að skotæfinga- svæðið fer ekki saman við þá starf- semi sem fyrir er á svæðinu og hef- ur verið þar í tugi og/eða hundruði ára. Má þar nefna að það verða: 150 m í fólkvanginn í Einkunn- um (167,5 dB) 400 m í næstu reið- og göngu- leiðir (155 dB) 800 m í Álatjörn sem er vinsæll útivistarstaður (135 dB) 1000 m í skátaskála (125 dB) 1300 m í Lækjarkot (95 dB) Það kemur fram í deiliskipulag- stillögunni að skothvellir verða allt að 175 dB (geti orðið meiri þegar skotið verður á öllum fimm riffil- brautunum í einu) og hljóðstyrk- urinn lækkar um 5 dB við hverja 100 metra (tölur í sviga hér að ofan sýna þann hávaða sem reikna má að heyrist þegar hleypt verður af). Samkvæmt reglugerðarbreytingu B nr. 832 2016, þá eru sársauka- mörk skilgreind við 140 dB þann- ig að þau sem verða á ferðinni í Einkunnum, eða verða á reið- eða gönguleiðinni og eru ekki með heyrnarhlífar, mega reikna með því að verða fyrir heyrnarskemmd- um, samkvæmt sömu reglugerðar- breytingu! Hljóðmælingaskýrslan sem deiliskipulagstillagan byggir á er ómarktæk þar sem ekki kemur fram gerð skotvopna sem notuð voru við prófanirnar, skotvopnin sem notuð voru við hljóðmæling- arnar voru ekki hljóðmæld, ekki haft samráð við hagsmunaaðila við val á mælistöðum, fjarlægða frá mælistöðum að skotstað ekki getið, veðurskilyrði voru óhagstæð þegar mælingar fóru fram og hvorki var starfsmaður Borgarbyggðar né annar óvilhallur aðili fenginn til að vera viðstaddur þegar hleypt var af skotunum. Að þessu sögðu hvet ég nýja sveitarstjórn Borgarbyggðar til að hverfa frá þessari framkvæmd og horfa fram á veginn. Nýta þau tækifæri sem eru falin í því að virkja náttúruna og auðlindir hennar á jákvæðan hátt t.d. með því að að byggja upp fleiri útivistarsvæði (t.d. í samstarfi við Skógræktar- félag Borgarfjarðar) þar sem hægt er að njóta náttúru, náttúruhljóða og kyrrðar, með því að koma upp fleiri friðlýstum svæðum líkt og Einkunnum. Dæmin hafa sýnt að þjóðgarðar og friðlýst svæði eru auðlindir framtíðarinnar sem færa nær samfélögum sínum góðar tekjur og ný atvinnutækifæri. Það að setja skotæfingasvæði niður í 150 m fjarlægð frá eina fólkvangi Vesturlands og í 5 km fjarlægð frá Hvanneyri sem er friðlýst og hefur hlotið viðurkenn- ingu sem Ramsarsvæði, alþjóð- legt búsvæði fugla - sýnir stefnu Borgarbyggðar í náttúruvernd á friðlýstum svæðum í verki. Þessi gjörningur rýrir mörg tækifæri fyrir sveitarfélagið, íbúa, stofnan- ir og fyrirtæki þess þegar til lengri tíma er litið, s.s. í umræðunni um staðsetningu Þjóðgarðastofnunar sem á eftir að ákveða hvar verð- ur staðsett. Rétt er að geta góðrar greinar Höllu Signýjar Kristjáns- dóttur, þingmanns Vesturlands, í Skessuhorni þann 5. desember sl., um málið. Hvet ég alla þá sem skilað hafa inn athugasemdum að gera það aftur og þeim sem ekki hafa skilað inn athugasemdum er velkomið að ganga í mína smiðju og nota rök sem hafa komið fram í greinum mínum og eru á heimasíðu fólk- vangsins. Athugasemdir og ábend- ingar skulu vera skriflegar og ber- ast eigi síðar en mánudaginn 21. janúar 2019 í Ráðhús Borgar- byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borg- arbyggd@borgarbyggd.is. Að lokum óska ég Vestlending- um gleðilegs nýs árs og þakka sam- skiptin á liðnum árum. Hilmar Már Arason. Höf. er fyrrverandi formaður um- sjónarnefndar fólkvangsins í Ein- kunnum. „...sýnir stefnu Borgarbyggðar í náttúruvernd á friðlýstum svæðum í verki.“ Álatjörn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.