Skessuhorn - 09.01.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 19
Á síðasta kjörtímabili var samþykkt
og auglýstar breytingar á aðal-
skipulagi og deiliskipulagi Borgar-
byggðar sem fól í sér möguleika á
að setja niður skotæfingasvæði rétt
við friðlandið í Einkunnum og á
helsta útivistarsvæði hestamanna í
Borgarbyggð.
Er skemmst frá því að segja að
verkefnið fékk slæmar viðtökur
og m.a. munu 123 íbúar hafa gert
formlegar athugasemdir, sem mun
vera fáheyrður fjöldi athugasemda
við tillögur um breytingar á skipu-
lagi. Niðurstaðan varð því sú að þá-
verandi meirihluti í Borgarbyggð
lagði málið til hliðar.
En rétt fyrir síðustu bæjar-
stjórnakosningar þann 9. maí 2018
var þessi vanhugsaða tillaga um
eyðileggingu þessara útivistasvæða
lögð aftur fyrir umhverfis-, skipu-
lags- og landbúnaðarnefnd. Á við-
komandi nefndarfundi virðast að-
eins hafa verið mættir 3 af 5 nefnd-
armönnum. Tillögur um breyting-
ar á aðalskipulagi og deiliskipulagi
Borgarbyggðar var síðan samþykkt
með 2 atkvæðum gegn 1. Það má
því með réttu segja að efasemdir
geta verið um réttmæti og lögmæti
þessara samþykktar.
Þessi gjörningur var síðan stað-
festur af bæjarstjórn þann 14 maí,
á einum af síðustu fundum þáver-
andi sveitarstjórnar. Síðan gerist
ekkert í málinu fyrr en 19. nóvem-
ber s.l. að þessar skipulagstillögur
eru auglýsingar með fresti til þess
að gera athugasemdir við þær til
21. janúar 2019.
Það er læðst með þetta í auglýs-
ingu þegar jólaundirbúningur er að
hefjast á mörgum heimilum, jól og
áramót að koma, tími sem flestir
hafa um eitthvað annað að hugsa
en skipulagmál. Þetta er gert með
einföldum látlausum auglýsingum,
væntalega til þess að koma málinu í
gegn án mikillar eftirtektar.
Alveg er gleymd klausan í sam-
starfssamningi núverandi meiri-
hluta í Borgarbyggð; „Farið verði
í frekari kynningu a skotæfingar-
svæði í landi Einkunna áður en
tekin er endanleg ákvörðn um leyf-
sveitingu fyrir starfsemina.“
En eins og þessi klausa ber með
sér var gert ráð fyrir samráði um
næstu skref og að auki þá virðist
vera til staðar sami skilningur og
hjá flestu hugsandi fólki, að verið
sé að setja niður skotæfingasvæði í
friðlandi Einkunna!
E.t.v. er rétt að minnast þess að
meirihluti Sjálfstæðismanna og
Samfylkingar á síðasta kjörtíma-
bili var með allt niður um sig þegar
kom að skipulagsmálum í Borgar-
byggð, eins og dæmin sýna. Eftir-
spurn eftir óbreyttu verklagi var
ekki meiri en svo að Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði 25% af fylgi
sínu og Samfylkingin galt afhroð
og tapað 40% af sínu fylgi í bæj-
arstjórnarkosningum í vor, sem
ætti að sýna núverandi meirihluta
að takmörkuð eftirspurn er eftir
óbreyttu verklagi og vinnubrögð-
um innan sveitarstjórnar.
Ef Umhverfisskýrsla um verk-
efnið er lesin þá má sjá fjölda vafa-
samra fullyrðinga um takmörk-
uð áhrif þess að setja niður skot-
æfingasvæði í útvistarsvæði hesta-
manna og við hlið friðlandsins í
Einkunnum.
Í umhverfismati áætlunar segir í
niðurstöðum um hávaðamælingar
á útivistarsvæðinu:
„Áætlað hljóðstig við Lækjar-
kot liggur þó yfir neðri mörkum
og má út frá því búast við að hljóð-
stig frá 5 skotbrautum geti mögu-
lega verið yfir viðmiðunarmörk-
um fyrir Álatjörn og önnur svæði
sem liggja í um 1 km fjarlægð frá
fyrirhuguðu skotsvæði. Meta þarf
því hvort eitthvað af því svæði sem
liggur í nálægð við 1 km jaðarinn
frá skotsvæðinu eigi að skilgrei-
nast sem útivistarsvæði samkvæmt
sænsku viðmiðunarreglum og þá
sérstaklega hvort eitthvað af þeim
svæðum sé ætlað til reiðmennsku
þar sem skyndilegir hvellir geta
fælt hesta.“
Rétt er að hafa það í huga að
Álatjörn mun vera 800 metra frá
skotsvæðinu þannig að áhrif frá
því gætir langt inn í friðland Ein-
kunna.
Ein rökin í um-
h v e r f i s m a t i n u
fyrir því að setja niður skotæfing-
arsvæði í mitt útivistarsvæði hesta-
manna og við friðlandið í Einkunn-
um er að skotíþróttin sé í vexti og
það eitt muni efla byggð.
Það er alveg horft framhjá þeirri
staðreynd að vaxandi eftirspurn er
eftir ósnortnum útivistasvæðum
eins og Einkunnum, þar sem fólk
getur sótt á vit nátturunnar, til afs-
löppunar og afþreyingar, fjarri
skarkala þéttbýlisins. Mun líklegra
er að ósnortin náttura muni hafa
jákvæð áhrif á frekari uppbyggingu
byggðar í Borgarnesi heldur en
skotæfingasvæði við bæjarmörkin.
Einkunnir og svæðið umhverfis
eru náttúruperla sem verður verð-
mætari og verðmætari eftir því
sem árin líða. Látum ekki skamm-
sýna og/eða þröngsýna stjórnmála-
menn eyðileggja svæðið, mótmæl-
um þessum óábyrga og óheiðarlega
gerningi.
Borgarnesi, 6. janúar 2019.
Guðsteinn Einarsson.
Pennagrein
Eyðilegging friðlandsins í Einkunnum!
Pennagrein
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum 14. maí síðast-
liðinn að auglýsa tillögu að breyttu
aðalskipulagi Borgarbyggðar og
tillögu að nýju deiliskipulagi til
þess að koma fyrir skotæfinga-
svæði í landi Hamars. Auglýsing-
in er í lögbundnu ferli hjá Borgar-
byggð og hægt er að nálgast gögn
og upplýsingar á slóðinni https://
borgarbyggd.is/thjonusta/um-
hverfis-og-skipulagssvid/skipu-
lagsmal/.
Þessi ákvörðun gamla meirihlut-
ans var mjög umdeild og þegar lýs-
ing á breytingatillögunni var kynnt
bárust ábendingar og mótmæli frá
134 íbúum, stofnunum og félaga-
samtökum! Mótmæli hagsmuna-
aðila voru af ýmsum toga. Íbúar
bentu á að tillagan samræmdist
ekki aðalskipulagi Borgarbyggðar,
uppbyggingu á fólkvanginum, ör-
yggisþáttum og starfsemi sem er
innan og við fólkvanginn. Einn-
ig var vitnað til hljóðmengunar,
öryggismála, náttúruupplifunar,
stærðar sveitarfélagsins, til náttúru
fólkvangsins og bent á hve stutt er
í æskulýðsstarf, mannvirki og nátt-
úrufyrirbrigði. Jafnframt bárust
athugasemdir vegna nálægðar við
atvinnustarfsemi. Íbúar í Lækjar-
koti lýstu yfir andstöðu sinni, en
í Lækjarkoti er rekin öflug ferða-
þjónusta, listagallerí og járnsmiðja
sem skapar fjölda starfa. Íbúar
Lækjarkots lýstu því yfir að stað-
setning skotæfingasvæðisins kippti
fótunum undan rekstri þeirra, ef
af þessari ákvörðun yrði þyrftu
þau að bregða búi og flytja sig um
set með starfsemi sína. Sveitar-
félagið er skaðabótaskylt fyrir því
tjóni sem þessi framkvæmd kann
að kosta.
Skemmst er frá því að segja að at-
hugasemdum var ekki svarað, ekki
var tekið tillit til þeirra við breyt-
ingu á aðalskipulaginu né við gerð
deiliskipulagsins og ekkert samráð
var haft við hagsmunaaðila sem
hafa nýtt svæðið í tugi eða hundr-
uði ára! Ekki minnsta tilraun gerð
til að leita sátta – þó er málið búið
að vera í vinnslu hjá Borgarbyggð
síðan 2013. Slík vinnubrögð kalla
á óánægju og reiði íbúa sem kom
fram í undanfara síðustu sveitar-
stjórnarkosninga í Borgarbyggð
og úrslitum þeirra. Meirihluti
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
féll en myndaði nýjan meirihluta,
með Vinstrihreyfingunni – grænu
framboði að kosningum loknum,
sem ætlar sér að halda málinu til
streitu.
Töluvert er búið að skrifa um
þetta mál og hef ég reynt að halda
utan um þau skrif á vefnum https://
folkvangurinneinkunnir.weebly.
com/. Það sem mestu máli skiptir
í þeirri umræðu er að skotæfinga-
svæðið fer ekki saman við þá starf-
semi sem fyrir er á svæðinu og hef-
ur verið þar í tugi og/eða hundruði
ára. Má þar nefna að það verða:
150 m í fólkvanginn í Einkunn-
um (167,5 dB)
400 m í næstu reið- og göngu-
leiðir (155 dB)
800 m í Álatjörn sem er vinsæll
útivistarstaður (135 dB)
1000 m í skátaskála (125 dB)
1300 m í Lækjarkot (95 dB)
Það kemur fram í deiliskipulag-
stillögunni að skothvellir verða allt
að 175 dB (geti orðið meiri þegar
skotið verður á öllum fimm riffil-
brautunum í einu) og hljóðstyrk-
urinn lækkar um 5 dB við hverja
100 metra (tölur í sviga hér að ofan
sýna þann hávaða sem reikna má
að heyrist þegar hleypt verður af).
Samkvæmt reglugerðarbreytingu
B nr. 832 2016, þá eru sársauka-
mörk skilgreind við 140 dB þann-
ig að þau sem verða á ferðinni í
Einkunnum, eða verða á reið- eða
gönguleiðinni og eru ekki með
heyrnarhlífar, mega reikna með
því að verða fyrir heyrnarskemmd-
um, samkvæmt sömu reglugerðar-
breytingu!
Hljóðmælingaskýrslan sem
deiliskipulagstillagan byggir á er
ómarktæk þar sem ekki kemur
fram gerð skotvopna sem notuð
voru við prófanirnar, skotvopnin
sem notuð voru við hljóðmæling-
arnar voru ekki hljóðmæld, ekki
haft samráð við hagsmunaaðila við
val á mælistöðum, fjarlægða frá
mælistöðum að skotstað ekki getið,
veðurskilyrði voru óhagstæð þegar
mælingar fóru fram og hvorki var
starfsmaður Borgarbyggðar né
annar óvilhallur aðili fenginn til að
vera viðstaddur þegar hleypt var af
skotunum.
Að þessu sögðu hvet ég nýja
sveitarstjórn Borgarbyggðar til
að hverfa frá þessari framkvæmd
og horfa fram á veginn. Nýta þau
tækifæri sem eru falin í því að virkja
náttúruna og auðlindir hennar á
jákvæðan hátt t.d. með því að að
byggja upp fleiri útivistarsvæði
(t.d. í samstarfi við Skógræktar-
félag Borgarfjarðar) þar sem hægt
er að njóta náttúru, náttúruhljóða
og kyrrðar, með því að koma upp
fleiri friðlýstum svæðum líkt og
Einkunnum. Dæmin hafa sýnt að
þjóðgarðar og friðlýst svæði eru
auðlindir framtíðarinnar sem færa
nær samfélögum sínum góðar
tekjur og ný atvinnutækifæri.
Það að setja skotæfingasvæði
niður í 150 m fjarlægð frá eina
fólkvangi Vesturlands og í 5 km
fjarlægð frá Hvanneyri sem er
friðlýst og hefur hlotið viðurkenn-
ingu sem Ramsarsvæði, alþjóð-
legt búsvæði fugla - sýnir stefnu
Borgarbyggðar í náttúruvernd á
friðlýstum svæðum í verki. Þessi
gjörningur rýrir mörg tækifæri
fyrir sveitarfélagið, íbúa, stofnan-
ir og fyrirtæki þess þegar til lengri
tíma er litið, s.s. í umræðunni um
staðsetningu Þjóðgarðastofnunar
sem á eftir að ákveða hvar verð-
ur staðsett. Rétt er að geta góðrar
greinar Höllu Signýjar Kristjáns-
dóttur, þingmanns Vesturlands, í
Skessuhorni þann 5. desember sl.,
um málið.
Hvet ég alla þá sem skilað hafa
inn athugasemdum að gera það
aftur og þeim sem ekki hafa skilað
inn athugasemdum er velkomið að
ganga í mína smiðju og nota rök
sem hafa komið fram í greinum
mínum og eru á heimasíðu fólk-
vangsins. Athugasemdir og ábend-
ingar skulu vera skriflegar og ber-
ast eigi síðar en mánudaginn 21.
janúar 2019 í Ráðhús Borgar-
byggðar, Borgarbraut 14, 310
Borgarnesi eða á netfangið borg-
arbyggd@borgarbyggd.is.
Að lokum óska ég Vestlending-
um gleðilegs nýs árs og þakka sam-
skiptin á liðnum árum.
Hilmar Már Arason.
Höf. er fyrrverandi formaður um-
sjónarnefndar fólkvangsins í Ein-
kunnum.
„...sýnir stefnu Borgarbyggðar í náttúruvernd
á friðlýstum svæðum í verki.“
Álatjörn.