Skessuhorn - 09.01.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 15
Vatnsleki uppgötvaðist í Auðar-
skóla í Búðardal skömmu fyrir jól
og viðgerðir standa nú yfir á tveim-
ur kennslustofum. Það var Hlöð-
ver Ingi Gunnarsson skólastjóri sem
gekk fram á lekann skömmu fyr-
ir jól. „Ég gekk fram á lekann rétt
áður en ég fór í jólafrí, sá að dúk-
ur á gólfinu var bólginn og þegar ég
kom við hann þá var hann sjóðandi
heitur,“ segir Hlöðver í samtali við
Skessuhorn. „Lagnirnar eru þarna í
stokk undir gólfinu. Um er að ræða
upprunlegar lagnir frá því skólahús-
ið var byggt á áttunda áratugnum. Á
rörinu mátti sjá að það var farið að
tærast töluvert. Nú vitum við ekki
fyrir víst hvað gerðist en getum okk-
ur til að myndast hafi rifa sem síðan
hafi brostið seinni partinn í desemb-
er einhvern tímann,“ bætir hann
við. Hlöðver segir þó lán í óláni að
lekinn hafi uppgötvast fyrir jól. „Það
er í rauninni ágætt að lekinn upp-
götvaðist á þessum tímapunkti, fyrst
fór að leka á annað borð. Ég mætti
ekki til vinnu aftur fyrr en 27. des-
ember, sex dögum eftir að ég varð
var við lekann. Ef vatnið hefði feng-
ið að leka áfram yfir jólin má ætla
að skemmdir hefðu orðið töluvert
miklar, jafnvel allt á floti í þessum
stofum,“ segir hann.
Reynt að lágmarka rask
En skemmdirnar sem vatnið olli
eru engu að síður nokkrar. „Það
er verið að laga gólf og veggi í
tveimur kennslustofum. Þarna eru
spóna- og gipsveggir sem eru tölu-
vert skemmdir, eiginlega orðn-
ir af hálfgerðri drullu næst gólf-
inu vegna raka- og ekki síður hita-
skemmda. Stofurnar tvær sem um
ræðir eru samtals um 60 fermetr-
ar, á að giska. Rífa þurfti um helm-
ing af þeim veggfleti inn að steypu
og svo er dúkurinn skemmdur á ein-
hverju bili,“ segir Hlöðver. Eðlilega
hefur því rask orðið á kennslu. „Við
vildum alls ekki missa nemendur út
úr húsinu og fórum því þá leið að
tæma bókasafnið. Unglingunum er
kennt þar og þar með losnaði um
eina stofu niðri, þar sem við kenn-
um 1.-3. bekk saman í einni stórri
stofu næstu tvær vikurnar. Allir
hafa verið mjög lausnamiðaðir og
lagst á eitt við að láta hlutina ganga
upp á meðan framkvæmdir standa
yfir. Reynt er að haga smíðavinnu
og öðru sem mest þannig að smíða-
vinna fari fram utan kennslutíma,
en auðvitað verður alltaf eitthvað
rask og ónæði þegar svona kemur
upp. Það verður síðan vonandi um
eða upp úr 20. janúar sem stofurn-
ar tvær verða orðnar kennsluhæfar
aftur,“ segir Hlöðver.
Viðburðarík vorönn
framundan
Að öðrum kosti segir Hlöðver
skólastarf í Auðarskóla ganga vel.
„Hér eru allir í fullu fjöri og alltaf
gaman að byrja skólastarf að nýju
eftir áramót, því nýju ári fylgja
ný markmið og ný tækifæri,“
segir hann. „Framundan á vor-
önn er meðal annars skólaferða-
lag unglingadeildarinnar til Dan-
merkur. Síðan verður Upplestr-
arkeppni grunnskólanna haldin í
Auðarskóla, en þar munu nem-
endur í samstarfsskólunum svo-
kölluðu á Vesturlandi etja kappi
og Lyngbrekkuballið margfræga
verður haldið í Auðarskóla að
þessu sinni. Það er því útlit fyr-
ir skemmtilega og viðburðaríka
vorönn,“ segir Hlöðver skóla-
stjóri að endingu.
kgk
Tvær stofur í Auðarskóla skemmdar vegna vatnsleka
Viðgerð lýkur vonandi um 20. janúar, segir skólastjórinn
Auðarskóli í Búðardal. Ljósm. úr safni. sm.
Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110
www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is
Vandaðar svuntur
í mörgum litum
Fáið verðtilboð í vinnufatnað og merkingar.
Smáprent