Skessuhorn - 09.01.2019, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 9
Í fréttaviðtali í Skessuhorni í des-
ember síðastliðnum var sagt frá
breytingum sem framundan eru í
rekstri Framköllunarþjónustunn-
ar í Borganesi. Þeir sem eingöngu
lásu fyrirsögn fréttarinnar mis-
skildu hins vegar innihald henn-
ar. Hið rétta er að einungis stend-
ur til að leggja einni vél, þeirri
sem framkallar gömlu filmurnar.
Rekstur hennar er of dýr miðað við
fjölda filma sem enn eru í umferð.
„Við höldum hins vegar áfram allri
þjónustu við myndvinnslu, við-
gerðir, teikningaplottun, plöstun
og útprentun stafrænna mynda fyr-
ir viðskiptavini. Við getum stækk-
að ljósmyndir, sett á striga eða ál-
plötur og fóm, allt eftir óskum,“
segir Svanur Steinarsson í samtali
við Skessuhorn.
„Aðrar breytingar í rekstri snúa
að nýju vöruframboði eins og fram
kom í fréttinni, garn- og lopasala
er nýjung hjá okkur og minjagrip-
ir og fjölbreytt gjafavara er í boði.
Þá erum við áfram með passam-
yndatöku og umboð fyrir Heims-
ferðir. Á heimasíðu Framköllunar-
þjónustunnar getur fólk séð vöru-
og þjónustuframboð okkar,“ segir
Svanur Steinarsson.
mm
Heldur áfram allri
framköllun á stafrænu efni
Svanur við gömlu filmuframköllunarvélina sem nú verður lagt sökum hás
rekstrarkostnaðar.
20 ára
ALDURSTAKMARK
FORSALA MIÐ
A
HEFST Í ÍSLA
NDS-
BANKA FÖST
UDAGINN
11. JANÚAR K
L.9
Borðapantan
ir á staðnum
þann dag.
Síðar geta þe
ir sem eiga m
iða
pantað borð
á netfanginu
klubbur71@g
mail.com
AÐEINS ÞEIR SEM HAFA GREITT MIÐA GETA PANTAÐ BORÐ!
ANNÁLL AKURNESINGA – árgangur ‘78 hjálpar okkur að muna allt það sem upp úr stendur og öllu máli skiptir ...
Matur og ball: 9.200 kr. / Ball: 3.000 kr. Húsið opnar kl. 18.30 og salurinn kl. 19.
Borðhald hefst kl. 20. Húsið opnar fyrir ballgesti kl. 24.ÍÞRÓTTAHÚSINU JAÐARSBÖKKUM
LAUGARDAGINN 21. JANÚAR
Matur & ball
AÐGÖNGUMIÐI
Matur & ball
Húsið opnar kl. 19.30
Borðhald hefst kl. 20.00
Miðaverð: 7.500 kr.
ÞORRABLÓT SKAGAMANNA
ÓGLEYM
ANLEG
SKEMMT
UN
SEM EN
GINN
MÁ MIS
SA AF!
HREIMUR ÖRN HEIMISSON OG
HLJÓMSVEITIN MADE IN SVEITIN
STÓRKOSTLEG ÓVÆNT ATRIÐI
SKAGAMAÐUR ÁRSINS
GLEÐIN
NI
STJÓRN
A
EVA LAU
FEY OG
SIGRÚN
ÓSK
Íþróttahúsinu Vesturgötu
26. janúar 2019
Stefnt er að því að opna útibú fast-
eignasölunnar Domusnova á Akra-
nesi næstkomandi mánudag, 14.
janúar. Víðir Arnar Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Domusnova,
segir í samtali við Skessuhorn að
fyrirtækið telji mikil tækifæri felast í
fasteignamarkaðnum á Vesturlandi
og þá sérstaklega á Akranesi. „Við
teljum að aukinn fjöldi nýbygginga
á svæðinu muni koma af stað miklu
lífi í fasteignaviðskipi. Domusnova
mun til að mynda hafa umsjón með
sölu íbúða á Dalbrautarreitnum,
sem Byggingafélagið Bestla ehf.
byggir. Sá reitur er kærkomin við-
bót á Akranesi fyrir heldri bæjar-
búa og á neðstu hæð byggingarinn-
ar verður félagsheimili fyrir eldri
borgara. Stefnt er að því að skóflu-
stunga verði tekin fljótlega. Einn-
ig erum við að undirbúa aðkomu
okkar að fleiri spennandi nýfram-
kvæmdum á Akranesi á næstu miss-
erum,“ segir Víðir, hinn bjartsýn-
asti á komandi tíð. „Við teljum það
styrk fyrir okkur að hafa útibú sem
víðast þar sem við leggjum mikla
áherslu á að vera til staðar fyrir
okkar viðskiptavini og þjónusta þá
vel í einu og öllu þegar kemur að
sölu eða kaupum á fasteign. Opn-
un útibús á Akransi er hluti af þeirri
áherslu,“ segir hann.
Að sögn Víðis er Domusnova
ein af stærri fasteignasölum lands-
ins, með 32 starfsmenn, þar af níu
lögmenn og 22 löggilta fasteigna-
sala. Aðalskrifstofan er í Kópa-
vogi en einnig starfrækir fyrirtækið
útibú á Selfossi. Útibú Domusnova
á Akranesi verður til húsa að Still-
holti 16-18, á þriðju hæð hússins.
„Unnið er að því hörðum hönd-
um að standsetja húsnæðið, von-
andi tekst það í tæka tíð og við get-
um boðið Akurnesingum og nær-
sveitamönnum í kaffisopa,“ segir
Víðir. „Tveir öflugir starfsmenn
og „heimamenn“ munu starfa í úti-
búinu okkar á Akranesi, þeir Ólaf-
ur Sævarsson, löggiltur fasteigna-
sali og Bjarni Stefánsson, löggiltur
fasteignasali og lögmaður. Opnun-
artími útibúsins verður frá 9:00 til
17:00 en að sjálfsögðu munu okk-
ar menn verða til taks utan þess
tíma ef óskað er,“ segir Víðir Arnar
Kristjánsson að endingu.
kgk
Útibú Domusnova opnað
á Akranesi eftir helgi
Víðir Arnar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Domusnova.
Ljósm. Domusnova.
Stillholt 16-18, en í því húsi verður útibú Domusnova á Akranesi til húsa.
Ljósm. úr safni/ mm.