Skessuhorn - 09.01.2019, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 201912
Þorrablót Skagamanna verður
haldið með pompi og prakt laug-
ardaginn 26. janúar næstkomandi
í Íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Venju samkvæmt er það Club 71
sem sér um blótið. Að sögn Guð-
ráðs Sigurðssonar, eins skipuleggj-
anda, verður blótið hið glæsilegasta
og búast þeir við um 750 manns.
Það er því mikilvægt að hafa hrað-
ar hendur að næla sér í miða þegar
miðasala opnar á föstudaginn.
„Við hlökkum mikið til þessa
blóts þar sem verður mikið um
dýrðir og margt hæfileikaríkt fólk
sem kemur fram. Við í Club 71
hlökkum alltaf sérstaklega til ann-
álsins sem okkur þykir vænt um.
Þeir árgangar sem hafa séð um
þetta hafa lagt mikinn metnað í
þessa vinnu,“ segir Guðráður en
annállinn er í höndum árgangs ´78
í ár. Veislustjórn verður í höndum
Sigrúnar Óskar og Evu Laufeyjar.
„Þar fáum við enn og aftur að sjá
skemmtilegt og hæfileikaríkt fólk
sem við eigum á Akranesi,“ seg-
ir Guðráður. „Að sjálfsögðu verð-
ur óvænt atriði sem hefur verið
lengi í undirbúningi,“ bætir hann
við. Að sögn Guðráðs mun veislu-
borðið svigna undan kræsingum
frá Gamla Kaupfélaginu, „bæði
af þjóðlegum þorramat og einnig
öðrum veisluréttum eins og veg-
anrétti. Það ættu því allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi og þeir
sem eru að taka veganúar alvarlega
hafa enga afsökun og geta skellt sér
á þorrablót,“ segir hann. Hreim-
ur Örn Heimisson og hljómsveit-
in Made in sveitin munu svo halda
uppi stuðinu fram á nótt.
Íþróttafélögin og BA
vinna á blótinu
Forsala miða hefst föstudaginn 11.
janúar klukkan 9 í Íslandsbanka og
má vænta þess að röð verði mynd-
uð fyrir utan bankann áður en
dyrnar verða opnaðar. „Mikið fjör
hefur alltaf myndast í röðinni fyr-
ir framan Íslandsbanka löngu áður
en miðasala hefst,“ segir Guðráður.
Líkt og venja er fyrir munu íþrótta-
félög og Björgunarfélag Akraness
aðstoða við vinnu á blótinu og fá
fyrir það hluta af ágóðanum. „Ekk-
ert af þessu væri mögulegt án að-
komu þeirra íþróttafélaga sem
vinna með okkur og Björgunar-
félags Akraness. Gaman hefur ver-
ið að sjá þessi félög sem hafa unn-
ið með okkur undanfarin ár. Marg-
ir koma ár eftir ár til að taka þátt
í að setja upp þorrablótið og gera
það sem glæsilegast. Það er mikið
fjör og kraftur sem myndast. Und-
anfarin ár höfum við náð að gefa
til baka inn í þessi félög um þrjár
milljónir króna á ári í heild. Þessi
ár hafa safnast 20,4 milljónir króna
sem dreifst hafa til félaganna miðað
við vinnuframlag,“ segir Guðráð-
ur og bætir því við að þorrablótið
er styrkt af Akraneskaupstað, Faxa-
flóahöfnum, Gámaþjónustu Vestur-
lands, N1, Sjóvá, Íslandsbanka, Tu-
borg, Valitor og Vinum hallarinnar.
„Án þessa stuðnings væri þetta ekki
mögulegt og viljum við koma fram
þakklæti til allra.“
arg
Þorrablót Skagamanna framundan
Svipmynd frá Skagablótinu á síðasta ári þegar Slitnir strengir komu fram. Ljósm. úr safni/glh
Ásmundur Kristinn Ásmundsson
er nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá Lögreglunni á Vesturlandi.
Hann var skipaður til embættis-
ins frá 1. janúar og verður með
aðalskrifstofu sína á Akranesi, en
starfið felur í sér viðveru um all-
an landshlutann. „Um er að ræða
nýtt starf í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi. Hér áður fyrr
voru þrír yfirlögregluþjónar. Nú
er búið að leggja niður tvær stöð-
ur og þessi nýja staða aðstoðaryf-
irlögregluþjóns kemur í stað fyrra
fyrirkomulags,“ segir Ásmundur í
samtali við Skessuhorn.
„Með tilkomu þessa nýja starfs
er embættið sett upp meira eins
og það á að vera, það er að segja
með lögreglustjóra, yfirlögreglu-
þjóni, aðstoðaryfirlögregluþjóni
og svo fulltrúa lögreglustjóra,“
segir hann. „Starf aðstoðaryfirlög-
regluþjóns felst einkum í stjórnun
lögreglu, umsjón með þjálfun, yf-
irumsjón með búnaði embættisins
og ýmsu fleiru í þeim dúr,“ segir
Ásmundur. „Fyrstu verkefni mín
hafa eftir sem áður verið að fara
um embættið og kynnast fólkinu.
Hjá Lögreglunni á Vesturlandi eru
um 50 starfsmenn í það heila. Ég
er búinn að fara um Snæfellsnesið,
þar hitti ég marga sem ég þekki í
gegnum ýmsa þjálfun sem ég hef
sinnt hjá Lögregluskólanum. Það
er alltaf skemmtilegt að endurnýja
kynni við gamla félaga og kynnast
nýju fólki og fá smá endurmennt-
un sjálfur,“ segir hann.
Ásmundur er enginn nýgræð-
ingur þegar kemur að löggæslu,
hefur starfað innan lögreglunn-
ar undanfarin 32 ár. „Ég byrjaði í
Lögreglunni í Reykjavík 1986 og
hef síðustu 26 ár verið í sérsveit-
inni. Nú síðast var ég næstráðandi
Víkingasveitarinnar sem heitir,“
segir hann. „Þannig að í raun hef
ég alla mína starfstíð verið á höf-
uðborgarsvæðinu. Núna stefni ég
á að flytja á Akranes ásamt eigin-
konu minni og við stefnum á að
kaupa þar hús á þessu ári,“ bætir
hann við. „Nýtt starf felur auðvi-
tað í sér mikla breytingu fyrir mig
en það verður spennandi að tak-
ast á við það. Ég er búinn að vera
lengi í sérsveitinni og hef gengið í
gegnum allt sem hægt er að ganga
í gegnum þar. Að koma á Vestur-
land er ný áskorun og ég er fullur
bjartsýni. Lögregluliðið á Vestur-
landi er gott og alltaf hefur verið
talað vel um það embætti innan
lögreglunnar. Ég er mjög spennt-
ur að vera kominn í nýtt starf og
að mæta nýjum áskorunum sem
því fylgja,“ segir Ásmundur Krist-
inn Ásmundsson að endingu.
kgk
Aðstoðaryfirlögregluþjónn
tekinn til starfa
Ný staða innan Lögreglunnar á Vesturlandi
Ásmundur Kristinn Ásmundsson gegnir nýju starfi aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá
Lögreglunni á Vesturlandi. Ljósm. jsó.
Nýverið tók Slökkvilið Akraness
og Hvalfjarðarsveitar í notkun
nýtt merki. Hið nýja er töluvert
einfaldara í gerð og stílhreinna en
það eldra.
mm
Nýtt merki slökkviliðs
Á Vesturlandi var 30 samningum
þinglýst í desember. Þar af voru þrett-
án samningar um eignir í fjölbýli, níu
samningar um eignir í sérbýli og átta
samningar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 761 milljón króna
og meðalupphæð á samning 25,4
milljónir króna. Af þessum 30 voru
16 samningar um eignir á Akranesi.
Þar af voru ellefu samningar um eign-
ir í fjölbýli, þrír samningar um eignir
í sérbýli og tveir samningar um ann-
ars konar eignir. Heildarveltan var
480 milljónir króna og meðalupphæð
á samning 30 milljónir króna. mm/
Ljósm. úr safni
Þrjátíu samningar um
fasteignakaup í desember