Skessuhorn - 09.01.2019, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 201914
Síðasta ár var viðburðarríkt fyrir Arn-
ór Sigurðsson, 19 ára knattspyrnu-
mann frá Akranesi. Hann lék fyrir ári
síðan með sænska liðinu IFK Norr-
köping, þangað sem hann hélt frá ÍA
vorið 2017, en var í haust seldur til
rússneska stórliðsins CSKA Moskvu.
Arnór var ekki lengi að vinna sér inn
sæti í byrjunarliði CSKA, sem sit-
ur í 4. sæti rússnesku deildarinnar.
Hann lék sinn fyrsta leik í Meistara-
deild Evrópu í september. Þar með
varð hann yngsti Íslendingurinn til
að spila í þeirri keppni og nokkr-
um vikum síðar varð hann yngsti Ís-
lendingurinn til að skora í Meistara-
deildinni. Rúsínan í pylsuendanum
var síðan mark og stoðsending í frá-
bærum útisigri CSKA á Real Madrid
hinn 12. desember.
„Það var ólýsanleg tilfinning að sjá
hann í netinu á móti Real Madrid.
Það er auðvitað draumur allra knatt-
spyrnumanna á spila á stærstu völl-
unum og í stærstu deildunum. Það
var ekki leiðinlegt að vinna og skora
í þessum leik,“ segir Arnór í samtali
við Skessuhorn. Leikurinn gegn Real
var síðasti leikur Arnórs fyrir jólafrí,
því hlé er gert á rússnesku deildinni
yfir háveturinn. Eftir vikudvöl á sól-
arströnd sneri Arnór heim á Akranes
og varði hátíðunum með fjölskyldu
og vinum. „Það er alltaf gott að koma
heim, kúpla sig aðeins út úr boltan-
um og vera bara með fjölskyldunni
og vinunum. Ég er búinn að hafa
það mjög gott í fríinu,“ segir Arnór,
sem er hinn yfirvegaðasti þó stjarna
hans hafi risið mjög hratt undan-
farna mánuði. „Árið sem var að líða
var auðvitað mjög stórt hjá mér. Ég
hef orðið var við að fólk er forvitið
og spyr mikið út í þetta og langar að
fylgjast með sem er eðlilegt þegar
gengur svona vel,“ segir hann.
Ætlar sér langt
Arnór spilaði fyrsta leikinn með
meistaraflokki ÍA haustið 2015, í
lokaleik Pepsi deildarinnar á móti
ÍBV. Sumarið eftir kom hann við
sögu í sex leikjum í Pepsi deildinni
og vakti frammistaða hans töluvert
mikla athygli. Vorið 2017 gekk hann
síðan til liðs við Norrköping. Skessu-
horn ræddi við Arnór eftir að hann
sló í gegn með ÍA sumarið 2016. Þá
sagði Arnór að hann dreymdi um að
verða atvinnumaður. Hvernig er að
vera að upplifa þann draum? „Það
er auðvitað ólýsanlegt að geta unn-
ið við áhugamálið sitt,“ segir Arnór,
en draumarnir breytast eins og ann-
að. Stefnan var strax sett enn lengra.
„Að verða atvinnumaður er ákveðin
viðurkenning. Það er auðvitað stórt
skref og veitir manni sjálfstraust en
ég leit svolítið á það þannig að ég
væri kominn á nýjan byrjunarreit,“
segir hann. „Þó að mig hafi alltaf
dreymt um atvinnumennskuna þá
vissi ég alltaf og ætlaði mér alltaf að
ná miklu lengra en til Svíþjóðar og
ég ætla mér að ná ennþá lengra en til
Rússlands áður en ferillinn er á enda.
Hver staður er nýtt upphaf og mað-
ur þarf alls staðar að sanna sig, leggja
hart að sér og vinna markvisst að því
að verða betri,“ segir hann. Hvert er
þá stóra markmiðið? „Fyrsta mark-
miðið er að klára þetta tímabil, halda
áfram að standa mig vel og reyna að
vinna titilinn í Rússlandi. Minn fók-
us er allur hjá CSKA núna. Ég er ný-
kominn þangað á fimm ára samningi
og líður vel hjá klúbbnum. En auðvi-
tað vill maður spila með allra stærstu
liðum í heimi, í toppliðunum í ensku
eða spænsku deildinni. Það er svona
langtímamarkmiðið,“ segir Arnór.
Þroskandi að fara út
Arnór var aðeins 17 ára gamall þeg-
ar hann flutti einn til Norrköping í
Svíþjóð til að gerast atvinnumað-
ur. Hann segist hafa þroskast mikið
á þeim tíma, sem hjálpi honum bæði
innan og utan vallar. „Við ákváðum
á sínum tíma að ég myndi fara einn
út og takast á við þetta. Hluti af því
að vera atvinnumaður er að velja að
flytja til nýs lands, frá fjölskyldu og
vinum. Það getur auðvitað verið erf-
itt en er mjög þroskandi að takast
á við,“ segir hann. „Kærastan mín,
Ragna Dís, flutti til mín þegar ég var
búinn að vera hálft ár í Svíþjóð. Það
var frábært að fá hana út og hún hef-
ur stutt við bakið á mér í einu og öllu.
Við fluttum síðan saman til Moskvu
núna í haust,“ segir Arnór og bætir
því við að einnig hafi verið gott að
geta leitað ráða hjá þeim íslensku
leikmönnum sem fyrir voru hjá bæði
Norrköping og CSKA Moskvu.
„Það er alltaf gott að hafa stuðning,
því það geta alltaf komið lægðir í
boltanum,“ segir hann. Arnór hef-
ur þó ekki upplifað neinar sérstakar
lægðir, enda gengið afar vel það sem
af er hans ferli. Hann viðurkennir
að það hafi verið dálítið stórt stökk
að fara frá Norrköping til Moskvu.
„CSKA er eitt af stærstu liðum í Evr-
ópu, spilar í meistaradeildinni og
það voru margir svolítið hræddir við
þetta múv. Töldu það rangt á þess-
um tímapunkti, ég væri það ungur og
kannski væri betra fyrir mig að fara
í eitt svona millistórt lið áður en ég
gengi til liðs við stórlið. En ég vissi
alltaf að ég væri klár í þetta, búinn
að læra margt á því að vera atvinnu-
maður í Svíþjóð sem undirbjó mig
til að stíga þetta skref. Þegar maður
fær svona tækifæri er erfitt að hafna
því og ég sé svo sannarlega ekki eftir
neinu í dag,“ segir hann.
Líður vel í Moskvu
Aðspurður lætur Arnór líka vel af því
að búa í Rússlandi, þó það sé tölu-
vert frábrugðið því sem hann hefur
áður vanist. „Þetta er allt öðruvísi
en að vera hér á Akranesi eða í Sví-
þjóð. Norrköping er bara mjög svip-
aður bær og litlir íslenskir bæir en
Moskva er náttúrulega stórborg og
allt öðruvísi. En þetta hefur komið
mér skemmtilega á óvart. Borgin er
falleg, margt að skoða og við Ragna
Dís erum búin að finna okkur góða
íbúð sem okkur líður vel í. Það er
gaman að prófa eitthvað svona, að
flytja frá litla Akranesi yfir í stórborg-
ina Moskvu,“ segir hann. „Síðan eru
Rússarnir skemmtilegir, þó það sé
stundum dálítið bíó að reyna að tala
við þá, því þeir eru ekkert sérstaklega
góðir í enskunni. En þeir eru létt-
ir og skemmtilegir, mjög almenni-
legir og hjálplegir, allavega allir sem
ég hef kynnst,“ bætir hann við. „Mér
hafði verið sagt að Rússar væru dálít-
ið þurrir og þungir, en það voru auð-
vitað bara fordómar. Þetta vita allir
sem fóru á HM í sumar, þar var vel
tekið á móti okkur og ég held að við-
horf Íslendinga til Rússa hafi breyst
eftir HM. Þeir eru vingjarnlegir, létt-
ir og skemmtilegir.“
Hlakkar til
undankeppni EM
Arnór lék ekki með landsliðinu á
Heimsmeistaramótinu í Rússlandi en
hefur síðan þá fengið sénsinn. Hann
lék fyrsta A landsleikinn á móti Belg-
um í Þjóðadeildinni og næst í æfinga-
leik gegn Katar í nóvember. „Það er
fyrst og fremst heiður að vera kom-
inn í A landsliðið. Ég er búinn að
spila með öllum yngri landsliðinum
en þetta er allt öðruvísi. Þegar maður
er kominn í A landsliðið þá veit mað-
ur að maður er að gera eitthvað rétt,
því við erum með frábæran hóp. Ég
held að allir sem fylgjast með fótbolta
viti að það er hægara sagt en gert að
komast þarna inn, í svona sterkan
hóp með góða liðsheild. Þarna var
mjög vel tekið á móti mér og auðvi-
tað er markmiðið að vera í landslið-
inu út ferilinn,“ segir Arnór.
Stóra verkefnið sem framundan er
hjá landsliðinu er undankeppni EM
2020. Fyrsti leikurinn er 22. mars
gegn Andorra og þremur dögum
síðar mætir Ísland heimsmeisturum
Frakka. Önnur lið í riðlinum eru Al-
banía, Moldóva og Tyrkland. Arnór
er ekki í vafa um að Ísland geti farið
upp úr riðlinum og á EM. „Íslenska
landsliðið fer inn í alla leiki til að
vinna þá. Liðið er gott og við ætlum
okkur á EM. Ég er mjög spenntur
fyrir undankeppninni og held að hún
verði mjög skemmtileg,“ segir hann.
Þúsund skref að stóra
markmiðinu
Þegar Arnór lítur til baka segir hann
ýmislegt hafa breyst frá því hann
var á Akranesi fyrir aðeins tveimur
árum síðan. „Ég hef auðvitað þrosk-
ast mikið og er orðinn miklu meiri
atvinnumaður, meira að segja bara
síðan frá því ég var í Svíþjóð. Mað-
ur þarf að læra að hugsa gríðarlega
vel um sig, því það er mikið álag að
spila um hverja helgi í Rússlandi og
síðan í Meistaradeildinni. Þá skipta
litlu hlutirnir miklu máli; svefninn,
maturinn og öll gamla klisjan. Mað-
ur áttar sig á því eftir því sem mað-
ur kemst lengra og lengra að maður
þarf alltaf að leggja meira á sig. Mað-
ur þarf alltaf að setja markið eins hátt
og maður þorir, leyfa sér að dreyma,
trúa að maður geti náð eins langt og
maður vill og vinna markvisst að því
að bæta sig, eitt skref í einu,“ segir
hann. „Það eru þúsund skref að stóra
markmiðinu. Þau taka tíma og verða
þyngri eftir því sem þau verða fleiri.
En það er hægt að taka þau öll. Mitt
markmið er að verða einn af þeim
bestu í heimi og spila með bestu lið-
um heims. Ég er í skýjunum að hafa
fengið tækifæri til að spila fyrir stór-
lið eins og CSKA. Núna er ég allt-
af með hugann við það hvernig við
vinnum næsta leik. Ég ætla að halda
áfram að spila vel og halda mér í byrj-
unarlðinu. Mér líður vel í Rússlandi
og nýt þess að spila fótbolta. Þegar
það gengur svona vel þá er ekki ann-
að hægt,“ segir Arnór Sigurðsson að
endingu. kgk
„Markmiðið að verða einn af þeim bestu í heimi“
- segir Arnór Sigurðsson knattspyrnumaður frá Akranesi
Arnór Sigurðsson knattspyrnumaður. Ljósm. kgk.
Arnór sló í gegn með ÍA sumarið 2016, þá aðeins 17 ára gamall. Hér er hann í leik
gegn Breiðabliki í bikarnum. Ljósm. KFÍA.
Arnór í búningi rússneska stórliðsins
CSKA frá Moskvu.
Ljósm. Wikimedia Commons.
Nýburinn að skora í rússnesku deildinni í vetur. Liðsfélagi hans Fyodor Chalov
brosir fyrir aftan. Ljósm. CSKA Moskva.
Arnór fagnar marki sínu þegar CSKA Moskva sigraði Real Madrid með þremur
mörkum gegn engu í Meistaradeild Evrópu í haust. „Það var ólýsanleg tilfinning
að sjá hann í netinu á móti Real Madrid,“ segir Arnór.