Skessuhorn - 09.01.2019, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 201920
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Nú er búið að velja Báru klaustur-
njósnara, sem mann ársins á Rás
2. Margir, sérstaklega Miðflokks-
menn, eru ósáttir við það.
Einkamál eða opinbert?
Margir sjá þetta mál eins og verið
sé að rótast í einkalífi fólks og nota
það í pólitískum tilgangi. Ég get
skilið það sjónarmið.
Ég man þegar málið var í gangi
með Clinton og Monicu Lewinsky.
Forsetinn drýgði synd, sem var not-
uð til að koma honum frá. Við tók
annar forseti sem réðist inn í Írak
til að taka yfir olíulindir landsins.
Hundruð þúsunda saklausra borg-
arar hafa fallið og landið er alveg í
rúst.
Í þessu tilfelli hefði verið gott ef
bandaríska þjóðin hefði áttað sig á
því hvað er stór glæpur og hvað er
lítill og að þetta litla framhjáhalds-
mál átti ekki erindi til þjóðarinnar
og átti alls ekki að hafa áhrif á það
hvernig heiminum (Bandaríkjun-
um) var stjórnað.
Mig grunar að margir hafi svip-
aðar tilfinningar í sambandi við
Klaustursmálið. En upptökur Báru
sýndu ekki bara breyskleika Klaust-
ursmanna, umbjóðenda 18% lands-
manna. Heldur líka heimsku og/
eða illgirni sem fáir hafa heyrt frá
sínum vinum, sama hvað þeir hafa
orðið ölvaðir. Ekki einu sinni á
unglingsárum hafa þeir sem ég um-
gengst talað svona.
Að röflinu slepptu
Svo er hin hreina pólitíska hlið.
Það kemur fram hvernig Sjálfstæð-
is- og Framsóknarflokkur skipta á
milli sín embættum á vegum ríkis-
ins. Embættum sem ættu að vera
í höndum sérfræðinga. Þetta sér
maður allsstaðar. En sjaldan hef-
ur fólk heyrt stjórnmálamenn segja
þetta hreint út. Það er líka athyglis-
vert í hvaða tilgangi Gunnar Bragi
réði annarsvegar Geir Haarde og
hinsvegar Árna Þór (VG mann).
Geir var ráðinn til að Gunnar
Bragi fengi líka sendiherrastöðu
seinna, en Árni Þór var ráðinn til
að þagga niður í stuðningsmönnum
VG. Gunnar Bragi vissi að hann
fengi engin laun frá VG fyrir að
ráða Árna Þór. Þetta hlýtur að vera
umhugsunarefni fyrir þá sem eru í
raun á móti spillingu í stjórnkerfinu
en segja; „það er sami rassinn undir
þessu öllu,“ og halda áfram að kjósa
gömlu flokkana sína.
Af hverju Bára?
En í hverju felst hetjuskapur Báru?
Það er enginn sérstakur hetjuskap-
ur að ýta á upptökutakkann á sím-
anum sínum og hanga yfir túrista-
bæklingum í þrjá tíma. Hetjuskap-
urinn er að stíga fram. Standa í báða
fæturna og segja: „Þetta gerði ég.
Mér finnst þetta hafa verið rétt. Ég
er tilbúin til að láta reyna á hvort
mér verði refsað fyrir það.“
Það er mælikvarði á frelsi þjóða,
hvernig farið er með uppljóstr-
ara eins og Báru. Ísland er með
harða meiðyrðalöggjöf og banka-
leynd og persónuvernd og flokks-
hollir embættismenn eru notuð til
að verja valdastéttina í þjóðfélaginu
fyrir því að óþægilegar fréttir kom-
ist út. Þetta þurfa allir að hjálpa til
að bæta. Líka þeir sem vilja trúa
því að þeirra flokkur sé rétti flokk-
urinn.
Upptaka Báru hjálpar okkur öll-
um að fá innsýn í hugarheim ein-
stakra þingmanna og sýnir okk-
ur muninn á þeim valkostum sem
við höfum í kosningunum. Það er
mjög, mjög, mjög, mikilvægt.
Kveðja,
Reynir Eyvindsson, Akranesi.
Klaustursmálið -
Hvað eru menn
að æsa sig?
Pennagrein
Hátíðarhöld í tilefni þrettándans
voru víða haldin um liðna helgi.
Víðast var skemmtunin á sjálfan
þrettándann, þótt veður hafi frest-
að því um einn dag, t.d. í Grund-
arfirði. Meðfylgjandi myndir voru
teknar á hátíðarhöldum í landhlut-
anum. mm
Jólin kvödd á Vesturlandi
Grýla mætti á svæðið í
Grundarfirði og gekk í
broddi fylkingar frá Kaffi
59 upp á íþróttasvæði
bæjarins þar sem kveikt
var í lítilli brennu og
Björgunarsveitin Klakkur
var með flugeldasýningu.
Ljósm. tfk.
Við Englendingavík í Borgarnesi kom mikill fjöldi fólks saman og kvaddi jólin á þrettándanum og glæsilegri flugeldasýningu
á vegum bjsv. Brákar og Heiðars. Á innfelldu myndinni er Freyja Kolfinna Elmarsdóttir í kyndilgöngu. Ljósm. arg.
Álfadrottning og -kóngur í broddi fylkingar í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Jólin voru kvödd með pompi og
prakt í Grundarfirði á mánudaginn.
Þrettándagleðin frestaðist um einn
dag vegna veðurs en slagviðri var á
sunnudeginum en fallegt vetrarveður
daginn eftir. Ljósm. tfk.
Fjölmenni var mætt á þyrlupallinn á Jaðarsbökkum á Akranesi þar sem jólin voru kvödd með söng og flugeldum. Ljósm. kgk. www.skessuhorn.is