Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 22. árg. 3. júlí 2019 - kr. 750 í lausasölu
Írskt skraut
Faxafeni 11, 108 Reykjavík s: 5340534
sendum á
landsbyggðina!
Á meðfylgjandi mynd er verið að skrifa undir samning um kaup á tæplega þúsund fermetra þjónustuhúsi fyrir Bjarmar ehf. við Smiðjuvelli 7 á Akranesi. Húsið verður
byggt úr forsteyptum einingum frá Loftorku og þakeiningar koma frá Límtré-Vírneti. Skrifborðið við undirritun samningsins var húddið á glansandi Bens árgerð 1952 í
einkennislitum Bjarmars. Skömmu síðar voru fyrstu skóflustungurnar að húsinu teknar samtímis á sex gröfum fyrirtækisins. Sjá nánar bls. 12. Ljósm. mm.
Það getur verið basl að vera bóndi.
Það sýndi sig þegar nýgiftur bónd-
inn hélt rakleiðis út á tún og í hey-
skap að athöfn lokinni. Eftir 40
mínútur var hann búinn að týna
hringnum. Líklegast er hann nú
falinn í einhverri heyrúllunni.
Sæþór Sindri Kristinsson og
Guðrún B. Blöndal bændur á Val-
þúfu í Dölum gengu í hjónaband
21. júní síðastliðinn við athöfn á
heimili prestsins í Búðardal. Það
var þó ekki svo að allur dagurinn
fengist nýttur í brúðkaup held-
ur tók sveitarómantíkin völdin og
dagurinn allur nýttur í heyskap
með stuttu vinnuhléi til að skjótast
í giftingu. „Þennan dag hafði verið
búið að spá rigningu og því var ætl-
unin að klára heyskapinn fyrir at-
höfnina. En rakstrarvélin bilaði og
þá var önnur fengin að láni hjá ná-
grannabóndanum Sveini Gestssyni
á Staðarfelli. Þá vildi ekki betur
til en svo að hjólafestingin brotn-
aði undan henni og aftur varð allt
stopp. Okkur tókst að vekja til
lífsins eldgamla rakstrarvél svo
hægt væri að halda áfram,“ segir
hinn nýkvænti Sæþór í samtali við
fréttaritara.
Þegar hér var komið við sögu
voru Valþúfubændur að verða
heldur seinir í eigið brúðkaup
og þá reyndi á að eiga góðan ná-
granna. „Sveinn bauðst til þess að
raka heyinu saman svo við kæm-
umst í athöfnina, sem betur fer
fylgdist hann með tímanum, því
ekki gerðum við það,“ segir Sæ-
þór og hlær. En þau hefðu ekki
mátt vera mikið lengur að störf-
um þegar Sveinn tók að sér verk-
in svo brúðkaup gæti orðið. „Eftir
athöfnina var haldið beint heim í
heyskapinn að nýju. Rúlluvélin fór
að vera með vesen og tók upp á
því að stíflast. Ég fór út að reita og
meðan á því stóð hefur mér tekist
að missa giftingahringinn, u.þ.b.
40 mínútum eftir athöfn. Það er
eins gott að hafa augun opin þegar
moðið verður sópað í vetur,“ seg-
ir Sæþór hlæjandi, en viðurkennir
að á þessari stundu hafi hann verið
orðinn dálítið pirraður.
En eftir langan og viðburðarík-
an dag gátu nýgift hjónin ekki ann-
að en haft húmor fyrir öllu sam-
an og héldu skemmtilega hlöðu-
veislu heima á Valþúfu kvöldið
eftir þar sem hringlaus brúðgumi
og brúður, með hring á baugfingri,
skemmtu sér fram eftir nóttu í
góðra vina hópi.
sm
Lord of the rings Dalanna
Brúðhjónin og börnin á Valþúfu.