Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201910 Á liðnum dögum hafa ýmsar fram- kvæmdir verið í gangi í Reykholti í Borgarfirði. Unnið hefur verið við hellulögn og fegrun umhverf- is Snorralaug þangað sem tugþús- undir gesta koma við á hverju ári. Þá hófust í vor að nýju eftir nokk- uð hlé framkvæmdir við stækkun Fosshótels Reykholti. Viðbygging- in er nú ríflega fokhelt en í henni verða 28 hótelherbergi sem verða samtengd aðal hótelbyggingunni. Að sögn Arnþórs Pálssonar hótel- stjóra verður í sama áfanga lokið við að gera sérstakan Norðurljósa- sal og litla heilsulind eða spa í kjall- ara hússins. Framkvæmdum við stækkun hótelsins á að vera lokið fyrir sumarið 2020. Þá má við þetta bæta að nýver- ið hófust framkvæmdir við bygg- ingu síðustu íbúðarhúsanna við Hallveigartröð í Reykholti en þeim framkvæmdum stýrir Sigurður Magnússon byggingameistari. mm/ Ljósm. bhs Framkvæmdir í Reykholti Iðnaðarmenn á vegum Sigurðar Magnússonar byggingameistara slá hér upp fyrir fyrstu sökkulundirstöður íbúðarhúsa við Hallveigartröð. Viðbyggingin við Fosshótel Reykholti. Hellulagt að Snorralaug. Dúkur lagður á þak viðbyggingarinnar við Fosshótel. Á svölum til hliðar verður gerður sérstakur norðurljósasalur með glerþaki og -veggjum. Akraneskaupstaður og Hvalfjarða- sveit hafa gert með sér samninga um félagsþjónustu, barnavernd og málefni fatlaðra ásamt rekstri Tón- listarskólans á Akranesi. Síðastlið- inn fimmtudag undirrituðu Sæv- ar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi og Linda Björk Pálsdótt- ir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit tvo samninga. Annars vegar samn- ing um umsýslu mála innan félags- þjónustu, barnaverndar og málefni fatlaðra og hins vegar áframhald- andi samning um rekstur Tónlist- arskóla Akraness. Viðstaddir undir- ritun voru bæjar- og sveitarstjórn- arfulltrúar beggja sveitarfélaganna ásamt starfsmönnum sveitarfélag- anna. „Gott samstarf hefur verið um árabil hjá sveitarfélögunum tveim- ur og bara afar ánægjulegt að auka við það. Við hlökkum til þessa sam- starfs er varðar þessa tvo samn- inga,“ segir Sævar Freyr. Samn- ingur um félagsþjónustu, barna- vernd og málefni fatlaðra tekur gildi 1. júlí 2019 og gildir til eins árs með möguleika á framlengingu. Samningur um rekstur Tónlistar- skólans er ótímabundinn og tók gildi 1. janúar síðastliðinn. „Fyr- ir Hvalfjarðarsveit er gott að hafa getað samið við Akraneskaupstað um félagsþjónustu og barnavernd þar sem í því felst ákveðin trygging að geta veitt okkar íbúum stöðuga, faglega og góða þjónustu með að- gengi að sérfræðingum og fagfólki á hverju sviði. Við erum líka afar ánægð með áframhaldandi samstarf um rekstur Tónlistarskólans en það samstarf hefur varað um árabil og ávallt gengið vel. Nýr samningur rammar það samstarf sem er um rekstur tónlistarskólans hins vegar enn betur,“ segir Linda Björk. Samningur um félags- þjónustu, barnavernd og málefni fatlaðra Samkvæmt samningi um félags- þjónustu, barnavernd og málefni fatlaðra tekur velferðar- og mann- réttindasvið Akraneskaupstaður að sér þjónustu fyrir Hvalfjarðarsveit sem snýr að félagsþjónustu, barna- vernd og málefnum fatlaðra. Litið er á samninginn sem tilraunaverk- efni og er hann því gerður til eins árs, frá 1. júlí 2019 til og með 30. júní 2020. Akraneskaupstaður mun eftir sem áður sinna málefnum fatl- aðra en til viðbótar bæta við félags- þjónustu, þ.e. félagslegri ráðgjöf og stuðningi, fjárhagsaðstoð og úr- ræðum í félagsþjónustumálum skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfé- laga. Akraneskaupstaður mun jafn- framt sinna barnaverndarmálum Hvalfjarðarsveitar, þ.e. allri vinnslu barnaverndarmála, úrræðum ásamt samvinnu við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins og nemendavernd- arráðsfundum fyrir leik- og grunn- skóla Hvalfjarðarsveitar. Þau verk- efni sem Akraneskaupstaður mun ekki sinna og verða áfram í umsjón Hvalfjarðarsveitar, á sama hátt og áður, eru félagsleg heimaþjónusta og félagsstarf aldraðra. Viðvera í sveitinni Félagsráðgjafi á vegum Akranes- kaupstaðar mun vera með viðveru á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar alla miðvikudaga frá kl. 8:30-12:30 en henti sá tími ekki, eða íbúar kjósa frekar, geta þeir pantað tíma hjá fé- lagsráðgjafa og farið í viðtal á bæj- arskrifstofur Akraneskaupstaðar. íbúar Hvalfjarðarsveitar hafa jafn- framt aðgang að öðrum sérfræð- ingum velferðar- og mannréttinda- sviðs Akraneskaupstaðar. Fyrsti viðverudagur félagsráð- gjafa í Hvalfjarðarsveit verður mið- vikudaginn 3. júlí næstkomandi og er netfang félagsráðgjafa felags- malastjori@hvalfjardarsveit.is. Móttaka barnaverndartilkynninga fer fram á netfanginu barnavernd@ akranes.is eða í síma 433-1000. í neyðartilvikum skal auðvitað hafa beint samband við Neyðarlínuna í síma 112. Samningur um rekstur Tónlistarskóla Akraness Samkvæmt samningi standa Akra- neskaupstaður og Hvalfjarðarsveit sameiginlega að rekstri Tónlistar- skóla Akraness. Með samningn- um er stefnt að eflingu tónlistar- lífs meðal íbúa samningsaðila með því að gefa sem flestum kost á að stunda fjölbreytt tónlistarnám við skólann. Sérstakt reiknimódel var útbúið samhliða þessum samningi og greiðir Hvalfjarðarsveit mán- aðarlega samkvæmt því og er í því sambandi stuðst við hlutfalli þeirra nemenda sem stunda nám við skól- ann úr Hvalfjarðarsveit ásamt fleiri breytum eins og tegund tónlist- arnáms. Tónlistarskólinn heyrir stjórnsýslu- og fjárhagslega undir Akraneskaupstað áfram og skal hafa að lágmarki tvo samráðsfundi á ári með Hvalfjarðarsveit. mm Víðtækt samstarf Akraneskaup- staðar og Hvalfjarðarsveitar Linda Björk og Sævar Freyr handsala samninginn. Hópurinn sem var viðstaddur undirritun samninganna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.