Skessuhorn - 03.07.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201910
Á liðnum dögum hafa ýmsar fram-
kvæmdir verið í gangi í Reykholti
í Borgarfirði. Unnið hefur verið
við hellulögn og fegrun umhverf-
is Snorralaug þangað sem tugþús-
undir gesta koma við á hverju ári.
Þá hófust í vor að nýju eftir nokk-
uð hlé framkvæmdir við stækkun
Fosshótels Reykholti. Viðbygging-
in er nú ríflega fokhelt en í henni
verða 28 hótelherbergi sem verða
samtengd aðal hótelbyggingunni.
Að sögn Arnþórs Pálssonar hótel-
stjóra verður í sama áfanga lokið
við að gera sérstakan Norðurljósa-
sal og litla heilsulind eða spa í kjall-
ara hússins. Framkvæmdum við
stækkun hótelsins á að vera lokið
fyrir sumarið 2020.
Þá má við þetta bæta að nýver-
ið hófust framkvæmdir við bygg-
ingu síðustu íbúðarhúsanna við
Hallveigartröð í Reykholti en þeim
framkvæmdum stýrir Sigurður
Magnússon byggingameistari.
mm/ Ljósm. bhs
Framkvæmdir í
Reykholti
Iðnaðarmenn á vegum Sigurðar Magnússonar byggingameistara slá hér upp fyrir
fyrstu sökkulundirstöður íbúðarhúsa við Hallveigartröð.
Viðbyggingin við Fosshótel Reykholti.
Hellulagt að Snorralaug.
Dúkur lagður á þak viðbyggingarinnar við Fosshótel. Á svölum til hliðar verður
gerður sérstakur norðurljósasalur með glerþaki og -veggjum.
Akraneskaupstaður og Hvalfjarða-
sveit hafa gert með sér samninga
um félagsþjónustu, barnavernd og
málefni fatlaðra ásamt rekstri Tón-
listarskólans á Akranesi. Síðastlið-
inn fimmtudag undirrituðu Sæv-
ar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á
Akranesi og Linda Björk Pálsdótt-
ir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit
tvo samninga. Annars vegar samn-
ing um umsýslu mála innan félags-
þjónustu, barnaverndar og málefni
fatlaðra og hins vegar áframhald-
andi samning um rekstur Tónlist-
arskóla Akraness. Viðstaddir undir-
ritun voru bæjar- og sveitarstjórn-
arfulltrúar beggja sveitarfélaganna
ásamt starfsmönnum sveitarfélag-
anna.
„Gott samstarf hefur verið um
árabil hjá sveitarfélögunum tveim-
ur og bara afar ánægjulegt að auka
við það. Við hlökkum til þessa sam-
starfs er varðar þessa tvo samn-
inga,“ segir Sævar Freyr. Samn-
ingur um félagsþjónustu, barna-
vernd og málefni fatlaðra tekur
gildi 1. júlí 2019 og gildir til eins
árs með möguleika á framlengingu.
Samningur um rekstur Tónlistar-
skólans er ótímabundinn og tók
gildi 1. janúar síðastliðinn. „Fyr-
ir Hvalfjarðarsveit er gott að hafa
getað samið við Akraneskaupstað
um félagsþjónustu og barnavernd
þar sem í því felst ákveðin trygging
að geta veitt okkar íbúum stöðuga,
faglega og góða þjónustu með að-
gengi að sérfræðingum og fagfólki
á hverju sviði. Við erum líka afar
ánægð með áframhaldandi samstarf
um rekstur Tónlistarskólans en það
samstarf hefur varað um árabil og
ávallt gengið vel. Nýr samningur
rammar það samstarf sem er um
rekstur tónlistarskólans hins vegar
enn betur,“ segir Linda Björk.
Samningur um félags-
þjónustu, barnavernd
og málefni fatlaðra
Samkvæmt samningi um félags-
þjónustu, barnavernd og málefni
fatlaðra tekur velferðar- og mann-
réttindasvið Akraneskaupstaður að
sér þjónustu fyrir Hvalfjarðarsveit
sem snýr að félagsþjónustu, barna-
vernd og málefnum fatlaðra. Litið
er á samninginn sem tilraunaverk-
efni og er hann því gerður til eins
árs, frá 1. júlí 2019 til og með 30.
júní 2020. Akraneskaupstaður mun
eftir sem áður sinna málefnum fatl-
aðra en til viðbótar bæta við félags-
þjónustu, þ.e. félagslegri ráðgjöf og
stuðningi, fjárhagsaðstoð og úr-
ræðum í félagsþjónustumálum skv.
lögum um félagsþjónustu sveitarfé-
laga. Akraneskaupstaður mun jafn-
framt sinna barnaverndarmálum
Hvalfjarðarsveitar, þ.e. allri vinnslu
barnaverndarmála, úrræðum ásamt
samvinnu við leik- og grunnskóla
sveitarfélagsins og nemendavernd-
arráðsfundum fyrir leik- og grunn-
skóla Hvalfjarðarsveitar. Þau verk-
efni sem Akraneskaupstaður mun
ekki sinna og verða áfram í umsjón
Hvalfjarðarsveitar, á sama hátt og
áður, eru félagsleg heimaþjónusta
og félagsstarf aldraðra.
Viðvera í sveitinni
Félagsráðgjafi á vegum Akranes-
kaupstaðar mun vera með viðveru
á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar alla
miðvikudaga frá kl. 8:30-12:30 en
henti sá tími ekki, eða íbúar kjósa
frekar, geta þeir pantað tíma hjá fé-
lagsráðgjafa og farið í viðtal á bæj-
arskrifstofur Akraneskaupstaðar.
íbúar Hvalfjarðarsveitar hafa jafn-
framt aðgang að öðrum sérfræð-
ingum velferðar- og mannréttinda-
sviðs Akraneskaupstaðar.
Fyrsti viðverudagur félagsráð-
gjafa í Hvalfjarðarsveit verður mið-
vikudaginn 3. júlí næstkomandi og
er netfang félagsráðgjafa felags-
malastjori@hvalfjardarsveit.is.
Móttaka barnaverndartilkynninga
fer fram á netfanginu barnavernd@
akranes.is eða í síma 433-1000. í
neyðartilvikum skal auðvitað hafa
beint samband við Neyðarlínuna í
síma 112.
Samningur um rekstur
Tónlistarskóla Akraness
Samkvæmt samningi standa Akra-
neskaupstaður og Hvalfjarðarsveit
sameiginlega að rekstri Tónlistar-
skóla Akraness. Með samningn-
um er stefnt að eflingu tónlistar-
lífs meðal íbúa samningsaðila með
því að gefa sem flestum kost á að
stunda fjölbreytt tónlistarnám við
skólann. Sérstakt reiknimódel var
útbúið samhliða þessum samningi
og greiðir Hvalfjarðarsveit mán-
aðarlega samkvæmt því og er í því
sambandi stuðst við hlutfalli þeirra
nemenda sem stunda nám við skól-
ann úr Hvalfjarðarsveit ásamt fleiri
breytum eins og tegund tónlist-
arnáms. Tónlistarskólinn heyrir
stjórnsýslu- og fjárhagslega undir
Akraneskaupstað áfram og skal hafa
að lágmarki tvo samráðsfundi á ári
með Hvalfjarðarsveit. mm
Víðtækt samstarf Akraneskaup-
staðar og Hvalfjarðarsveitar
Linda Björk og Sævar Freyr handsala samninginn.
Hópurinn sem var viðstaddur undirritun samninganna.