Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 2019 23
Brákarhátíð var haldin hátíðleg í
Borgarnesi í síðustu viku og náði
hámarki á laugardaginn með fjöl-
skyldudagskrá í Brákarey. í vik-
unni fram að helgi tóku bæjarbú-
ar sig saman og skreyttu hús sín
og götur í sínum hverfislitum þar
sem allskonar frumlegar skreyt-
ingar litu dagsins ljós. Auk þess var
hvert hverfi með heimboð í vikunni
þar sem boðið var upp á leiki, tón-
list eða aðra afþreyingu en fyrst og
fremst til að skapa góða samveru-
stund. Mikil og þétt dagskrá var svo
fyrir gesti á laugardag sem hófst á
dögurði í boði kvenfélagsins í húsi
Fornbílafélagsins í portinu í Brák-
arey. í framhaldi af því gátu gest-
ir farið í bátsferðir með Björgunar-
sveitinni Brák og öðrum bátaeig-
endum frá bryggjunni og í kring-
um eyjuna. BíBí og Björgvin, BMX
brós og Húlladúlla komu fram
ásamt Söngperlum Borgarbyggðar
í portinu þar sem mestöll dagskráin
fór fram og á milli atriða gátu gestir
kíkt í sölutjöld og markað og keypt
allskyns varning. Þegar dagskránni
lauk héldu gestir í skrúðgöngu frá
Brákarey að Dalhalla þar sem Pét-
ur og Einar úr hljómsveitinni Buff
spiluðu fyrir brekkusöng. Páll Ósk-
ar slúttaði svo hátíðinni með stór-
dansleik í Hjálmakletti þar sem
dansþyrstir dönsuðu langt fram eft-
ir nóttu. Skipuleggjendur þökkuðu
kærlega fyrir sig að hátíðinni lok-
inni og sögðu hana hafa heppnast
með eindæmum vel í ár.
glh
Vel heppnaðri Brákarhátíð lokið
Fjölmenni var í portinu í Brákarey á Brákarhátíð síðasta laugardag. Ljósm. glh.
Kvenfélagið bauð gestum upp á dögurð á laugardag sem var vel sóttur.
Ljósm. Brákarhátíð.
Mini Bar Gumma og Gunna var opinn
fyrir gesti á Böðvarsgötunni á föstu-
deginum en eingöngu fríir drykkir
voru í boði. Hér má sjá nágrannana
Guðmund Eyþórsson og Gunnar Jóns-
son manna vaktina á mini-barnum.
Ljósm. Helga Halldórsdóttir.
Bláa hverfið bauð upp á froðufótbolta og vatnsblöðrustríð í síðustu viku.
Ljósm. Brákarhátíð.
Skreytingarnar í hverfunum voru frumlegar. Hér má sjá gamalt hjól fá nýtt hlut-
verk í gula hverfinu.
Krakkarnir fylgdust áhugasamir með skemmtiatriðunum. Ljósm. glh.
BMX brós sýndu listir sínar á hjólunum.
Ljós. glh.
Bátasiglingar um Brákarey voru á
sínum stað. Ljósm. glh.
Feðgarnir Óðinn Guðmundsson og
Hlynur Daði Óðinsson voru ánægðir
með dagskrána á hátíðinni.
Ljósm. glh.
Hey!
Næringarríkara hey í
vetur með íblöndunar-
efni og rúlluplasti
frá Líflandi
Advance Grass íblöndunarefni er blanda bakteríustofna
og ensíma sem hefur jákvæð áhrif á gerjun, dregur úr
hitamynd n, þurrefnistapi og eykur meltanleika gróffóðurs.
Gerðu gott fóður betra með Advance Grass!
Öll íblöndunarefni með 10% afslætti
TOPSIL íblöndunarefnin hafa farið sigurför á dönskum
markaði og gefið góða raun við að ná fram bættum
verkunargæðum með minni tilkostnaði en áður.
TOPSIL max er íblöndunarefni í grasslægju, smáratöðu
og ertur til að draga úr verkunartapi. TOPSIL max lækkar
sýrustig með skjótum og áhrifaríkum hætti og stöðvar
niðurbrot próteina og kolvetna.
TOPSIL stabil notist í kornheilsæði, repjuheilsæði,
grasslægju og smáratöðu. TOPSIL stabil dregur úr fjölda
ger- og myglusveppa sem minnkar líkur á hitamyndun
og myglu í stæðu- og rúlluverkuðu fóðri með háu
þurrefnishlutfalli.
Megastretch rúlluplastið hefur skapað sér góðan orðstír
fyrir að vera gott í vinnslu, hafa góða límeiginleika og fyrir
að tryggja góða varðveislu fóðurs við íslenskar aðstæður.
Megastretch plastið er unnið úr DOWLEX PE plastfilmu
sem er þekkt fyrir styrk, ógegndræpni og þanþol.
Megastretch plastið er ekki forstrekkt.
*Tilboðsverð m.v. greiðslu fyrir 15. júlí.
Sé óskað eftir greiðslum í haust leggjast 150 kr við hverja rúllu af plasti.
Tilboðið miðast við kaup á 10 plastrúllum eða fleiri.
Flutningur innifalinn ef teknar eru 20 plastrúllur eða fleiri.
Öll verð eru í krónum án vsk.
Megastretch 75 cm x 1500 m, 5 laga, 25 míkron
VHPLAST75GR GRÆNT Verð áður 10.150 - nú 9.850
VHPLAST75HV HVÍTT Verð áður 10.250 - nú 9.950
VHPLAST75SV SVART Verð áður 9.850 - nú 9.550
Megastretch Extreme 75 cm x 1800 m, 7 laga, 22 míkron
VH5AM75G22PE GRÆNT (20 stk) Verð áður 224.500 - nú 218.000
VH5AM75W22PE HVÍTT (20 stk) UPPSELT
VH5AM75Z22PE SVART (20 stk) Verð áður 220.000 - nú 214.000
Rúlluplast 50 cm x 1800 m
VHPLAST50GR Megastretch GRÆNT Verð áður 8.550 - nú 7.990
VHUNTERLAND50 Unterland X-Plus HVÍTT 7.450 - takm. magn, rýmingarsala
Rúllunet
VHTC130CMX3000M Total Cover 1,30m x 3000 m Verð áður 20.800 - nú 18.900
VHTOTALCOVER3600 Total Cover 1,23m x 3600 m Verð áður 23.700 - nú 21.600
VH5VM1282200 17 míkron 1,28 x 2200 m Verð áður 25.600 - nú 24.600
VH5VM1402000 17 míkron 1,4 x 2000 m Verð áður 26.300 - nú 25.300
Stæðuplast
10% afsláttur af öllu stæðuplasti og tengdum vörum. Verðdæmi:
Megacombi 2in1 stæðuplast 16 x 50 m Verð áður 64.500 - nú 58.050
TopSeal undirplast 16 x 50 m Verð áður 12.900 - nú 11.610
36.550 - nú 32.895
Meganyl varnarnet 12 x 15 m Verð áður 33.950 - nú 30.555
Sandpokar 20 x 120 cm Verð áður 165 - nú 149