Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 2019 15
Eftir afar dræma byrjun í laxveiðinni
í Norðurá í Borgarfirði er betri tíð-
ar að vænta fyrir veiðimenn. Eftir að
rigna tók í héraðinu undir lok júní
sáust kröftugar göngur laxa á neðsta
svæði árinnar vaða uppeftir. Þrátt
fyrir að ekki hafi mikið verið búið að
rigna þá var ótrúlegt hvað laxinn var
fljótur að sækja upp í súrefnisríkara
vatn.
Á síðu veiðifélags Norðurár má lesa
að Georg Gíslason á Borgum keypti
þrjá daga á Flóðatangasvæðinu helg-
ina 21.-23. júní. Á föstudeginum fór
hann og fjölskyldan á alla veiðistaði
og reyndu en urðu ekki vör við fisk.
Á laugardeginum tóku þau því róle-
ga og voru að vinna í lóðinni heima
á Borgum en 11 ára sonurinn vildi fá
að veiða svo að pabbi hans fór með
honum niður að Norðurá. Þegar
þeir komu að ánni var logn og hún
tær eins og spegill til móts við gam-
la brúarstólpann við Haugahyl. Þá
sjá þeir hvar strollan bunkaðist inn.
Ekki var hægt að kasta tölu á laxana
en taldir vera í hundraða tali.
Sonurinn Gísli Georgsson 11 ára
setti í Maríulaxinn sinn í þeirri ferð,
sem var vænn, silfurgljáandi og ný-
runninn lax, en samtals landaði fjöl-
skyldan sex löxum þennan dag. Á
myndinni má sjá hreykinn veiðimann
með fyrsta laxinn sinn en örugglega
ekki þann síðasta.
mm/ Ljósm. Georg Gíslason
Laxinn var fljótur að ganga í
Norðurá eftir að tók að rigna
Sækja um eftir fertugt
Þeir Sæmundur og Eyjólfur segja
talsverða nýliðun vera að eiga
sér stað í frímúrarareglunni hér
á landi og benda á að félagar þar
séu ríflega eitt prósent þjóðarinn-
ar og mun hærra ef tekið er til-
lit til þess að mengið er einungis
karlmenn sem komnir eru vel yfir
lögræðisaldur. jóhannesarstúkan
Akur á Akranesi hefur verið öfl-
ugt félag í endurnýjun í nýliðun
og starfi. Skilyrði fyrir inngöngu
í félagið, líkt og aðrar stúkur frí-
múrarareglunnar, er 24 ára aldur,
viðkomandi þarf að vera karlmað-
ur og auk þess kristinnar trúar. Þá
skal hann hafa gott mannorð. „Við
erum vissulega að upplifa að karl-
menn eru eldri þegar þeir sækja
fyrst um inngöngu í regluna. Tím-
arnir eru að breytast og karlmenn
taka virkari þátt í uppeldi barna
og heimilisstörfum en var og bíða
með að sækja um félagsaðild þar til
um hægist á heimilinu. Því er al-
gengt að þeir sem sækja um inn-
göngu séu að minnsta kosti komn-
ir um eða yfir fertugt,“ segir Sæ-
mundur. „Hér hefur félagsskapur-
inn verið góður og mikil endurnýj-
un í hópnum,“ bætir hann við.
Á Akranesi er fundað frá október
og fram í apríl tvisvar í mánuði.
Auk þess er ýmiskonar félagsstarf.
Farnar eru vor- og haustferðir og
nýverið var til dæmis 140 manna
hópur frá jóhannesarreglunni
Akri í ferð til Flateyjar á Breiða-
firði þar sem eiginkonur voru með
í för. Ýmsir klúbbar eru auk þess
starfandi í tengslum við regluna og
nefna þeir Eyjólfur og Sæmundur
hjóla-, golf,- og gönguklúbba, en
í starfi þessara klúbba taka eigin-
konur félaga virkan þátt.
Allir jafnir og
eins klæddir
Þeir sem séð hafa frímúrara mæta
til sinna stúkufunda hafa tekið eft-
ir hversu fínir þeir eru í tauinu,
klæðast kjólfötum. „Fyrir þessu er
gömul hefð sem byggir meðal ann-
ars á sömu hugsun og er á bak við
skólabúninga víða erlendis. Með
því að klæðast eins fötum eru all-
ir jafnir, enginn greinarmunur er
gerður á hvaðan þú kemur, efna-
hag, eða hver þú ert. Frímúrara-
reglan ákvað að það yrðu kjólföt
sem notuð yrðu og við það höld-
um við okkur,“ segir Sæmundur.
Hann segir að vissulega sé slíkur
klæðnaður dýr í upphafi, en endist
vel ef menn halda línunum í lagi!
Eyjólfur bætir við að hjá sér sé það
ákveðin athöfn, nánast kyrrðar-
stund, að gera sig kláran fyrir fund
í stúkunni. „Það er svona gæða-
stund hjá mér að hafa mig til fyr-
ir stúkufund. Maður kúplar sig frá
erli hversdagsins, kemur sér í gír-
inn, eins og sagt er.“
Byggir á aldalangri hefð
Aðspurðir um af hverju frímúrara-
reglan sé einungis fyrir karlmenn,
svara þeir Sæmundur og Eyjólf-
ur að starfið myndi missa marks
og að með blönduðu félagi væru
þeir ekki eins einbeittir með hug-
ann við það sem fram fer á fund-
um. „Hjá okkur á sér stað mikil
íhugun, vinna í okkur sjálfum. Það
byggir bæði á hefð og er staðreynd
að þú vinnur ekki á sama hætti í
þínum málum ef félagar væru af
báðum kynjum.“ Þeir benda þó á
að til eru blandaðar reglur, eins og
Samfrímúrarar, og auk þess sér-
stakar kvennareglur. „Kannski á
þetta eftir að breytast, en svona er
þetta og hefur verið.“ í kynning-
arbæklingi sem Frímúrarareglan
á íslandi hefur gefið út segir m.a:
„Það kann að þykja undarlegt að
bein þátttaka í starfsemi Frímúr-
arareglunnar á íslandi skuli ein-
ungis ætluð karlmönnum. Skýr-
inguna er m.a. að finna í alda-
langri hefð, skipulagi Reglunnar
og í formi framkvæmdar stúkuf-
unda. Manngildis- og mannrækt-
arkenningar Reglunnar eiga auð-
vitað jafnt við um konur og karla.
Hér á landi og annars staðar starfa
sérstakar kvennastúkur og/eða
stúkur, sem ætlaðar eru bæði kon-
um og körlum. Konur sem áhuga
hafa á þátttöku í stúkustarfi er
bent á alþjóðlega frímúrarareglu
karla og kvenna LeDroit Humain,
Maríuregluna eða Rebekkustúkur
Oddfellowreglunnar. Ekki er um
að ræða gagnkvæman heimsókn-
arrétt milli þeirra og stúkna Frí-
múrarareglunnar á íslandi.“
Hvetja gesti til að
koma
Eins og fyrr segir verður opið hús
hjá Frímúrarareglunni á Akranesi
næstkomandi laugardag á Stillholti
14. „Við viljum minnast þessara
tímamóta í mannræktar- og vel-
gjörðarstarfi frímúrarastarfs hér á
landi í hundrað á r. Við tilheyrum
heilbrigðum og góðum félagsskap
sem vill gjarnan opna dyr sínar og
leyfa fólki að fræðast um starf okk-
ar,“ segir Sæmundur Víglundsson
að endingu. mm
Frá Flatey þangað sem félagar fóru í vorferð á dögunum. Ljósm. de.
Stillholt 14 á Akranesi þar sem stúkan er með starfsemi sína á efri hæðum í bygg-
ingunni. Ljósm. de.