Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201912
Fyrstu leigjendur Bjargs íbúða-
félags fengu afhenta lyklana að
íbúðum sínum við Asparskóga
12 og 14 á Akranesi
afhenta síðastliðinn fimmtu-
dag. Alls eru 22 íbúðir í hús-
unum tveimur. Einingarnar í
þriðja húsið komu til lands-
ins í júní, búið að reisa þær á
byggingarstað og verða íbúð-
irnar afhentar leigjendum síð-
ar í sumar. Einingarnar í fyrri
tvö húsin komu til landsins frá
Lettlandi 31. mars síðastlið-
inn. Bjarg íbúðafélag er á veg-
um verkalýðsfélaga en um er
að ræða leigufélag sem rekið
verður án hagnaðarmarkmiða
og ætlað að tryggja tekjulágum
fjölskyldum á vinnumarkaði
aðgengi að öruggu íbúðarhús-
næði í langtímaleigu.
Við afhentingu íbúðanna var
hluti bæjarstjórnar Akraness
viðstödd sem og Vilhjálmur
Birgisson formaður Verkalýðs-
félags Akraness. Sævar Freyr
Þráinsson bæjarstjóri ávarp-
aði viðstadda og þakkaði öll-
um þeim sem komu að bygg-
ingu húsanna fyrir þetta skref
til að tryggja öruggt leiguhús-
næði á Akranesi á viðráðanleg-
um kjörum. Vilhjálmur sagðist
þakklátur fyrir þetta skref og
sérstaklega þakklátur Akranes-
kaupstað fyrir sitt framlag við
verkefnið.
arg
Síðastliðinn föstudag voru fyrstu
skóflustungurnar teknar að nýju
atvinnuhúsnæði Bjarmars ehf. við
Kalmansvelli 7 á Akranesi. Mund-
aðar voru sex gröfur verktakafyrir-
tækisins sem samtímis byrjuðu að
moka fyrir nýju húsi. Áður en til
þess kom var skrifað undir samn-
ing við Loftorku Borgarnesi um
kaup á einingum í húsið. Byggt
verður 978 fermetra hús úr for-
steyptum einingum, en hönnuð-
ir eru Sveinbjörn jónsson verk-
fræðingur og Magnús H. Ólafsson
arkitekt. í þessari viku verður byrj-
að á grunni og jarðvegsskiptum,
sökklar og veggeiningar koma frá
Loftorku og áætlað að veggir verði
reistir í ágúst-september. Gert
er ráð fyrir að húsið verði kom-
ið undir þak fyrir veturinn. í nýja
húsnæði Bjarmars verður hægt að
sinna öllu almennu viðhaldi tækja
fyrirtækisins, svo sem viðgerð-
um, þrifum og geymslu við bestu
mögulegu aðstæður. Fyrirtækið
Bjarmar er þekkt fyrir gott viðhald
og góða umhirðu síns tækjakosts.
í dag er fyrirtækið rekið í 150 fer-
metra húsnæði og má segja að það
sé löngu sprungið. Þar sem nýja
húsnæðið mun verða ríflegt að
stærð fyrir starfsemina þá verður
hluti þess leigður út.
Á lista
fyrirmyndarfyrirtækja
Bjarmar ehf. hefur undanfarin tíu
ár fyllt lista Creditinfo yfir skil-
greind fyrirmyndarfyrirtæki hér á
landi. „Við erum stoltir af að hafa
verið á lista Creditinfo og hafa
þannig verið á meðal þeirra 2%
íslenskra fyrirtækja sem uppfylla
ströng skilyrði greiningar Credit-
info á framúrskarandi fyrirtækj-
um,‘‘ segir Ingimar Magnússon
framkvæmdstjóri sem dregur ekki
dul á að það sé jákvæður gæða-
stimpill að hafa slíka viðurkenn-
ingu.
Eiga 30 ára starfsafmæli
Bjarmar er alhliða þjónustufyrir-
tæki í jarðvinnu en sinnir auk þess
flutningum og kranaþjónustu á
Akranesi og í nágrenni. Fyrirtæk-
ið er í eigu bræðranna Bjarka og
Ingimars Magnússona frá Kjalar-
dal í Hvalfjarðarsveit. Nafn fyr-
irtækisins er einmitt sótt í nöfn
þeirra. Að sögn Ingimars hófu þeir
bræður rekstur árið 1989 samhliða
annarri vinnu og á því fyrirtækið í
raun 30 ára starfsafmæli á þessu ári.
Árið 1996 stofna þeir síðan form-
lega fyrirtækið Bjarmar ehf, eftir
að hafa báðir misst vinnu sína við
annað, hann hafði starfað hjá Hvali
hf í Hvalfirði en Bjarki hjá íslensk-
um aðalverktökum. Fyrirtækið hafi
svo smám saman vaxið og dafnað.
Segir Ingimar það meðal annars
byggjast á traustum og góðum hópi
starfsmanna sem hjá þeim er. Að
jafnaði eru 6-8 starfsmenn og ríf-
legt af tækjum til fyrir þann mann-
skap, að sögn Ingimars. Hann seg-
ir hentugt að reka fyrirtæki af þess-
ari stærðargráðu á svæðinu sunnan
Skarðsheiðar, en mikið af verkefn-
um þeirra eru á Grundartanga og
í nærsamfélaginu á og við Akranes.
„Á landsbyggðinni er ekki hægt að
reka fyrirtæki eins og okkar nema
samfélagið standi vörð um þau og
leiti til þeirra með viðskipti. Við
höfum verið lánssamir hvað það
snertir,“ segir Ingimar. Hann seg-
ir verkefnastöðuna hafa verið góða
undanfarin ár en þó sjái fyrir end-
ann á mörgum stærri verkefnum
sem hafa verið í gangi. Þá glufu
hyggjast þeir nýta til að byggja yfir
fyrirtækið framtíðarhúsnæði.
mm
Bjarmar byggir nýtt atvinnuhúsnæði á Akranesi
Skrifað var undir samning um kaup á húseiningum við Loftorku á húddinu á Bens
árg. 1952. F.v. Bjarki, Ingimar og Þorsteinn Pálsson sölustjóri hjá Loftorku Borgar-
nesi.
Sex gröfur tóku samtímis fyrstu skóflustungurnar að nýju tæplega þúsund
fermetra atvinnuhúsnæði Bjarmars ehf.
Gröfumennirnir að afloknu góðu verki. Frá vinstri: Ævar, Guðsteinn, Sveinn,
Bjarki, Ingimar og Oddur.
Bjarki og Ingimar Magnússynir ásamt Brynju Helgadóttur eiginkonu Ingimars.
Horft inn í
eldhús í einni
íbúðinni.
Ljósm. ki.
Bjarg íbúðafélag afhenti fyrstu íbúðirnar við Asparskóga
Fyrstu íbúarnir við Asparskóga 12 og 14 tóku við lyklum klukkan 10 á fimmtudaginn. Hér eru þeir ásamt bæjarstjórn Akraness, Vilhjálmi Birgissyni formanni VLFA og
forsvarsmönnum Bjargs íbúðafélags. Ljósm. arg.
Aldís Ýr Rossen var himinlifandi með nýju íbúðina sína,
sagði hana bjarta og fallega og að þar myndi henni líða
vel. Ljósm. ki.