Skessuhorn - 03.07.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 20196
Grunsamlegar
mannaferðir
BORGARNES: Nokkrar til-
kynningar hafa borist Lög-
reglunni á Vesturlandi um
grunsamlegar mannaferðir í
Borgarnesi og vill lögreglan
þakka vökulum íbúum fyrir að
fylgjast vel með og láta vita.
Það er mikilvægt að allir fylg-
ist vel með húsum nágranna
sinna, sérstaklega ef vitað er til
þess að íbúar séu ekki heima.
Ekki hefur neitt komið út úr
tilkynningunum og ekki hefur
verið látið vita af neinu inn-
broti. –arg
Kynning á
vindorkugarði
DALIR: Vegna vinnu við til-
lögu að matsáætlun vindorku-
garðs í landi Sólheima í Lax-
árdal mun Quadran íslandi
halda kynningarfund fyr-
ir íbúa í Dölum mánudaginn
8. júlí næstkomandi. Fundur-
inn verður í Dalabúð og hefst
kl. 20:00. Þar verður sagt frá
stöðu undirbúnings og mat á
umhverfisáhrifum verkefn-
isins og boðið verður upp á
kaffiveitingar. -mm
Langtímaveikindi
kosta 36 milljónir
á hálfu ári
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs Akranesaupstaðar í lok
júní voru samþykktar fjárveit-
ingar til að mæta langtíma-
veikindum starfsfólk bæjar-
ins. Samþykkt var að úthluta
18,2 milljónum króna úr veik-
indapotti Akraneskaupstað-
ar vegna tímabilsins janúar til
og með júní 2019. „Um er að
ræða helming af heildarfjár-
hæð umsókna, en ákvörðun
um endalega úthlutun vegna
tímabilsins verður tekin í lok
árs þegar frekari upplýsingar
liggja fyrir um heildarútgjöld
stofnana vegna þessa á árinu,“
segir í bókun á fundi bæjar-
ráðs. -mm
Fimmtudag-
laugardag
T
I
L
B
O
Ð
verslunin_bjarg
20%
afsláttur af öllum
fatnaði og snyrti-
vörum fyrir dömur
og herra
30%
afsláttur af sér-
völdum snyrti-
vörum og fatnaði
Opið fimmtudag
til kl. 22:00
Fylgist með okkur
á Facebook
Kristján Þór júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur gefið út reglugerð um leyfi-
legan heildarafla í íslenskri fisk-
veiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár
og fylgir hún alfarið ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar sem kynnt
var fyrr í sumar. í ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar kom fram að
staða þorskstofnsins er sterk og
því verða aflaheimildir í þorski
auknar um 3%, úr 264.437 tonn-
um í 272.411 tonn. Aflamark í ýsu
munu hins vegar dragast saman um
28%, verður 40.723 tonn, og skýr-
ist það annars vegar af því að spá
um um vöxt 2014 árgangsins gekk
ekki eftir og jafnframt af breyttri
aflareglu þar sem veiðihlutfall er
lækkað úr 0,40 í 0,35. Aflamark í
ufsa verður aukið um 2% en veiði-
heimildir fyrir gullkarfa, grálúðu
og síld lækka.
mm/ Ljósm. kgk.
Reglugerð um kvóta fyrir næsta ár
Bæjarráð Akraness samþykkti á síð-
asta fundi sínum í liðinni viku bók-
un í tengslum við fyrirhugað um-
hverfismat á Vesturlandsvegi um
Kjalarnes, en eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum telur Skipulags-
stofnun að breikkun Vesturlands-
vegar um Kjalarnes skuli háð mati
á umhverfisáhrifum. Slíkt mun fela
í sér verulegar tafir á framkvæmd-
um, líklega að minnsta kosti um
eitt ár. „Bæjaryfirvöld á Akranesi
hafa margoft ályktað um mikil-
vægi vegaframkvæmda um Vestur-
landsveg og vakið athygli á þeim
lífshættulegu aðstæðum sem veg-
farendum þar er boðið upp á. Því
er mikilvægt að bæði Vegagerðin
og Skipulagsstofnun tryggi að tafir
verði sem minnstar á framkvæmd-
um vegbóta við Vesturlandsveg um
Kjalarnes. Bæjarráð Akraness mun
eins og áður halda áfram að fylgja
þessu mikilvæga máli eftir og ítrek-
ar að orð skuli standa,“ segir í bók-
un bæjarráðs. mm
Vilja að sem minnstar tafir verði
á breikkun Vesturlandsvegar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra hef-
ur skipað Eydísi Líndal Finnboga-
dóttur í embætti forstjóra Landmæl-
inga íslands til næstu fimm ára. Ey-
dís hefur starfað hjá LMí frá árinu
1999, síðast sem forstöðumaður yfir
fagsviði miðlunar og grunngerð-
ar og sem settur forstjóri frá sept-
ember 2018 eftir að Magnús Guð-
mundsson fór í ársleyfi. Eydís var
staðgengill forstjóra frá 2007, þar til
hún var settur forstjóri.
Valnefnd skipuð af ráðherra mat
Eydísi hæfasta meðal umsækjenda
til að gegna embætti forstjóra Land-
mælinga íslands. Eydís er með
B.Sc.-gráðu í jarðfræði og kennslu-
réttindi frá Háskóla íslands. Þá
hefur hún lokið M.sc (Candidat) í
jarðfræði frá Kaupmannahafnarhá-
skóla og M.sc í opinberri stjórnsýslu
(MPA) frá Háskóla íslands. Hún er
með landvarðaréttindi auk leiðsögu-
mannaréttinda frá Menntaskólanum
í Kópavogi.
Eydís hefur tekið virkan þátt í
félagsstörfum, meðal annars innan
skátahreyfingarinnar, íA og Karate-
sambands íslands. Fyrir þetta hefur
hún m.a. hlotið gullmerki íSí. Eydís
er gift Þresti Þór Ólafssyni, vélfræð-
ingi og eiga þau þrjá syni.
mm
Eydís Líndal skipuð í embætti
forstjóra Landmælinga Íslands