Skessuhorn - 03.07.2019, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201924
Hjónin Einar G.G. Pálsson og
Guðrún jónsdóttir hafa ásamt góð-
um nágrönnum sínum tekið holtið
á milli Klettavíkur og Hamravík-
ur í Borgarnesi í fóstur og er Guð-
rún einnig ein þeirra sem hlúa að
Suðurnesklettunum í bænum með
Hollvinasamtökum Borgarness,
en það verkefni er á vegum Borg-
arbyggðar. Um er að ræða að út-
rýma lúpínu á þessum svæðum en
hún setur oftar en ekki mikinn svip
á landslag og gróður og verður
gjarnan ríkjandi tegund í gróður-
fari. Guðrún hefur unnið að þessu
markvisst um nokkurra ára skeið og
vill þannig leggja sitt af mörkum til
að auka líffræðilegan fjölbreytileika
í náttúrunni. Blaðamaður Skessu-
horns kíkti með Guðrúnu á holtið
milli Klettavíkur og Hamravíkur í
liðinni viku þar sem hún sýndi af-
raksturinn af vinnu sinni þar. „Ég
reiti plöntuna þegar hún er í blóma
og þá nær hún ekki aftur þroska
sama sumar til að dreifa fræjum.
Þetta er fljótt að koma,“ segir Guð-
rún á leiðinni upp holtið umtalaða.
„En sjáðu lággróðurinn. Hérna er
gulmaðra, hvítmaðra, ljónslappi,
krækilyng og birkiplöntur allsstað-
ar. Þessi gróður kemst betur upp
því hann fær meiri birtu og pláss til
þess að vaxa,“ bætir Guðrún stolt
við og rífur upp lúpínuplöntu.
Hatar ekki lúpínuna
„Ég geri þetta hins vegar ekki því
mér er illa við lúpínuna sem er fal-
leg þegar hún er í blóma. En mað-
ur saknar annars gróðurs á þess-
um grónu holtum þar sem henn-
ar er ekki þörf. Lúpínan er dug-
leg planta, það verður ekki tekið af
henni, en hún kemur í veg fyrir að
aðrar plöntur fái að vaxa og dafna,“
útskýrir Guðrún.
Árið 2017 byrjaði Guðrún mark-
visst að hreinsa holtið sem var á
langt á veg komið að verða þakið
fjólubláu plöntunni. „Ég reitti í 17
svarta ruslapoka árið 2017. í fyrra
voru þetta 30 pokar og ég náði þá
að hreinsa svæðið alveg, við slógum
þá svolítið líka. Núna í sumar eru
þetta svo bara fimm pokar,“ segir
Guðrún ánægð með afraksturinn.
„Áhaldahús sveitarfélagsins sér svo
um að fjarlægja pokana fyrir mig.
Ég vil meina að þetta þýði að þetta
sé hægt. Ef maður gerir þetta af alúð
næst árangur. Lúpínan er fín þar
sem uppgræðslu er þörf, en við vilj-
um ekki hafa grónu holtin okkar öll
fjólublá. Núna eru tvö sem eru ekki
þannig, öll önnur eru þakin lúpínu
nema þar sem íbúar hafa verið að
hreinsa afmörkuð svæði við hús sín
og áhaldahúsið hefur slegið,“ seg-
ir Guðrún og bætir jafnframt við
að hún finni góða strauma frá ná-
grönnum sínum sem sýna framtak-
inu skilning, hvetja og taka þátt.
Einhæft landslag
Skiptar skoðanir eru um ágæti lúp-
ínunnar. Mörgum finnst fallegt að
hafa hana sem víðast en aðrir segja
hana ganga of langt og að útsýn-
ið við vegi landsins verði einhæfara
með hverju árinu þar sem plantan
er farin að ramma inn stór svæði.
„Við erum mjög mörg sem erum
farin að hugsa um þessa einhæfni
sem hún skapar. Hún er líklega far-
in að þekja hundruð ferkílómetra
á íslandi í dag. Og ef hún hörfar
skilur hún eftir sig gróið land og
grassvörð, en þá er lággróðurinn
farinn og líklegt að skógarkerfill-
inn komi á eftir henni og hann er
enn erfiðari viðfangs,“ segir Guð-
rún. „Sveitarfélagið hefur ekki tek-
ið beina afstöðu til lúpínu inn-
an bæjarmarkanna en hefur farið
þá leið að gera samning við okk-
ur hérna í götunni um þetta eina
holt. Svo er sveitarfélagið í sam-
vinnu við Hollvinasamtök Borg-
arness um að hreinsa Suðurnes-
klettana við Landnámssetrið, það
verkefni hefur verið í gangi í um
þrjú ár. Þá viðleitni ber að þakka,“
segir hún að endingu.
glh
Vill stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika
Guðrún Jónsdóttir vill ekki hafa öll holtin í Borgarnesi fjólublá.
Hollvinasamtök Borgarness og Borgarbyggð standa að hreinsun Suðurnesklettana þar sem Brákin er staðsett á toppnum.
Holtið á milli Klettavíkur og Hamravíkur er nú nokkurn veginn laust við lúpínu og
hefur annar lággróður tekið við sér.