Skessuhorn - 03.07.2019, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201932
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Guðlaug Aðalsteinsdóttir á Akra-
nesi, betur þekkt sem Gulla
mamma, mun hætta störfum sem
dagmamma í dag. Guðlaug hefur
verið dagmamma í 40 ár eða síð-
an 1. ágúst árið 1979. Þessi lávaxna,
hlýja kona hefur passað 390 börn á
40 ára starfsferli sem dagmamma
og hefur gefið hverju barni sem
hún passar, númer sem þau halda
alla tíð, jafnvel þótt þau hætti og
komi síðan aftur. Þegar rætt var við
Guðlaugu fyrr í vikunni var hún að
fara að skila af sér síðasta barninu
áður en hún fór í sumarfrí og sagði
hún tilfinningarnar blendnar fyr-
ir breytingunum sem þessu fylgir.
„Ég er að fara í sumarfrí og hlakka
til þess. Ég kem svo aftur heim, vit-
andi af því að þau koma ekki, mér
er farið að kvíða fyrir því. Ég vil
helst ekkert spá í því, það er seinni
tíma vandamál,“ segir Guðlaug.
Vildi vera heima hjá
börnunum
Guðlaug vildi vera hjá börnunum
sínum þegar þau voru að alast upp
og var það ástæðan fyrir því að hún
valdi þetta starf. „Þetta var aðal-
lega vegna þess að ég átti börn sjálf
og ég vildi vera hjá þeim. Það var
alls ekki fyrir peningana eða neitt
slíkt, heldur leyfði ég krökkunum
að koma og vera heima hjá mér.
Svoleiðis hafði yngsti strákurinn
minn félagsskap,“ útskýrir Guð-
laug en yngsti sonur hennar verð-
ur 41 árs núna í september. „Þetta
bara vatt einhvern veginn upp á
sig.“ Guðlaug hefur alltaf verið ein
með börnin og segir það betra fyrir
þau, því það eru engar tvær mann-
eskjur eins. Að vísu kom maðurinn
hennar Guðlaugar eftir að hann
hætti að vinna og hefur eldað síð-
ustu 3-4 árin fyrir krakkana en að
öðru leyti hefur hún staðið í þessu
ein að hennar sögn.
Mikilvægt að tala eðli-
lega við börnin
Þegar mest var, þá segir Guðlaug
hafa verið troðið inn hjá sér eins
og hægt var. Ef það vantaði pláss þá
var komið með krakkana til henn-
ar. „Það var enginn rammi þá eins
og er í dag. Það var ekki einu sinni
leikskóli fyrir krakkana fyrr en þau
voru orðin þriggja og hálfs árs. Þau
þekktu mann miklu betur þá,“ rifj-
ar Guðlaug upp. En hvað er það
sem hún hefur lært eftir öll þessi-
ár? „Börnin þurfa á öðru að halda
en barnatali. Þau eru bara míní-
fólk og læra mun betur að tala ef
maður talar við þau eðlilega. Eins
legg ég mig alla fram í að láta þau
hlusta á lög þar sem þau skilja orð-
in í þeim. Eins og til dæmis lagið,
„Ég er kominn heim“. íslensk dæg-
urlög sem hægt er að skilja orðin,
ekki eitthvað sem við verðum að
geta okkur til, þannig lög set ég
oft á fóninn. Orð sem eru sögð illa
er ekki skóladæmi fyrir lítil börn
sem eru að læra að tala. Það er líka
mikilvægt að láta þau hlusta til að
hjálpa þeim með talið. Svo þegi ég
náttúrlega aldrei svo þau læra heil-
mikið af mér,“ segir hún og hlær.
„Ef börn væru bara hjá fólki sem
þegir þá veit ég ekki hvernig þau
myndu verða. Þau eru móttækileg-
ust á þessum fyrstu mánuðum. Það
skiptir máli að tala við þau. Svo má
Sýningin „Sementstpokinn - stolt
Sementsverksmiðjunnar“ var opn-
uð í Bókasafni Akraness síðastlið-
inn föstudag. Prýðisgóð mæting var
á opnunina eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. Þar hélt Garðar H.
Guðjónsson blaðamaður erindi um
sögu „Pokans“, blaðsins sem Starfs-
mannafélag Sementsverksmiðjunn-
ar gaf út í rúm 40 ár. Sjálf sýning-
in samanstendur af ellefu skiltum
þar sem rakin er útgáfusaga blaðs-
ins en grunnur sýningarinn er sam-
nefnd grein eftir Garðar sem birt er
í Árbók Akurnesinga 2018. Árbók-
in kom út þennan sama dag og var
kynnt fyrir sýningargestum. Sýn-
ingin stendur til loka júlí og er opin
á opnunartíma bókasafnsins.
mm
Sumarlesari vikunnar
Áfram höldum við að kynna til
leiks fríska krakka sem taka þátt í
sumarlestri á Bókasafni Akraness.
Að þessu sinni hana Heklu.
Hvað heitir þú og hvað ertu göm-
ul?
Ég heiti Hekla Agnarsdóttir og ég
er 7 ára.
Í hvaða skóla ertu?
Grundaskóla.
Hvaða bók varstu að lesa og
hvernig var hún?
Mýsla litla! Hún er skemmtileg
því að það var mikið af myndum
í henni.
Hvar er best að vera þegar þú ert
að lesa?
Uppi í rúmi hjá mömmu og
pabba.
Hvernig bækur finnast þér
skemmtilegastar?
Uuuuu… fyndnar bækur.
Áttu þér uppáhalds bók eða uppá-
halds rithöfund?
Latibær (Sögur og leikir úr La-
tabæ)
Er þetta í fyrsta sinn sem þú tek-
ur þátt í sumarlestrinum?
já!
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Fara í sumarbústað og fara til afa.
Þú finnur tímavél sem bara þú
getur notað, hvað myndir þú
gera?
Fara aftur í tímann og hitta ömmu
og afa.
Sementspokinn -
stolt Sementsverksmiðjunnar
Garðar H. Guðjónsson blaðamaður hélt erindi við opnun sýningarinnar.
Hættir störfum eftir 40 ár sem dagmamma
390 börn hafa verið í dagvistun hjá Gullu mömmu á Akranesi
aldrei hóta meiru en maður getur
staðið við. Það er ég búin að segja
foreldrum frá upphafi. Þegar mað-
ur heyrir foreldra hóta að rassskella
eða taka dótið af börnunum, ef þau
hætta ekki einhverju, svo hættir
barnið ekki og dótið er ekki tekið
af barninu. Það eru bara innantóm
orð og barnið hættir á endanum
að taka mark á manni. Það hef ég
aðallega lært, að maður verður að
standa við orðin, annars er maður
ekki trúverðugur,“ segir Guðlaug.
Börn agaðri
fyrir 40 árum
Guðlaug sér mikinn mun á börn-
um á þessum 40 árum sem hún hef-
ur verið í þessu starfi og er sann-
færð að börn voru agaðri fyrir 40
árum. „Það kom tímabil sem mað-
ur mátti ekki aga börn. Þá gerðu
börn það sem þeim sýndist. Það
var ekki talið gott að beita börnin
aga. Þetta gekk svo langt að skóli
á Akureyri þurfti að kenna börnum
kurteisi,“ segir hún og hristir haus-
inn. Nú fer Guðlaug í sumarfrí og
segist ætla að finna sér eitthvað
nýtt að gera en viðurkennir að hún
muni sakna þess að fá krakkana
heim til sín.
glh
Guðlaug ásamt Helgu Alexíu sem er síðasta barnið sem var í dagvistun hjá henni.