Skessuhorn - 10.07.2019, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Afleiðingarnar
Ég spái því að rætt verði manna á milli um fleira þetta sumarið, en almennt
má telja. Af hverju; jú, vinsælasta umræðuefnið frá því elstu menn muna er
nefnilega veðrið. Fyrir rúmu ári sagði góð kona, langþreytt á stöðugri úr-
komu, eitthvað á þessa leið; „Ég mun hætta að tala um veðrið þegar það
hættir að hegða sér eins og fífl.“ Það er akkúrat það sem hefur gerst. Veðrið
er bara gott, sól og blíða dag eftir dag og fátt um það fleira að segja.
En það er annað með afleiðingarnar. Gott veður og langvarandi þurrkar
geta nefnilega átt sínar hliðarverkanir. Það þekkjum við sem hér búum.
Öfgarnar geta verið svo miklar. í fyrrasumar rigndi látlaust frá vori og fram
í miðjan júlí. Nú er þessu akkúrat öfugt farið. í lauslegri upptalningu má
nefna eftirtalin áhrif:
Vatnsból eru tekin að þorna upp og lækjarfarvegir minna okkur á vatn
sem eitt sinn rann.
Laxveiðiárnar eru sem þokkalegir bæjarlækir. Það eru fleiri ár en Gufuá
sem gufað hafa upp. Þeir fiskar sem gengnir eru upp í árnar húka þar í
dýpstu hyljum, reyna sem minnst að láta á sér kræla, enda vatnið alltof heitt
og súrefnislaust fyrir þeirra smekk. Laxveiðimennirnir horfa á uggana og
dreymir netalagnir. Eru brjálaðir í skapinu, farnir að hundskamma kokkinn
í veiðihúsinu sem hættur er að geta töfrað fram nógu góðan mat til að gera
þeim lífið bærilegra.
Mýflugurnar eru fyrir löngu mættar og það sem verra er, frænkur þeirra
lúsmýið líka. Svo lítil kvikindi að þau sjást varla, skaðræðisskepnur engu að
síður, leggjast þó einkum á konur í ákveðnum blóðflokkum, nema ef vera
kynni að karlarnir beri harm sinn frekar í hljóði. Afleiðingin er sú að allt
sem heitið getur kuldagel, krem, töflur, borðviftur og annar varnarbúnaður
er uppseldur í búðunum. Fólk sem vant er að verja kröftum sínum í að böl-
sótast út í stjórnmálamenn, hefur með öllu gleymt því og beinir nú reiði
sinni til tómra hilla í apótekum og helstu raftækjaverslunum.
Bændur slá túnin svona venju samkvæmt, nýta þurrkinn. Ekki annað í
boði en aka þessa lögbundnu hringi eftir túnunum, uppskeran er hins vegar
sorglega lítil. Reyndar sparar það plast, olían er hins vegar sú sama. Leggj-
ast á bæn fyrir góðum dembum þannig að háin komi sterk inn.
Eldhætta eykst gríðarlega í þessum þrálátu þurrkum. Uppi varð fótur og
fit þegar kviknaði í blómapotti fyrir utan íbúðarhús í Borgarnesi um dag-
inn. Þar hafði ferðamaður hent frá sér sígarettustubb og kveikt bókstaflega
í moldinni og öllum fínu sumarblómunum. Takmarkað tjón vissulega, en
gaf vísbendingu um hvað vissulega getur gerst sé ekki varlega farið.
Til lengri tíma er það verst að nú eru jöklarnir að flýja til sjávar. Þeir þola
ekki hitann og hopa hraðar en nokkru sinni. Ég keyrði umhverfis Snæfells-
jökul um daginn. Viðurkenni að ég fór að gjóa augunum upp í hlíðarnar.
Velti því fyrir mér hvernig sá gamli mun líta út ef fer sem spáð er, að hann
hverfi með öllu eftir þrjá áratugi. Verður hann þá Snæfjall og Breiðuvíkin
hin nýja Snæfjallaströnd?
Nei, það er ljótt að hafa þetta í flymtingum. Ég trúi því að þessi óvana-
lega veðrátta hljóti að taka breytingum. Við munum fá okkar skerf af úr-
komu eins og við erum vön. Og getum þá haldið áfram að tala um veðrið.
Magnús Magnússon
Leshópurinn Köttur úti í mýri,
sem nýverið opnaði bókamarkað
í Grundarfirði, hefur nú sett upp
skiptibókakassa fyrir utan Bóka-
markaðinn á Snæfellsnesi. Þar er
hægt að setja bækur í kassann og fá
aðrar að láni. Víðsvegar um heim-
inn eru aðrir sambærilegir bóka-
kassar en hægt er að fræðast um
það á vefsíðunni littlefreelibrary.
org. Einungis einn svona kassi er
fyrir á íslandi en hann er staddur
í Reykjavík. Nú hefur þeim fjölg-
að upp í tvo með þessum kassa í
Grundarfirði. Það var Ingi Hans
jónsson sem smíðaði kassann fyr-
ir leshópinn og var góð stemn-
ing þegar hann var festur upp fyrir
utan Bókamarkaðinn á Snæfellsnesi
á dögunum.
tfk
Bændurnir og hjónin Anna Lísa
Hilmarsdóttir og Brynjar Bergs-
son á Refsstöðum í Hálsasveit festu
nýverið kaup á gömlu húsi sem
áður hýsti Bátasmiðju Akureyr-
ar og fluttu húsið suður í Borgar-
fjörð. Aðspurð segir Anna Lísa þau
ætla að nota húsið fyrir ferðaþjón-
ustu. Það verður þó ekkert opnað
í sumar því enn á eftir að klára að
koma húsinu saman og laga lóð-
ina í kringum það. Húsið er stórt
og þurfti að flytja í tveimur hlutum
í lögreglufylgd alla leið. „Þetta var
svakalegt ferðalag og það þurfti að
loka Öxnadalsheiðinni fyrir okkur,“
segir Anna Lísa.
arg
Halla Signý Kristjánsdóttir alþing-
ismaður vekur athygli á því að nú
sé dýralæknalaust í fimm sveitarfé-
lögum á Vestfjörðum; Súðavík, ísa-
fjarðarbæ, Bolungarvík, Tálkna-
fjarðarhreppi og Vesturbyggð.
Dýralæknir sá er hefur sinnt þessu
svæði hefur sagt upp eftir farsælt
starf um árabil oft við erfiðar að-
stæður. Þetta kemur fram í grein
sem Halla Signý skrifaði í BB 4.
júlí sl.
„Dýralæknir er forsenda þess að
bændur og dýraeigendur geti hald-
ið dýravernd. Eftirliti með dýravel-
ferð og dýralækningum í dreifðum
byggðum er sinnt með verktaka-
samningum. Dýravelferð og eftirlit
er á hendi héraðsdýralæknis. Hér-
aðsdýralæknir fyrir Vesturumdæmi
situr í Borgarnesi og sinnir svæðinu
frá Hvalfjarðarbotni að Hrútafirði
að meðtöldum Vestfjörðum. Dýra-
læknar er starfa einir á stóru svæði,
án afleysinga, allt árið um kring eru
undir miklu álagi,“ skrifar Halla
Signý.
„MAST hefur á liðnum vikum
tvívegis auglýst eftir dýralækni til að
taka við þjónustusamningi á svæði 3
en engin viðbrögð hafa verið. Seg-
ir það kannski mikið um hvernig
þessir samningar eru byggðir upp.
Það er tímabært að skoða þessi mál
heildstætt og um allt land. Dýra-
lækningar og eftirlit með dýravel-
ferð á að vera hægt að vinna sam-
an, skapa þannig eftirsótt störf og
ákjósanleg starfsskilyrði fyrir dýra-
lækna að sækja í. Vinna þarf að
lausn í þessum málum og tryggja
þannig dýravelferð um allt land,“
segir Halla Signý Kristjánsdóttir.
mm
Telur að verið sé að brjóta lög
um dýravelferð
Nýju húsin eru svört að lit og til vinstri á mynd. Ljósm. Josefina Morell
Hús flutt að Refsstöðum
Hluti af leshópnum Köttur út í mýri ásamt Inga Hans við þennan glæsilega bókakassa.
Bókasafnskassi kominn upp í Grundarfirði