Skessuhorn - 10.07.2019, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 20198
Núningur án stór-
átaka
AKRANES: Vikan var eril-
söm hjá Lögreglunni á Vestur-
landi en gekk þó áfallalaust fyr-
ir sig, að sögn jóns S Ólasonar.
Mest var að gera í tengslum við
bæjarhátíðina írska daga á Akra-
nesi en engin alvarleg mál komu
þó á borð lögreglu um eða eftir
helgina. Að sögn jóns var margt
fólk sem mætti á Lopapeysuna og
myndaðist örtröð við innganginn
en það mál var leyst nokkuð far-
sællega að mati lögreglu, án þess
að alvarleg slys yrðu. Eitthvað var
um núning milli manna en engin
stórvægileg mál. -arg
Ólafsvíkurhátíð fór
friðsamlega fram
ÓLAFSVÍK: Bæjarhátíðin
Ólafsvíkurvaka fór fram um liðna
helgi og að sögn Lögreglunnar á
Vesturlandi fór hátíðin afskaplega
friðsamlega fram. Þar var fólk al-
mennt rólegt og ekkar alvarlegt
mál hefur komið inn á borð lög-
reglunnar í tengslum við hátíð-
ina. -arg
Stútar undir stýri
VESTURLAND: Nokkuð var
um ölvunarakstur í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi í lið-
inni viku. Ellefu bókanir um ölv-
aða ökumenn er að finna í dag-
bókum lögreglunnar eftir vik-
una og flest málin eru frá því um
helgina. Eitthvað var um að fólk
hafi einfaldlega farið of snemma
af stað eftir drykkju kvöldið áður
og vill lögreglan minna ökumenn
á að gæta þess alltaf að hafa feng-
ið næga hvíld áður en sest er und-
ir stýrið eftir drykkju. Þá voru
fimm teknir við akstur grunaðir
um að vera undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Að sögn lögreglu er
þetta hlutfall í hærra lagi á einni
viku. í einu þessara mála var
maður tekinn á Vesturlandsvegi
í annarlegu ástandi og fundust
jafnframt fíkniefni í bílnum. Það
mál er nú til rannsóknar. -arg
Annir á
hálendisvakt
LANDIÐ: Nokkuð hefur ver-
ið um verkefni hjá þeim björg-
unarsveitahópum Landsbjargar
sem manna hálendisvakt sumars-
ins. Töluvert um slys og minnni-
háttar óhöpp. Á sunnudagskvöld
var leitað að konu sem villst hafði
í þoku á gönguleiðinni inn að
Öskjuvatni á hálendinu norð-
an Vatnajökuls. Á svæðinu var
snjókoma og einnar gráðu frost
en í slíku veðri kólnar fólk hratt
sé það ekki vel búið. Björgunar-
menn fundu konuna skjótt og
fóru með hana í skála við Dreka-
gil þar sem hún fékk hlý föt og
heitt að drekka. Á mánudag var
tilkynnt um fótbrotinn göngu-
mann á Laugaveginum, sunnan
við Hrafntinnusker. Björgunar-
fólk fór til mannsins og flutti til
byggða. Bera þurfti viðkomandi
um fjögurra kílómetra leið að
jeppa og aka honum svo á móts
við sjúkrabifreið sem flutti hann
á sjúkrahús. -mm
Icelandic Documentary Film
Festival er alþjóðleg heimilda-
myndahátíð sem haldin verður á
Akranesi dagana 17.-21. júlí næst-
komandi. Sýndar verða 50 myndir
allstaðar að úr heiminum og þar af
30 myndir í fullri lengd. Að sögn
Ingibjargar Halldórsdóttur, eins
skipuleggjanda hátíðarinnar, er
von á gestum víða að úr heimin-
um á hátíðina. „Það eru að koma
gestir frá Rússlandi, japan og fleiri
löndum auk þess sem við verð-
um með 20 ungmenni af Norð-
urlöndum sem verða á hátíðinni
með vinnustofur,“ segir Ingibjörg.
„Við leggjum upp úr að hafa mjög
fjölbreytta dagskrá og verðum
með bæði léttar myndir og þung-
ar auk þess sem við verðum með
barnamyndir. Við ætlum að hafa
sérstaka barnadagskrá á morgnana
samhliða hátíðinni. Til að höfða
aðeins meira til fjölskyldufólks,
verðum með ratleik á laugardeg-
inum og fjör á Akratorgi. Á kvöld-
in verða skemmtiatriði fyrir alla
svo þetta er algjör fjölskylduhá-
tíð og okkur langar að búa til smá
svona kvikmyndaþorp hér á Akra-
nesi í kringum þetta,“ segir Ingi-
björg.
Mest erlendar myndir
Aðspurð segir Ingibjörg myndirn-
ar verða sýndar í Bíóhöllinni, Tón-
bergi og á Byggðasafninu í Görð-
um. „Þetta verður mjög þétt dag-
skrá en við gefum öllum mynd-
um tvær sýningar,“ segir Ingi-
björg. Opnunarmynd hátíðarinn-
ar heitir In Touch en það er heim-
ildamynd um lítið pólskt þorp sem
heitir Stare juchy þar sem stór hluti
íbúanna hafa flutt til íslands síðustu
áratugi og ekki snúið aftur. „Há-
tíðin er mjög fjólþjóðleg og við
verðum með myndir allstaðar að
en það eru þó svona smávægilegar
tengingar við ísland líka eins og í
myndinni In Touch. Það verða tvær
myndir eftir kvikmyndagerðarfólk
frá Akranesi og lokamynd hátíðar-
innar er að hluta til tekin upp á ís-
landi. En annars eru þetta mest er-
lendar myndir sem tengjast íslandi
ekki beint,“ segir Ingibjörg.
Ekki hefðbundnar
heimildamyndir
Skipuleggjendur hátíðarinnar fengu
innsendar um 260 heimildamynd-
ir til að sýna á hátíðinni en aðeins
var hægt að sýna 50 myndir. „Við
erum með tíu manns að hjálpa okk-
ur að velja myndir, svona alþjóðlegt
teymi. Við fórum yfir þessar mynd-
ir og fórum líka á hátíðir og horfð-
um til þess hvaða myndir hafa verið
vinsælar á hátíðum erlendis og vor-
um í samband við sjálfstæða dreif-
ingaraðila og völdum inn myndir
út frá því,“ segir Ingibjörg. „Þetta
eru aðeins öðruvísi heimildamynd-
ir en ekki þessar hefðbundnu við-
talsmyndir sem maður sér gjarnan
í sjónvarpinu. Þetta verður glæsileg
hátíð og ég vona að ég sjái sem flesta
í bíói þessa daga. Ég vil líka hvetja
fólk til að taka börnin með sér og
gera eitthvað skemmtilegt úr þess-
um viðburði og þá sem eru ekki á
Skaganum hvet ég til að koma með
tjaldið og vera með okkur alla hátíð-
ina. Þetta verður rosalega skemmti-
legt og ég mikil stemning,“ segir
Ingibjörg að endingu.
arg
Á miðvikudaginn í liðinni viku kom
björgunarbáturinn Gunnar Friðriks-
son til hafnar í Rifi í Snæfellsbæ. Hann
kemur í stað Bjargar, sem hefur þjónað
Lífsbjörgu í mörg ár, og reynst sveitinni
afar vel. Að sögn Helga Más Bjarnason-
ar formanns Lífsbjargar er Björgin orð-
in lúin vélarlega séð og var því Gunnar
Friðriksson fenginn frá ísafirði en hann
er samskonar bátur og Björg nema
hvað hann er tíu árum yngri og betur
búinn. Gunnar er auk þess gangmeiri
bátur, með öflugri vél. Ganghraðinn á
heimleiðinni var um 18 mílur en Björg-
in gekk um ellefu mílur.
Báðir bátarnir eru smíðaðir í Eng-
landi og segir Helgi Már að ekki sé
búið að ákveða hvað verður um Björg-
ina. Það mál sé í höndum Landsbjargar.
af
Heimildarmyndahátíð á Akranesi
Björgunarsveitarmenn í nýja skipinu.
Lífsbjörg fékk afhentan nýrri
og öflugri björgunarbát
Björgin og Gunnar Friðriksson í höfn.
Aflatölur
fyrir Vesturland
29. júní – 5. júlí
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes: 17 bátar.
Heildarlöndun: 43.193 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 18.932
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi: 16 bátar.
Heildarlöndun: 36.903 kg.
Mestur afli: Hrafnborg SH:
5.449 kg í þremur löndunum.
Grundarfjörður: 18 bátar.
Heildarlöndun: 198.244 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
64.284 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 28 bátar.
Heildarlöndun: 71.804 kg.
Mestur afli: Egill SH: 27.785
kg í þremur löndunum.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 52.679 kg.
Mestur afli: Esjar SH: 19.559
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 29 bátar.
Heildarlöndun: 97.290 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 14.437
kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH – GRU: 64.284
kg. 3. júlí.
2. Sigurborg SH – GRU:
46.235 kg. 1. júlí.
3. Helgi SH – GRU: 44.475
kg. 1. júlí.
4. Farsæll SH – GRU: 19.545
kg. 1. júlí.
5. Esjar SH – RIF: 14.169 kg.
2. júlí.
-arg