Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201910
Nýverð var kynnt á vef Þjóðkirkj-
unnar að fjórir umsækjendur eru
um embætti sóknarprests í samein-
uðu Garða- og Hvalfjarðarstrand-
arprestakalli. Þeir eru Dagur Fann-
ar Magnússon, jón Ásgeir Sigur-
vinsson, úrsúla Árnadóttir og Þrá-
inn Haraldsson.
Prestakallið nær yfir Akranes
og Hvalfjarðarsveit. Eins og fram
hefur komið fór biskup að tillögu
kirkjuþings sem lagði til að Saur-
bæjarprestakall og prestssetrið í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd yrði
lagt niður og búsetuskylda prests
jafnframt aflögð á staðnum. Þannig
hafa Saurbæjarsókn, Innra-Hólms-
sókn og Leirársókn verið samein-
aðar Garðaprestakalli á Akranesi.
Rökin fyrir því voru meðal annars
sú að jafna starfsálag presta í sam-
einaðri sókn. Séra Eðvarð Inólfsson
sóknarprestur í Garðaprestakalli
hætti störfum í vor og var embætti
sóknarprests því auglýst.
Biskup íslands skipar í embættið
frá 1. september næstkomandi til
fimm ára. Umsóknir hljóta umfjöll-
un matsnefndar um hæfni til prests-
embættis og að fenginni niðurstöðu
hennar fjallar kjörnefnd prestakalls-
ins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs
að því búnu milli umsækjendanna
og skipar biskup íslands þann um-
sækjanda sem hlýtur löglega kosn-
ingu. mm
Aðfararnótt 2. júlí síðastliðins fraus
víða um vestanvert landið einkum
inn til dala og í skjólsælum lægðum
í landslaginu. Sá verulega á kart-
öflugrösum eftir nóttina. Svein-
björn Eyjólfsson áhugamaður um
kartöfluræktun vitjaði um kartöflu-
rækt sína í garðinum í Þingnesi í
Bæjarsveit. Segir hann ljóst að bæði
næturfrost í maí, eftir að hann setti
niður, og svo aftur núna muni draga
úr þeim vaxtarauka sem hann hafði
vænst í sumar með tilliti til hlýind-
anna og hagstæðs veðurfars. Seg-
ir hann afar óvanalegt að fá nætur-
frost í byrjun júlí. Hann á þó von á
að kartöflurnar haldi áfram að vaxa
ofan í jörðinni. Sveinbjörn bætir því
við að hann hafi hugsað sér gott til
glóðarinnar með uppskeru í sumar,
í ljósi slæmra skilyrða síðasta sum-
ar til kartöfluræktunar, þegar allt
var á floti fram í miðjan júlí. í fyrsta
skipti í búskapartíð hans hafi hann
því þurft að kaupa kartöflur í búð.
mm/ Ljósm. se.
Vestfjarðastofa og Vesturlands-
stofa skrifuðu í síðustu viku und-
ir samstarfssamning sem snýr
að þróun ferðamannaleiðarinn-
ar „Hringvegs 2“. Um er að ræða
ferðamannaleið sem er um 850 km
löng og liggur um sjö sveitarfélög
á Vestfjörðum auk Dalabyggðar á
Vesturlandi.
„Lagt er upp með að ferðaleið-
in Hringvegur 2 verði aðdráttarafl
fyrir svæðið allt árið, en það verður
raunhæfur möguleiki þegar Dýra-
fjarðargöng opna og í framhaldi
af því heilsársvegur um Dynjandi-
heiði. Margir áhugaverðir staðir,
söguslóðir og starfsemi eru á þess-
ari leið og hér er um að ræða svæði
sem við teljum að eigi mikið inni
þegar að kemur að ferðaþjónustu,“
segja þær Margrét Björk Björns-
dóttir hjá Markaðsstofu Vestur-
lands og Díana jóhannsdóttir hjá
Markaðsstofu Vestfjarða. Þá hefur
einnig verið gengið frá samningi
við breska ráðgjafafyrirtækið Blue
Sail sem sérhæfir sig í þróun slíkra
ferðamannaleiða og hefur með-
al annars komið að verkefnunum
Arctic Coast Way á Norðurlandi,
Celtic Routes og Wild Atlantic
Way. Gert er ráð fyrir að leiðin
verði formlega opnuð á sama tíma
og Dýrafjarðargöng sem áætlað er
að verði í september 2020.
mm
Allt frá bankahruninu 2008 hefur er-
lendum póstsendingum fjölgað mik-
ið hjá íslandspósti. Þessi mikli fjöldi
sendinga, sem helgast af netversl-
un kaupglaðra íslendinga, bætti hins
vegar ekki hag Póstsins, heldur jók
tapið. Það var þó ekki fyrr en í októ-
ber í fyrra sem íslandspóstur ósk-
aði eftir framlagi úr jöfnunarsjóði al-
þjónustu vegna þessa, en sá sjóður er
tómur og fellur því bakreikningurinn
á ríkissjóð. í fréttaskýringu Morgun-
blaðsins um málið síðastliðinn laug-
ardag sagði: „Tapið er einkum til-
komið vegna endastöðvagjalda sem
leiða af samningum við Alþjóðapóst-
sambandið (UPU). íslandspósti er
skylt að veita þjónustuna á tilteknum
kjörum. Vegna þessara gjalda hafa
m.a. sendingar frá Kína, sem skil-
greint er sem þróunarland hjá UPU,
verið niðurgreiddar á íslandi. Er slík-
um niðurgreiðslum ætlað að jafna
aðgang landa að póstmarkaðinum.
Skyldan nær til erlendra pakka sem
eru allt að 20 kíló.“
Með lögum sem samþykkt voru
3. júní síðastliðinn leggst nýtt við-
bótargjald á sendingar hingað til
lands og er því gert að endurspegla
raunkostnaðinn við sendingarnar.
Gjaldið er 400 krónur á sending-
ar frá Evrópu og 600 krónur fyr-
ir sendingar utan Evrópu. Þar við
bætist að íslandspóstur innheimtir
geyslugjald af sendingum séu þær
ekki sóttar strax. Þannig eru dæmi
um að sendingargjöld séu jafnvel
margföld á við innkaupsverð vör-
unnar. Gunnar Ásgeir Gunnarsson
á Felli í Borgarfirði lýsir í sam-
tali við Skessuhorn nýlegum við-
skiptum sínum og varar fólk við að
kaupa ódýra hluti í gegnum net-
verslanir. Það sé einfaldlega hætt
að borga sig:
Mjólkurkúnni slátrað
„Pósturinn hér á landi er algjör-
lega að fara hamförum í gjaldtöku.
Það er ekki hægt að bjóða fólki
upp á þetta. í síðustu viku fékk ég
bréf frá Kína, ekki pakka. And-
virðið var 87 dollarsent eða um
100 krónur með sendingarkostn-
aði. Ég var rukkaður um 1.219 kr
til að fá bréfið afhent. í dag fékk
ég líka bréfpóst tollafgreiddan frá
Bretlandi. Andvirðið er 11,2 pund
þar af 2,89 pund í póstburðar-
gjald úti, samtals 1.775 kr. Póst-
urinn rukkar mig um 3.375 krónur
til að fá afhent. Það er ekki hægt
að bjóða fólki upp svona svínarí,“
segir Gunnar Ásgeir og bætir við:
„Pósturinn er búinn að klúðra „big
time“ og nú slátra þeir mjólkur-
kúnni. Eftir svona meðferð dett-
ur engum manni í hug að reyna að
versla ódýrt erlendis. Netverslun
með ódýra vöru er því nánast sjálf-
hætt. Slíkt getur einungis borgað
sig þegar stærri og dýrari sending-
ar eiga í hlut,“ segir Gunnar.
mm
Sendingarkostnaður, umsýslugjald, geymslugjald og annar kostnaður fyrir
tveggja gramma bréf var í þessu tilfelli hátt í tvöfalt hærra en innkaupsverð
vörunnar frá Bretlandi.
Telur búið með póstverslun frá Asíu
eftir hækkun Íslandspósts
Hringvegur 2
opnaður um leið og
Dýrafjarðargöng
Fjórir umsækjendur
um embætti sóknarprests
Hrímuð grös að morgni 2. júlí.
Frostskemmd kartöflugrös
í byrjun júlí
Kartöflugarðurinn í Þingnesi.